Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. október 2026 07:02 Mæðgurnar Vala Rún Magnúsdóttir og Bjarnveig Guðjónsdóttir standa ásamt góðum hópi að yfirlitssýningu á verkum Magnúsar Reynis Jónssonar. Sýningin verður haldin á fjölskylduheimilinu. Vísir/Anton Brink „Mamma og pabbi giftu sig heima, við systkinin vorum skírð heima og við elskum þetta hús. Því ákváðum við að halda þetta bara heima,“ segir Vala Rún Magnúsdóttir um sýningu á verkum föður hennar, Magnúsar Reynis Jónssonar. Magnús lést fyrir sex árum og var afkastamikill ljósmyndari sem skildi eftir sig fjöldann allan af verkum. Hann hefði orðið sjötugur núna í október og urðu tímamótin að kveikju hjá fjölskyldu hans og nánustu vinum.
Yfirskrift sýningarinnar, „Alltílagi bless“ er setning sem Magnús notaði iðulega sem svar við alls konar og engu. Vala Rún er fædd árið 1996 og starfar sjálf í skapandi geiranum en það sama á við um Davíð Stein yngri bróður hennar sem er fæddur 2005. Hún, móðir hennar Bjarnveig Sigríður Guðjónsdóttir og Davíð Steinn standa að sýningunni Allt í lagi bless ásamt þremur vinum föður hennar, Svenna Speight, Pétri Thomsen og Gauja litla. Magnús, faðir Völu, á fallega fjölskylduheimilinu.Aðsend Best að vera heima í Víðihlíð Blaðamaður ræddi við Völu um þessa yfirlitssýningu á verkum föður hennar sem verður haldin á fjölskylduheimilinu, Víðihlíð 12, næstkomandi laugardag klukkan 16:00 og er opin öllum áhugasömum. Sýningin stendur aðeins í einn dag. „Pabbi var veikur lengi áður en hann lést og maður vissi svolítið hvað var að fara að gerast. Hann dó 2020, á Covid tímum, og það var ekki hægt að halda hefðbundna jarðaför og erfidrykkju. Mamma sagði þá að við gætum minnst hans seinna með ljósmyndasýningu. Svo leið tíminn, segir Vala Rún og bætir við: „Pabbi var ljósmyndari sem vann innan listageirans, vann mikið með listamönnum og var mjög fjölhæfur. Hann hefði orðið sjötugur 22. október síðastliðinn og tímamótin ýttu okkur svolítið áfram í að láta verða af sýningu. Við höfðum aðeins miklað þetta fyrir okkur, mamma var með ákveðinn sal í huga en svo small allt þegar mamma stakk upp á því að halda sýninguna bara heima í Víðihlíðinni.“ Magnús Reynir var afkastamikill ljósmyndari og listamaður.Aðsend Vala var þriggja mánaða þegar hún flutti á æskuheimili sitt þar sem móðir hennar býr enn. Húsið er stór hluti af fjölskyldunni sem hefur fagnað fjölda tímamóta þar. „Mamma og pabbi giftu sig heima, við systkinin vorum skírð heima og við elskum öll þetta hús. Því sagði mamma að það væri alveg í okkar anda að halda sýninguna heima. Pabbi var með stúdíó heima og myrkraherbergi í kjallaranum fyrir framköllun þannig að heimilið var í raun stór hluti af honum sem listamanni.“ Magnús Reynir vann mikið heima í Víðihlíðinni og er vel við hæfi að yfirlitssýningin verði haldin þar.Aðsend Auðvitað mjög persónulegt Magnús skildi eftir sig gríðarlegt arkíf af verkum og hefur því mikill tími farið í undirbúning. „Mamma er búin að hreinsa stofuna alveg, taka öll listaverkin af veggjunum og móta svolítið hvað það sé sem við viljum sýna. Við erum nokkur saman að undirbúa þetta og auðvitað er þetta mjög persónulegt, mamma er að opna heimilið sitt. Þetta verður svolítil yfirlitssýning á öllum hans verkum, með blöndu af persónulegum fjölskyldumyndum við alls kyns önnur verk.“ Magnús Reynir tók mikið af portret myndum og alls kyns myndir af fólki á sínum ferli.Magnús Reynir Jónsson Fjölskyldan hefur haft mjög gaman að því að vinna að þessu saman. „Þegar pabbi byrjaði þá var allt handunnið á pappír og það er svo mikið af fisískum verkum frá honum sem hann hefur framkallað á pappír, handskrifað á og skilið svolítið áþreifanlega eftir. Hann fór í gegnum alls konar tækninýjungar á sínum ferli, sem var mjög fjölbreyttur og það lýsti honum vel.“ Magnús Reynir gerði meðal annars ljósmyndaseríuna Fossar í firði sem hann vann með Birgi Andréssyni. Magnús Reynir Jónsson Maggi millimeter Vala Rún segir að hann hafi oft verið kallaður Maggi millimeter vegna nákvæmni sinnar í starfi. „Hann hafði rosalega sterka sýn og sitt einkenni á öllu og vissi upp á hár hvernig hann vildi hafa hlutina. Mamma er búin að fara í gegnum filmur og prent undanfarin ár og nú var einhvern veginn rétti tíminn til að gera eitthvað með þetta. Tímamótin spila líka inn í, að hann hefði orðið sjötugur núna, og sömuleiðis eru margir sem hann þekkti á lífsleiðinni búnir að vera að spyrja hvað hafi orðið um öll verkin hans. Í seinni tíð vann pabbi mikið í auglýsingum og hafði ekki sett upp mikið af sýningum í seinni tíð.“ Feðginin Vala Rún og Magnús Reynir.Aðsend Fjölskyldan ætlar sömuleiðis að vera með prent til sölu á sýningunni sem fólk getur tekið með sér heim. „Það eru margir sem tengdust honum að einhverju leyti spenntir að sjá þetta, allt frá vinum mínum sem muna eftir honum frá því þau voru lítil yfir í gamla kollega. Þetta verður góð samvera, í staðinn fyrir að halda afmæli þá fögnum við arfleifð hans á skemmtilegan hátt.“ Það hefur verið viðamikið verkefni að fara yfir allt arkíf Magnúsar Reynis.Vísir/Anton Brink Verðmætt að kynnast nýjum hliðum föður síns Vala Rún segir líka ómetanlegt að fá að kynnast föður sínum betur sem listamanni. „Það er allt öðruvísi og ótrúlega skemmtilegt fyrir mig núna sem fullorðinn einstaklingur að skoða þessi verk. Hann var frábær pabbi og ég man svo vel eftir honum í tökum og að vinna alls kyns verkefni en ég fattaði samt ekkert hvað hann var að gera. Ég er svolítið að uppgötva hann á annan hátt núna, við systkinin erum bæði í skapandi bransa og það er svo kúl að sjá hvað hann gerði mikið af flottum og skemmtilegum verkum. Ég fæ að upplifa hann núna sem ljósmyndarann og listamanninn sem maður skildi ekki sem barn og kann svo vel að meta í dag,“ segir Vala Rún brosandi en hún hefur lengi unnið sem framleiðandi og tekur við stöðu verkefnastjóra hjá Iceland Innovation Week að loknu fæðingarorlofi. Davíð Steinn er líka 21 árs í dag og vinnur núna sem hönnuður hjá Coppermine. „Þetta ferli hefur verið mjög gefandi fyrir hann og hann var ótrúlega peppaður að gera til dæmis plakatið fyrir sýninguna. Þetta hefur verið skemmtilegt og gefandi fyrir okkur fjölskylduna og það er verðmætt að fá að sýna fólki smá brot úr þessari listrænu arfleifð hans,“ segir hún að lokum. Systkinin Vala Rún og Davíð Steinn ásamt föður þeirra Magnúsi Reyni.Aðsend Hér að neðan má lesa stutta yfirferð á ferli Magnúsar úr fréttatilkynningu: Magnús Reynir Jónsson, ljósmyndari. (22.10.1956 – 28.08.2020) „Magnús byrjaði að kynna sér heim ljósmyndunar þegar hann bjó sem unglingur 13 ára gamall á Siglufirði. Hann vann í þessu með vini sínum Róberti Guðfinns. Fljótlega voru þeir komnir með aðstöðu í þvottahúsinu heima hjá Magnúsi, skápur var notaður til að þurrka filmur, þvottasnúrur fyrir pappír og fjárfest í pappírspressu. Til að kynnast faginu höfðu þeir erlendar fagbækur og tímarit, þannig komust þeir í snertingu við fagið og gerðu ýmsar tilraunir með mismunandi filmur, pappír og framköllunarefni. Ýmislegt var lagt á sig til að fjármagna áhugamálið, enda pappír, filmur og annað efni dýrt. M.a. tóku þeir myndir í nafnskírteini fyrir bæjarbúa þar sem engin ljósmyndastofa var í bænum. Magnús lagði ljósmyndun fyrir sig og fór í háskólanám til Bretlands í ljósmyndun í Bournemouth Poole College of Art & Design og útskrifaðist þaðan með BA í ljósmyndun árið 1984. Magnús var mjög fjölhæfur ljósmyndari. Hann vann sem blaðaljósmyndari m.a. fyrir Helgarpóstinn og Húsfreyjuna, við auglýsingamyndatökur fyrir hin ýmsu fyrirtæki og auglýsingastofur, m.a. Ikea, NTV og Nýherja, hann var ljósmyndari á setti í kvikmyndum m.a. Kaldaljós (Íslenska kvikmyndasamsteypan 2004) og „The One Who Made It Rain“ (Vala kvikmyndir ehf. 2011), hann tók fjölskyldumyndir og mannlífsmyndir (Seyðisfjarðarserían) og á seinni árum vann hann töluvert með myndlistarmönnum. Áhugi hans lá í mannlífsmyndum, Still’s, Pin hole og Camera obscura. Sýningin Allt í lagi bless opnar á laugardaginn klukkan 16:00. Samstarf við listamenn: Magnús vann töluvert með listamönnum. Mest vann hann með Birni Roth fyrir Dieter Roth estate, með og fyrir Birgi Andrésson og fyrir Pétur Magnússon. Magnús var meðlimur í Dieter Roth Academy frá stofnun og var síðar skráður prófessor í henni.“
Ljósmyndun Myndlist Menning Sýningar á Íslandi Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Hlátrasköll hjá heitum hönnuðum Hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Í fyrsta sinn utan Úkraínu Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Hilmir Snær svarar gagnrýnendum „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Tímamót hjá Árna Má Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Eva Björg verðlaunuð í Frakklandi Stella í orlofi á stóra sviðið Menningarsprautur í hvísluleik Kát á kynfræðslukarnivali Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Ástfangin pör á Djöflum Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Sjá meira