Leik lokið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika

Theódóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk og varð markadrottning deildarinnar. Hér fagnar hún einu af mörkum sínum.
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir skoraði fimm mörk og varð markadrottning deildarinnar. Hér fagnar hún einu af mörkum sínum. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Breiðablikskonur sýndu hverjar eru langbestar í Bestu deild kvenna eftir 6-2 stórsigur á silfurliði FH í lokaumferðinni í kvöld. Þetta var kvöld markadrottningarinnar Hrafnhildar Ásu Halldórsdóttur sem skoraði fimm mörk þar af fernu í fyrri hálfleik.

Blikar enda því mótið níu stigum á undan FH-liðinu og Hrafnhildur Ása er langmarkahæst í deildinni með nítján mörk eða sex mörkum meira en næsta kona.

Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sjötta mark Blika eftir að hafa komið inn á fyrir Elísu Viðarsdóttur sem fékk heiðursskiptingu í sínum síðasta leik. Hinar ungu Hrönn Haraldsdóttir og Hafrún Birna Helgadóttir skoruðu mörk FH.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira