Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 13:59 Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs, og Þorvaldur Davíð Kristjánsson, fulltrúi Viðreisnar í ráðinu. Rúnar segir ætlunina að efla bókasöfn borgarinnar og gera þau að meira aðdráttarafli fyrir börn og ungmenni. Vísir/Vilhelm Í menningarráði Reykjavíkur hefur verið lögð fram tillaga um að fara yfir rekstur Borgarbókasafnsins og kanna hvernig nýta megi fjármuni þess betur. Meðal þess sem tillöguflytjendur vilja skoða er hvort veita megi sambærilega eða betri þjónustu með færri útibúum og samnýtingu við skólabókasöfn.
Tillagan kemur frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar og var tekin fyrir á fundi ráðsins á miðvikudag, 21. október. Afgreiðslu hennar var frestað og engin ákvörðun hefur verið tekin um fækkun útibúa. Rúnar Freyr Gíslason, formaður menningarráðs, segir hugmyndina að baki tillögunni vera að efla bókasöfnin. Skoða þurfi hvernig þjónustan sé í dag og hvort hægt sé að gera betur. „Tillagan gengur út á að kanna hvort hægt sé að gera hlutina betur. Við erum að kynna okkur málin og viljum rýna í hvernig þjónustan er núna og hvort hægt er að bæta hana.“ Vilja höfða til barna og ungmenna Rúnar segir meirihlutann vera í sóknarhug þegar kemur að skólakerfinu, lestri og læsi. Þess vegna vilji þau efla bókasöfnin, skoða alla möguleika og verja fjármunum þar sem þeir skipti mestu máli. „Við ætlum að kanna hvort hægt sé að nútímavæða söfnin og gera þau að alvöru aðdráttarafli, ekki síst fyrir börn og ungmenni.“ Sameining geti bætt þjónustuna Rúnar telur orðalagið um mögulega fækkun rekstrareininga hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum. „Það sem hefur kannski strokið einhverjum vitlaust er setningin um að við ætlum að kanna hvort við getum tryggt sambærilega eða betri þjónustu með færri rekstrareiningum eða breyttu fyrirkomulagi.“ Hann segir sameiningu rekstrareininga stundum geta haft mjög góð áhrif á bæði þjónustu og aðgengi. „Það er ekkert í þessari tillögu sem segir að við ætlum að minnka þjónustuna, heldur þvert á móti ætlum við að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar. Það er ekki vanþörf á.“
Borgarstjórn Reykjavík Menning Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Bókasöfn Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Sjá meira