Lífið

Halla bað sáran áhrifa­vald um að of­gera sér ekki fyrir sam­félags­miðla

Eiður Þór Árnason skrifar
Axel og fylgdarlið hans fyrir utan Bessastaði í kvöld.
Axel og fylgdarlið hans fyrir utan Bessastaði í kvöld. Aðsend

Axel Máni Bjarnason skilaði sér á Bessastaði um klukkan sex í kvöld eftir að hafa skriðið þangað frá Njarðvík yfir tólf daga tímabil. Eins og sönnu nútímaungmenni sæmir var allri vegferðinni streymt í beinni útsendingu á Tiktok þar sem fleiri þúsund manns fylgdust með athæfinu.

Þegar hinn 23 ára gamli Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi að sjálfsögðu eftir bréf fyrir ofurhugann.

„Hún var að hrósa mér fyrir þolið og viljastyrkinn til að komast svona langt og var í rauninni að segja mér að ég ætti að fara varlega og ekki keyra mig út fyrir samfélagsmiðla,“ segir Axel í samtali við Vísi.

Er það eitthvað sem þú munt taka til umhugsunar?

„Já, 100 prósent en samt er ég óendanlega stoltur af sjálfum mér fyrir að hafa klárað þetta. Það voru hátt í 100 manns að elta mig þarna í lokin og 5.000 áhorfendur í beinni.“ Áhorfsmet hafi verið slegið í dag en hann mæli ekki með því að ungir aðdáendur reyni að leika athæfið eftir.

Hvernig líður þér eftir þetta?

„Mér líður ótrúlega vel. Ég er að drepast í öllum líkamanum, bólginn og þrútinn, allur skorinn. En andlega er ég bara í skýjunum.“

Axel var í beinni allan tímann. aðsend

Vill bæði veita innblástur og auglýsa smáforrit

Axel segist hafa skriðið í þrjá til tíu klukkutíma á degi hverjum en í dag hafi hann skriðið í um sex tíma. Skilaboðin sem hann vilji senda með þessu séu skýr.

„Það sem þú trúir í hausnum þínum, sama hversu fáránlegt, sama hversu erfitt það er, þá getur þú náð þangað sem þú vilt ef þú leggur þig alltaf fram og notar hausinn.“

En það var ekki allt. 

„Svo var ég í rauninni að auglýsa appið Alarm Friends. Eins og við Íslendingar vitum þá erum við mjög þunglynd þjóð þegar myrkrið fer að bresta á. Það á enginn að vakna einn. Þessi árstími er erfður fyrir krakka á grunnskólaaldri og markmiðið var í rauninni að biðja Höllu um að vera vinur minn í appinu. Mig langaði að fá að vakna með henni.“

Snýst þetta ekki allt um vinina sem maður eignast á leiðinni?Aðsend

Gunnar Björn Gunnarsson hefur verið í för með Axel á þessu ferðalagi og segist hafa þróað umrætt smáforrit sem gæti útleggst sem vekjaraklukkuvinir á okkar ástkæra ylhýra.

„Hugsunin á bak við þetta kom þegar ég var að vakna einn þunglyndur fyrir svona fimm árum. Þá hugsaði ég að það væri nú gaman að geta vaknað með bara einhverjum.“

„Það eru engar myndir og þetta eru bara nöfn. Þetta er ekki samfélagsmiðill upp á það að geta spjallað saman. Þú getur vaknað með fólki, þú getur búið til plön eins og Facebook-viðburði og afmæli.“

Axel reyndi að búa vel um hnén.aðsend

Sem dæmi sé Axel kominn með um níutíu klukkuvini. Það fólk geti þá séð hvenær hann vaknar, hvort hann frestaði hringingunni og skilið eftir skilaboð.

„Þetta er frítt fyrir alla að eilífu ef þú nærð í það árið 2026. Þá áttu allt sem kemur frá Alarm Friends. Þetta er ekki hugsað til að græða, heldur bara til að gefa eitthvað gott,“ bætir Gunnar við.

Axel beinir því til yngri krakka að reyna ekki að leika ferðalag sitt eftir.

„Ekki gera þetta. Þetta er ekki að fara að koma sér vel fyrir líkama þinn. En samt sem áður þá vil ég að fólk geti horft á þetta og séð bara hversu langt maður kemst með því að trúa á sjálfan sig.“

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir

Áhrifavaldurinn Axel Máni lagði af stað skríðandi til Bessastaða frá Njarðvík á mánudaginn og var ætlunin að skríða þessa sirka 45 kílómetra á þremur dögum. Hins vegar skaddaðist Axel svo illa á höndum að verknaðurinn mun taka allavega sex daga.

Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða

Ungur maður fer nú skríðandi til Bessastaða en hann hélt af stað frá Njarðvík í gærkvöldi. Hann segir tilganginn vera þann að sanka að sér fleiri fylgjendum á samfélagsmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.