Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. október 2026 20:01 Ragna Bjarnadóttir er fangelsismálastjóri. Vísir/Anton Brink Alls konar leiðir eru notaðar til að smygla fíkniefnum inn fyrir veggi fangelsa á Íslandi, þar á meðal með drónum. Vegna þessa þarf viðbragð fangavarða einnig að vera fjölbreytt þótt það sjáist fljótt á föngunum þegar fíkniefni komast í umferð. „
Eðli málsins samkvæmt reyna þeir sem vilja koma fíkniefnum inn í fangelsi að nota alls konar leiðir til þess og þess vegna þurfa viðbrögð okkar líka að vera mjög fjölbreytt,“ segir Ragna Bjarnadóttir, forstjóri Fangelsismálastofnunar, í samtali við fréttastofu. „Þeir sem vilja fara fram hjá lögunum eru oft að leita leiða til þess og nýta sér nýja tækni í það. Drónar eru vissulega eitt af því og þá horfum við auðvitað í það og horfum þá líka í það hvaða tæknilegu lausnir við höfum til þess að mæta því.“ Þrátt fyrir að margs konar leiðir séu farnar við smyglin er ýmislegt hægt að gera. Leitað er á öllum heimsóknargestum og fylgst grannt með föngunum. Hvað varðar notkun dróna er til að mynda hægt að skilgreina bannsvæði umhverfis fangelsin sem leiðir til þess að ekki er hægt að fljúga drónum á svæðinu. Þá eru fangaverðirnir með augun opin og fylgjast með opna svæðinu. Starfsmenn fangelsisins taka fljótt eftir því þegar fíkniefni komast í umferð innan veggja fangelsanna. „Það sem skiptir líka allra mestu máli er að vera í góðri snertingu við okkar skjólstæðinga og við sjáum það mjög fljótt, eðli málsins samkvæmt, og kannski ólíkt því sem gerist í samfélaginu.“ Tilfellin sveiflast til Mismunandi fangelsi bjóða samt sem áður upp á mismunandi áskoranir. Til að mynda sé erfiðara að bregðast við smyglinu á Litla-Hrauni heldur en á Hólmsheiði. Nýja fangelsið Stóra-Hraun á einnig að vera betur í stakk búið til að mæta slíkum áskorunum. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu urðu fangelsisyfirvöld yfir fimm hundruð sinnum uppvís að fíkniefnanotkun innan Litla-Hrauns árin 2020 til 2025. Tíðnin virtist fara lækkandi milli ára, náði hámarki árið 2021 með 123 tilfelli og lækkaði síðan niður í 65 tilfelli árið 2025. Ragna vill ekki alhæfa um að tilfellum sé að fækka. „Það eru sveiflur í því og ég þori ekki alveg að segja hvort það sé að minnka,“ segir hún. „Við erum að reyna að efla eins og við getum meðferðarstarfið innan fangelsanna þannig að þeim sem eru þar standi úrræði til boða.“
Fangelsismál Tækni Fíkniefnabrot Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira