Innlent

Sendlar bjóða Wolt fram að­stoð sína

Eiður Þór Árnason skrifar
Gheorghe segir að hópur sendla vinni nú að því að stofna samtök Wolt-sendla í von um að geta farið í lögmætt verkfall.
Gheorghe segir að hópur sendla vinni nú að því að stofna samtök Wolt-sendla í von um að geta farið í lögmætt verkfall. WOLT

Talsmaður Wolt-sendla fordæmir hótanir í garð starfsfólks fyrirtækisins og býður fram aðstoð sína. Samskiptastjóri Wolt á Íslandi segir búið að tilkynna hótanirnar sem hafi allar verið nafnlausar til lögreglu. Þá hafi starfsfólk heimsendingarþjónustunnar einnig orðið fyrir „ágengum ummælum“ af hálfu nokkurra Wolt-sendla. Sendlarnir boða stofnun samtaka og hyggjast efna til verkfalls að óbreyttu.

„Ég og ökumennirnir stöndum með Wolt í tengslum við þessar hótanir. Ef við getum hjálpað á einhvern hátt þá er ég tilbúinn í það. Ef þau hafa einhverjar vísbendingar eða eitthvað sem hægt er að deila þá er ég til í að hjálpa þeim að finna þá einstaklinga sem standa að baki þessu vegna þess að þetta á ekki að eiga sér stað,“ segir Gheorghe Mihai Cacaliceanu sem var kjörinn talsmaður Wolt-sendla á Íslandi á fundi þeirra með fulltrúum Eflingar.

Hann hafi sömuleiðis tjáð fulltrúum Wolt þetta á fundi með þeim í vikunni.

„Ég læt svona hegðun ekki líðast. Ef þetta er einhver úr okkar hópi þá á viðkomandi ekki að haga sér með þeim hætti sem Wolt greindi frá. Ég stend eindregið með Wolt hvað varðar svona hegðun, því við erum fullorðið fólk og venjulegar manneskjur. Við eigum að taka á málinu með viðeigandi hætti og enginn ætti að finna fyrir ótta eða þola hótanir fyrir að sinna starfi sínu.“

Vilji gera hlutina almennilega og fara í lögmætt verkfall

Gheorghe segir næstu skref vera að ganga frá þeirri pappírsvinnu sem þurfi til þess að koma formlega á fót samtökum Wolt-sendla á Íslandi. Hann sakar fulltrúa fyrirtækisins um rangfærslur.

„Þeir halda því fram að þeir borgi okkur mjög vel og að greiðslurnar til okkar séu að lækka vegna þess að þeir hafi ráðið of marga bílstjóra. Þeir eru ekki samstíga þar því að Christian [Kamhaug, samskiptastjóri Wolt á Íslandi og í Noregi] og Jóhann [Már Helgason, framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi] sögðu að þeir hefðu ráðið of marga bílstjóra en þessir aðilar sem komu frá Finnlandi og Noregi sögðu að þeir hefðu ekki ráðið neina bílstjóra. Þannig að ég veit ekki lengur hverjum ég á að trúa. Þess vegna gengum við öll út af fundinum.“

„Við gengum út 23 talsins og aðeins sex eða sjö manns voru eftir á fundinum en ekki helmingur hópsins eins og greint hefur verið frá. Við vorum 30 bílstjórar, 23 gengu út og sjö urðu eftir á fundinum,“ bætir Gheorghe við.

„Við erum með WhatsApp-hóp og við erum 97 í hópnum núna. Níutíu prósent þeirra eru mjög reið yfir ástandinu, svo þau lögðu til verkfall. Ég sagði að við þyrftum að gera þetta almennilega, við þyrftum að gera þetta eins friðsamlega og hægt er, við þyrftum að fá leyfi frá borginni og við þyrftum að vera á öruggum stað svo við sköpum ekki ringulreið á götunum eða hefðum áhrif á önnur fyrirtæki heldur aðeins fyrirtækið sem við erum að berjast gegn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×