Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Birgir Olgeirsson skrifar 23. október 2026 12:41 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Fjórar vikur sem aðilar gáfu sér til að ná samningi við Icelandair eru liðnar án niðurstöðu. Vísir/Anton Brink Fjögurra vikna frestur sem Icelandair og flugvirkjar gáfu sér til að ná nýjum kjarasamningi rann út á miðvikudag án þess að samningar næðust. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en búist er við óformlegum samtölum í næstu viku.
Samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands funduðu síðast fimmtudaginn 15. október. Nú er verið að meta mögulegar leiðir til að ná samkomulagi. Ríkissáttasemjari er með drög að innanhússtillögu en ekki hefur verið talið tímabært að leggja hana fram. Ekki er farið að huga að atkvæðagreiðslu meðal flugvirkja um frekari verkfallsaðgerðir. Flugmenn funda aftur næsta miðvikudag Enn er einnig ósamið í kjaradeilu Icelandair og flugmanna. Aðilar funduðu á miðvikudag, 21. október, en viðræðurnar hafa ekki skilað árangri. Næsti fundur í þeirri deilu hefur verið boðaður miðvikudaginn 28. október. Verkfallinu aflýst eftir að ríkisstjórnin boðaði lög Fjögurra vikna viðræðutímabilið í deilu flugvirkja hófst eftir að verkfalli þeirra var aflýst 23. september. Verkfallið hafði þá staðið í um ellefu klukkustundir, frá miðnætti fram undir hádegi. Ríkisstjórnin hafði þann morgun boðað lagasetningu til að stöðva aðgerðirnar. Áður en til þess kom náðu Icelandair og Flugvirkjafélagið samkomulagi um að aflýsa verkfallinu og nýta næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna undir stjórn ríkissáttasemjara. Í sameiginlegri yfirlýsingu aðila var markmiðið að ljúka gerð nýs kjarasamnings á tímabilinu. Því lauk á miðvikudag, 21. október, án niðurstöðu. Tæpur hálfur milljarður í tekjutap og aukakostnað Í uppgjöri Icelandair fyrir þriðja ársfjórðung, sem birt var í gær, kemur fram að verkfallið hafi haft neikvæð áhrif á afkomuna upp á fjórar milljónir Bandaríkjadala, að 486 milljónir króna. Þar af voru tapaðar tekjur metnar á 2,8 milljónir dala, 340 milljónir króna. Aukinn kostnaður vegna aflýstra flugferða nam 1,2 milljónum dala, 145,9 milljónum króna. Krónutölurnar eru reiknaðar á miðgengi Seðlabankans 22. október. Hagnaður á sumarfjórðungi en spá tapi fyrir árið Icelandair hagnaðist um 96,7 milljónir dala, 11,8 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi þegar tekið hafði verið tillit til alls kostnaðar, þar á meðal vaxta og skatta. Tekjur námu 655 milljónum dala, 79,6 milljörðum króna og hafa aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi. Horfur fyrir lok árs eru hins vegar erfiðar og hátt eldsneytisverð íþyngir rekstrinum. Félagið býst við að tapa á bilinu 20 til 30 milljónum dala, 2,4 til 3,6 milljörðum króna, á árinu í heild, áður en tekið er tillit til vaxta og skatta.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Sjá meira