Innlent

Hafi loks slíðrað sverðin

Eiður Þór Árnason skrifar
Hörður í kveðjuhófinu í gær.
Hörður í kveðjuhófinu í gær. Vísir/Anton Brink

Hörður Arnarson kvaddi samstarfsfólk sitt í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í gær eftir að hafa starfað sem forstjóri fyrirtækisins í sautján ár. Hann sagði allt eiga sinn tíma en bindur vonir við að fá að vera áfram hluti af golfklúbbi starfsmanna. Hart hafi verið tekist á við hagaðila á köflum en hann skilji sáttur við vinnustaðinn.

„Þetta er áttunda kveðjuboðið mitt af því að ég er búinn að fara síðustu tvær vikur á allar starfsstöðvarnar og hitta fólkið í stöðvunum og eiga spjall við þau um hvaðan við erum að koma og hvernig hefur gengið. Það var mjög gaman að hitta fólkið, allt fólk með sterkar skoðanir sem hefur oft skammað mig kannski í sautján ár,“ sagði Hörður í kveðjuræðu sinni í gær.

Í þetta skiptið hafi verið komið aðeins annað hljóð í strokkinn.

„Víst var ég sammála þér, ég var bara aðeins að halda þér við efnið,“ hafði Hörður eftir samstarfsfólki sínu.

Klippa: Hörður Arnarson kveður samstarfsfólkið

„Þetta voru skemmtilegar umræður, oft góðar spurningar og ég fékk nokkrum sinnum spurninguna: „Hvað finnst þér standa upp úr? Hverju ertu stoltastur af á þessu tímabili?“ Það var eiginlega ekki fyrr en á miðvikudaginn í Blöndu sem ég náði að kjarna hvað ég væri stoltastur af.“ Það væri einkum sá árangur sem hafi náðst frá því að hann hóf störf.

„Ég er stoltastur af því hvernig við gerðum það. Þegar maður býr til mikil verðmæti þá svakalega oft er maður að taka af einhverjum. Það verða einhverjir sárir eftir,“ bætti Hörður við.

Hann hafi ekki upplifað það nú þegar hann hafi átt í samskiptum við starfsfólk, viðskiptavini, fulltrúa nærsamfélagsins við virkjanir, verktaka og stjórnmálamenn.

Greint var frá því í byrjun mánaðar að Hörður ætlaði að hætta sem forstjóri Landsvirkjunar en fram hefur komið að hann hafi verið ósáttur við starfshætti stjórnar ríkisfyrirtækisins. Hann sagði í gær skrýtna en góða tilfinningu fylgja starfslokunum.

Hart tekist á en vitað að þetta væri sanngjarnt

Hörður sagðist hafa fengið skilaboð frá forstjórum stærstu viðsemjenda Landsvirkjunar síðustu daga. Þar eru einkum um að ræða alþjóðleg stórfyrirtæki sem reka málmbræðslur og hafa þurft að endursemja um raforkukaup. Hefur þetta skilað sér í hærri greiðslum til Landsvirkjunar.

„Það var hart tekist á en þeir eru mjög ánægðir. Ég fékk bæði skilaboð opinberlega og persónuleg skilaboð þar sem menn þökkuðu geysilega vel fyrir samstarfið, þökkuðu vel fyrir það hvernig við unnum saman af því þeir voru bara að borga það sama og annars staðar. Þeir vissu alveg innst inni að þetta var sanngjarnt.“

Klippa: Ari Eldjárn tók Hörð á beinið

Einnig hafi fjöldi sveitarstjórnarmanna og nágrannar virkjana sett sig í samband við Hörð.

„Þetta eru aðilar sem við erum oft að takast á við og vilja fá hitt og þetta og við þurfum oft að segja nei og vinna með þeim en þeir eru mjög sáttir. Líka þetta hvernig við höfum haldið raforkuverði lágu til almennings og fyrirtækja. 

Ég er mjög stoltur af því og mér þótti vænt um það núna þegar ég fékk ályktun aðalfundar sveitarfélaga á köldum svæðum. Það var ályktað sérstaklega að þau vildu þakka Herði Arnarsyni fyrir að hafa staðið vaktina við að tryggja sanngjarnt raforkuverð. Þetta eru þeir sem verða mest fyrir barðinu á því ef raforkuverð hækkar.“

Þurft að breyta vinnustaðamenningunni

Hörður segist einnig stoltur af vinnustaðamenningunni hjá Landsvirkjun sem hafi verið öðruvísi hér áður fyrr.

„Hún var á margan hátt mjög sterk. Það var gríðarlegur metnaður í fyrirtækinu að byggja og reka virkjanir. Mikið af fólki hafði verið hérna frá stofnun fyrirtækisins og mjög mikið sem við höfum verið að gera byggir á því sem þau höfðu gert. Þessar virkjanir sem þau lögðu upp í hendurnar á okkur, undirbúningur virkjana sem við höfum byggt, viðskiptavini sem þeir hafa komið með til landsins en við vildum gera breytingar á menningunni, þurftum að gera það. Það urðu kynslóðaskipti af því að fólk fór á eftirlaun og við fengum inn svakalega öflugan hóp starfsmanna sem kom með öðruvísi menningu.

Mér finnst við hafa haldið styrkleikunum í menningunni sem var. En við höfum byggt upp mjög góða menningu í fyrirtækinu finnst mér.“

Hann hlakki til að takast á við nýjan kafla á sínum starfsferli.

„Ég veit ekki hver næsti kafli verður hjá mér en hann verður örugglega ólíkur hinum og vonandi jafn skemmtilegur.“

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×