Lífið

„Ég var al­veg skelfingu lostinn“

Jakob Bjarnar skrifar
Tolli Morthens stiklar á stóru og fer yfir feril sinn sem er ævintýralegur.
Tolli Morthens stiklar á stóru og fer yfir feril sinn sem er ævintýralegur. vísir/anton brink

Myndlistarmaðurinn Tolli Morthens skefur ekki af því frekar en fyrri daginn. Hann skautar yfir litríkan ferilinn, segir af Íkarusi og samstarfinu við Megas, því að hann hafi ekki haft taugar í að feta glæpabrautina og segist hafa orðið skelfingu lostinn þegar hann greindist með krabbamein.

Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefur látið sig andlegu málin varða.

„Ég er í jóga nidra og heilunarjóga. Þetta er svona jóga þar sem verið er að fara meira inn í tilfinningakerfin en endilega teygja á manni. Það hentar mér mjög vel, ég er mjög ánægður með þetta.“

Karlmennskubragur að eiga bokku í landlegu

Tolli neitar því ekki að hafa látið sig andlegu málefnin varða í gegnum tíðina.

„Það er uppskera. Fyrst eru það ár mistakanna, ef svo má segja. Eins og sagt er í andlega bransanum, „no mud, no lotus“. Fyrst er hlaðið í jarðveginn, með ævintýramennsku, mistökum, hroka og öllu því sem prýðir góða menn. 

Klippa: Í bóli Bjarnars - Tolli

Svo rekst maður á vegg og gefst upp, 100 prósent gefst maður upp og viðurkennir vanmátt sinn eins og sagt er og tekur inn andlega leiðsögn. Og þá byrjar þetta ferðalag sem hefur staðið nú sleitulaust í 31 ár.“

Það er dágóður tími. Var þetta svæsin drykkja á þér?

„Ekki meiri en svo að ég sá mig aldrei sem alkóhólista. Ég sá mig bara sem svona gleðigjafa og snillimenni. En, þú veist, íslensk hefð er fyrir því að ef þú vilt vera maður með mönnum, að ég tali nú ekki um ef þú vilt tilheyra andlegu deildinni, þá þarftu að drekka dálítið.“

Tolli segir að sem ungur hafi þetta verið mikið „rock and roll“, það að verða sér úti um áfengi um helgar í skóla.

„Svo taka við vertíðarárin og þá var það bara karlmennskubragur á því að eiga bokku í landlegu.“

Og sturta vel í sig?

„Já, já. En það er yfirborðið á þessu. Svo þegar skyggnst er á bak við tjöldin fer ég að skoða þessa sögu mína og spyr: Hvað kom fyrir þig, Tolli, hvað gerðist? Og þá erum við komnir á aðeins dýpri mið og þá á ég það sameiginlegt með langflestum þeim sem eru að díla við fíkniójafnvægi. Á bak við þetta fólk og mig er áfallasaga. Og eins og við höfum heyrt í samfélagsorðræðunni undanfarin allavega fimm ár þá eru áföll og tráma orðin mjög viðurkennd í orðræðunni, viðurkenndari en fyrir einhverjum 10, 15 árum. Þá voru það jaðarpælingar.“

Íkarus svolítið eins og Grateful Dead

Að sögn Tolla sýna rannsóknir, tölfræði og akademísk rýni að á bak við ójafnvægi sem leiðir til fíkniójafnvægis eru áföll.

„Og ég kem úr fjölskyldu sem var að glíma við mikil áföll út af alkóhólisma. Mamma drakk nú aldrei en hún var gríðarlega öflugur aðstandandi. Pabbi var alkinn. Eins og þegar maður skoðar þeirra sögu þá eru þau að koma úr svipuðum aðstæðum. Þannig að þetta er kynslóðaharmurinn sem velkist áfram. Ef það á ekki að slíta þessa keðju þá tekur næsta kynslóð við keflinu og þetta heldur svona áfram.“

En eruð þið ekki að slíta keðjuna núna? Hvað voruð þið, fimm bræðurnir?

„Jú, hver á sinn hátt höfum við verið að gera það. Við höfum getað komið með inn í þá kynslóð sem tekur við af okkur í það minnsta viljann; við höfum tekið inn orðræðuna, hugtökin og erum fyrirmynd í þessu – að það er ókei að gefast upp. 

Tolli fór sínar eigin leiðir í myndlistinni. Það var ekki alltaf auðveld leið en í dag er hann sáttur; málverkið hefur reynst hafa þerapískt gildi fyrir hann. Þetta gat ekki verið öðru vísi.vísir/anton brink

Mín börn hafa alist upp við það að sjá til mín. Ég kynntist eiginkonu minni í dag, henni Gunní, í 12 spora samtökunum og við höfum svona verið samstiga í þessu, það er þeirrar göngu að finna út úr því og vinna bug á fíkniójafnvægi og afleiðingum þess. Og síðan að fara að skoða hvaðan við erum að koma og hvað ertu með innra með þér sem er lykillinn að því að verða hamingjusamur.“

Við komum betur að þessu á eftir en sveiflum okkur aðeins yfir í Íkarus, þá mögnuðu sveit.

„Jú, við vorum með tvær plötur, önnur var The Boys From Chicago, sem var svona útskriftarverkefni mitt úr Myndlista- og handíðaskólanum. Og síðan svona kollektíft verk, Íkarus. Þetta var svona pönkrokk. Einhver sagði að Íkarus hefði verið dálítið eins og Grateful Dead. Allir að setja eitthvað í pottinn. Og þó að það hafi verið þarna þetta stóra nafn Megasar með okkur, og hann tók alveg sitt pláss, þá voru samt allir að leggja eitthvað til, bæði texta, lög og spil. Þetta var skemmtilegt og lýðræði í þessu.“

Megas tók aðeins of mikið pláss

Einhvern tímann fyrir lifandis löngu sagðirðu mér frá því að Megas hefði ekki bara tekið sér pláss heldur svo mikið pláss að hann skemmdi plötuna?

„Já. En ég ber nú ábyrgð á því sjálfur. Ég gat ekki sett honum mörk. Hann var lunkinn í að því að kæmi hann fæti milli stafs og hurðar var hann kominn inn. Við vorum í Myndlistarskólanum og hann hafði ekki gefið út lengi, hann hafði verið í tónbindindi og verið ráðlagt af sínum þerapistum að vera ekki í tónlistinni meðan hann var að jafna sig á því öllu. En ég fékk hann til þess að vera með „comeback“ á þessari plötu hjá mér og átti von á einum tveimur lögum eða einhverju. 

Tolli dró Megas á flot og það átti eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar í för með sér.vísir/arnar

Ég held að hann hafi komið með sjö lög. Ég held að það hafi verið 20 og eitthvað lög á plötunni sem þýddi að skurðurinn, en þetta er bara vínill, verður miklu grynnri. Við fáum ekki sömu hljómgæði. Þannig að þetta kom niður á tóngæðunum. En þetta var helvíti skemmtilegt.“

Ég las það hérna á Glatkistunni að þú hafir verið um það bil 15 ára þegar Bubbi, yngri bróðir þinn, kenndi þér á gítar?

„Já. Ég man ekki eftir því en það getur hins vegar vel verið. Bubbi var farinn að læra á gítar 10 eða 11 ára, hann var barnungur þegar nágrannakona okkar sem spilaði á gítar tók hann í fyrstu vinnukonugripin. Svo byrjaði maður að pikka þetta upp sjálfur einhverjum árum seinna. Þá held ég að Bubbi hafi verið bara orðinn býsna laginn við þetta. Já. Og ég er ekki frá því að þetta sé bara rétt, að ég hafi náð í fingrasetningu á þremur gripum þarna.“

Túri fór fyrir bræðrunum í róttækninni

Og þú átt þinn skerf í höfundaverki Bubba?

„Sko, ég held ég hafi aldrei samið texta fyrir hann en hann hefur fengið einhverja texta frá mér úr einhverju sem ég hafði samið. Ég held að mín áhrif hafi nú kannski verið fyrst og fremst hugmyndafræðileg. Ég var auðvitað alinn upp sem aktívisti bara frá 15 ára aldri og í Fylkingunni.“

Já, það kemur bara með móðurmjólkinni nánast?

„Já, nánast. Móðir mín hneigðist til róttækra viðhorfa en henni líkaði ekki pólitísk umræða á heimilinu. Hún var dálítið brennd af því frá sínum föðurhúsum þannig að hún vildi ekki að það væri verið að þrasa um pólitík heima. En þegar 68-bylgjan gengur yfir kemst fólk ekki hjá því að ræða pólitík á heimavígstöðvum.“

Og þú verður grjótharður vinstrimaður?

„Túri bróðir minn fór fyrir okkur bræðrunum í því. Hann var hetja í okkar augum, var laminn með kylfu í Þorláksmessuslagnum, kom alblóðugur heim, lét búa um sárið og svo bara aftur niður í bæ að slást við lögguna. Maðurinn var hetja. Ég var bara á höttunum eftir einhverju stuði. 

Tolli hefur leitað talsvert í austurlenska heimspeki og trú. Þarna að hugleiða við búddalíkneski.vísir/anton brink

Og þegar ég komst að því að Fylkingin á Tjarnargötu 20 væri svona „base camp“ fyrir allt það heitasta í Reykjavík á þessum tíma, skáldin, stúdentarnir, námsmanna-energí-ið og það var sjálfgefið fyrir mig að reyna að tilheyra því. Og það tókst. Þarna lærði ég helling, ekki síst þetta, að einstaklingurinn getur breytt samfélaginu en ekki bara það að samfélagið geti breytt einstaklingnum.“

Endasleppur glæpaferill

Tolli segir þetta skipta máli.

„Ég hef alltaf horft á þjóðfélagið sem fyrirbrigði sem hægt er að breyta og móta. Við getum gert það með samtakamætti og með eldmóði getum við haft áhrif á samfélagið. Þannig að ég hef aldrei litið á mig sem fórnarlamb samfélagskringumstæðna. Ég veit að ef fólk vill breytingar þá getur það náð því fram.“

Einmitt. En þegar þú ert í þessu slarki, lentirðu þá aldrei í kasti við lögin eða hvernig var það?

„Nei, nei eða þú veist. Ég er ekkert að skvíla neinu – ef einhverjir glæpir hafa verið framdir þá eru þeir auðvitað fyrndir. En, nei, ekkert meira en gerist og gengur. Ég var auðvitað eitthvað að fást við að smygla inn stuði fyrir neysluhópinn heima en ég hafði aldrei taugar í að verða glæpamaður. Ég var að smygla til Svíþjóðar með einum vini mínum. Það hækkaði svo verðið frá Köben yfir til Malmö.“

En þar voru þeir böstaðir af öðrum sem voru harðari í horn að taka en Tolli og hans félagi. 

Tolli hugleiðir. Hann átti snarpan tónlistarferil en ákvað þá, eftir tónleika Ikarus í Laugardalshöll, að segja komið gott af afskiptum sínum af tónlist.vísir/anton brink

„Það dugði mér alveg. Ég man hugsaði þá: Ég er ekki að fara í þennan bissness. Ég hafði engar taugar í þetta. Á sama tíma er strákur sem bjó með okkur í Ljónahúsinu, Færeyingur, handtekinn bara í sömu vikunni og við vorum að fara yfir og hann fékk tvö ár í fangelsi með svipað magn og við fórum yfir með. Og ég hugsaði: Nei, andskotinn, ég nenni ekki að standa í þessu maður. Þannig að minn ferill sem einhver glæpagaur stoppaði snarlega þar og þá.“

En aftur að Íkarusi þegar þú dregur Megas á flot. Hvernig var það samstarf?

„Það var bara mjög skemmtilegt. Megas var á þessum tíma edrú eða svona semi-edrú, hann hefur kannski fengið sér jónu og jónu en hann var mjög skemmtilegur í samskiptum. Það var húmor og ekkert vesen á honum. Hann var þá í sambúð með ágætri konu, var með börn, fjölskyldumaður á þessum tíma og mjög frjór. Þannig að það var auðvelt að hafa gaman af honum. En ótrúlega sérvitur maður.“

Ægileg verkun á Megasi en skrifborðið eins og hjá skurðlækni

Hvernig lýsti þessi sérviska sér?

„Ég bjó með honum um tíma í kommúnu hérna í bænum og þá var hann ekki á eins góðum stað. Þetta er áður en Megasardæmið kemur til og var þegar hann var að vinna að plötunni Drög að sjálfsmorði með tónleikunum þarna í Hamrahlíð. Og þá var óreglan mikil, hann gerði á sig og lá bara í stigagöngum alveg ósjálfbjarga. Bara svakaleg verkun á honum. Og inni í herbergi sem hann var í var ekki næs. En skrifborðið, þar sem hann skrifar nóturnar og færir til bókar texta sem hann er að vinna, var eins og skrifborð hjá skurðlækni. Það var svoleiðis 100 prósent allt upp á tíu. Alveg sama hvaða ástand var á honum. Hann var alltaf alveg skýr þarna.

Jú, hann var víst þekktur fyrir það að halda alltaf svona sínum textum og nótum til haga. En hann var, skilst mér, afar ósáttur við þessa slaufun sem hann verður svo síðar fyrir?

„Ég var ekki í neinum samskiptum við hann á þeim tíma og hef ekki hugmynd um við hvað hann var sáttur eða ósáttur. En, jú, það er oft þannig að þeim sem er slaufað eru ekkert alltaf sáttir.“

En þú segir að Boys from Chicago hafi verið útskriftarverkefni? Hvernig virkar það?

„Það virkaði vel. Ég var í deild í Myndlistaskólanum sem hét Deild í mótun og seinna Nýlistadeild. Eða hvort hún endaði með því nafni en þarna var maður að læra allt annað en málverk. Endalaust að læra um gjörninga og það sem hét „non art“ eða engin list eða eylist, póstlist, það var endalaust verið að vinna með hugmyndalistina. Manni fannst málverkið vera bara svona einhver borgaraleg arfleifð.“

Tolli var rekinn úr Myndlistar- og handíðaskólanum og fullyrti þá við skólastjórann að hans yrði minnst fyrir nákvæmlega þann gjörning í listasögunni.vísir/anton brink

Og Tolli nýtti tímann í Nýlistadeildinni til að vera pólitískur aktífisti í baráttu fyrir farandverkafólk. 

„Ég hafði notað aðstöðuna í skólanum til að búa til póstera, búa til plaköt og virkjað námið beinlínis í að vera pólitískur aktífisti. Það var alveg pláss fyrir það. Og þegar kom að því að gera útskriftarverkefni þá samdi ég við hann Ingólf Arnarson, sá meistari sem var yfir Nýlistadeildinni, eða sá sem fylgdi minni útskrift úr hlaði og það var bara samþykkt að svona hljómplata mætti alveg vera tilheyra nýlistinni. Þetta var bara blessað af kennurum og öðrum þarna.“

Var rekinn úr Mynd og hand

Þetta gerðist þrátt fyrir að Tolli hefði á þeim tíma verið rekinn úr skólanum.

„Já, í þessari períódu af Einari Hákonarsyni skólastjóra sem var ekki sáttur, né margir kennarar, við mig. Ég stóð uppi í hárinu á þeim. Ég hafði verið á loðnubát eitt sumarið og svo kem ég í skólann. Það var einn mánuður eftir sem hefði getað gefið góðar tekjur. Svoleiðis að ég samdi við deildarkennara um að ég væri bara í skólanum á sjónum og svo skilaði ég inn verkefni sem var unnið með dýptarmæli skipsins. Þeim leist vel á þetta. En ekki skólastjóra og öðrum hefðbundnum kennurum. Þeim leist bara ekkert á þetta og fannst ég vera að brjóta þarna allar reglur sem skólinn hafði.“

Misnota þá frjálsræðið sem þar ríkti?

„Já, þú átt að mæta í skólann. Ég er 24 ára gamall og var ekkert þarna til að læra stundvísi. Ég þurfti ekkert að læra það. Ég get uppfyllt allar skyldur skólans um listrænar kröfur ef því er að skipta. En, nei, ég komst ekki upp með þetta. En svo var sagt að ég mætti mæta næsta ár, sem ég gerði. Ég skil alveg valdið að vilja hafa stjórn á manninum. Svo leyfði ég mér að segja við skólastjórann: „Já, þín verður minnst í listasögunni fyrir að hafa rekið mig úr skóla.“ Það er svona lýsandi fyrir attitude-ið,“ segir Tolli og hlær.

Tolli lýkur sem sagt sínu námi með plötunni The Boys from Chicago.

„Nafnið á henni vísar til þessara hagfræðinga, Friedmans og frjálshyggjupostulanna. Samt var mynd af Brezhnev utan á plötuumslaginu.“

Setti punkt við afskipti af tónlist

Ég man eftir Ikarus-tónleikum í Laugardalshöllinni þar sem þú varst mjög herskár?

„Mjög herskár. Það má segja að þar hafi ég náð toppnum á ferlinum og ákvað að þar væri settur punkturinn yfir i-ið, ég hættur og skipti mér ekkert af tónlist eftir þetta.“

Tolli hafði unun af því að teikna og mála sem barn og unglingur en var svo gripinn sjálfshöfnun og henti öllum teikningunum í tunnu.vísir/anton brink

Þú einhendir þér í myndlistina en það sem mér finnst merkilegt er, miðað við þennan bakgrunn í námi, að þú ferð að mála, sem þó hafði verið eins konar tabú í skólanum. Hvernig gerist þetta?

„Ég þarf aðeins að kíkja til baka og skoða mig sem barn og ungling. Það má segja að mín náðargáfa hafi verið að teikna og mála. Ég var í þessu öllum stundum, þetta átti hug minn allan og ég var einn af þessum krökkum sem voru alltaf með tíu í myndlist í barna- og gagnfræðaskóla. Við vorum nokkur svona semí séní. Já. Svo gerist það einhvern tímann á unglingsárum að ég verð fullur af sjálfshöfnun og tek allt sem ég hef gert og hendi því öllu í tunnu og ætla aldrei að snerta þetta aftur.“

Engu að síður endar Tolli í myndlistarskóla en þar er hann ekki til í að mála og ekki teikna.

„En svo gerist það að nýja málverkið skíst fram á stóra sviðið í Evrópu og Bandaríkjunum og kemst upp á hæð til okkar í Nýlistadeildinni. Allt í einu var komið leyfi til að mála. Nú þótti það bara róttæk athöfn!“

Ómstrítt málverk eins og Björn Th. hefði sagt

Myndlistin er beggja handa járn að sögn Tolla. Þar er allt órætt og menn verða að giska á hvað er í gangi. Þar eru óskrifaðar reglur og enginn getur sagt til um hver slær í gegn. Allir telja sig vita hvað má og hvað ekki. Það skiptir máli hvað kemur illa út fyrir ferilinn og hvað ekki, það skiptir máli við hvaða opnun menn eru og hverja ekki.

„Það var ekki smart að mála en þarna kemur málverkið sem sagt fram sem andóf gegn konseptlistinni, andóf gegn prófessorunum og andóf gegn því sem var ríkjandi. Málverkið lifir á þessum forsendum í svona tvö til þrjú ár og þá er það eiginlega yfirtekið aftur af konseptlistinni eða hugmyndalist.“

Expressionisminn sem kom þá fram gekk hratt yfir.

„Fyrst var það töff og kúl og pönkað málverk en svo var það bara búið. En þetta sat í mér. Ég fór svo til Þýskalands eftir dvöl mína í Myndlistaskólanum og er þar í tvö ár. Þar verð ég fyrir miklum áhrifum af þýska skólanum sem var kraftmikið ómstrítt málverk, eins og Björn Th. hefði sagt.“

Ég var einmitt hjá Birni Th. í listasögu. Það var stórkostlegt.

„Mikill performans.“

Ég gæti sagt þér margar sögur af því.

„Já, þær eru til. Ég held að þær hafi ekki verið skráðar en þær ganga manna á milli.“

Georg Guðni fór alltof snemma

En í myndlistinni er talsverð díalektík. Athyglisvert að málverkinu hafi, á þeim tíma sem þú ert þar, verið nánast útskúfað og varla til?

„Jú, engu að síður erum við nokkur sem stígum inn á sviðið sem málarar, sem myndlistarmenn sem mála og lifðum af breytingar og höfum haldið áfram. En það var einn myndlistarmaður í málaradeildinni sem kom gagngert til þess að læra að mála og gera það vel. 

Tolli segir að Megas hafi verið sérvitringur, það gat verið hroðaleg verkun á manninum en skrifborðið hans var alltaf eins og hjá skurðlækni.vísir/anton brink

Hann er klárlega einn af upphafsmönnum endurkomu íslenska landslagsmálverksins þó svo að menn hafi tilhneigingu til að reyna að setja verk hans í eitthvað konseptform, en það er Georg Guðni. Hann fór allt of snemma og var frábær myndlistarmaður.“

Hans myndir eru svipaðar, þokukenndar landslagsmyndir, sem gætu þá verið útsettar fyrir konsepthugmyndum?

„Marglaga mystík. Það er auðvitað aðferðafræði hans við að mála sem gerir það að verkum að frásögnin af fjallinu leysist dálítið upp í mystíkinni sem verður svo til í handverkinu. En þetta kemur upp í huga mér vegna þess að þegar við segjum sko: „Málverkið var dautt og það var ekki málað“, þá er það auðvitað ekki rétt. Það var fólk að mála þarna. En yfirleitt þegar maður er svona róttækur og finnst maður hafa á réttu að standa sér maður ekkert heiminn fyrir utan sína búbblu.“

En þú sem listamaður, sérðu þig þá sem part af einhverri ákveðinni bylgju eða finnst þér þú standa einn?

„Þetta er auðvitað orðin löng saga. Þetta er ferill sem spannar bara um hálfa öld. Og ég kem inn í málverkið á þessum forsendum sem nýja málverkið hafði gefið upp, sem mjög kraftmikið, expressjónískt málverk. 

Tolli segir tilveruna smám saman að snúast meira um það hvað er að gerast í þínu innra landslagi og þá verður ytra landslagið dálítill svona spegill á það.vísir/arnar

Þetta var bara svona eins og pönkmúsík. Þú ert ekki að sýna að þú sért flinkur eða kunnir neitt, heldur láttu þetta vera bara svona spontant högg og ögraðu eins og þú getur. Málaðu helst bara með skipamálningu eða afgangsmálningu frá húsamálara og forgengileiki efnanna var í heiðri hafður. Þetta átti ekkert að endast. Og ef þú varst að búa þig undir sýningu þá áttu ekki að byrja að mála fyrir sýninguna nema viku áður en þú opnar. Annars ertu bara pjattrófa. Maður vildi ekkert vera þannig. Nei.“

Landslagsverkin reynast þerapísk leið fyrir Tolla

En þegar Tolli tekur sér pensil í hönd þá hittir þessi leið í kjarnann í honum.

„Þá finn ég bara þetta er leiðin, þarna vil ég vera. Það var ekkert aftur snúið á neinum hugmyndafræðilegum forsendum að ég færi frá málverkinu heldur á málverkið mig alveg. Og þá byrjar þessi þróun smám saman.“

Ferillinn hefst með goðsagnakenndum myndum, minni úr tilveru Tolla sem farandverkamanns.

„Sem sagt landið og þjóðin og fiskurinn og allt þetta fer upp í einhverjar svona Chagall-fantasíur sem ég hafði mjög gaman af að gera. Þetta gekk mjög vel og ég seldi vel mín verk. Það var alveg pláss til að sýna og svo framvegis. Svo fannst mér einn góðan veðurdag ég vera að endurtaka mig um of þannig að ég vendi mínu kvæði í kross og helga mig landslaginu.“

Tolli fann sína hillu og þetta reyndist fullnægjandi vettvangur fyrir hann sem málara.

„Af því að á þessu ferðalagi sem myndlistarmaður þá er ég líka á ferðalagi sem manneskja. Og þá fer tilveran smám saman að snúast meira um það hvað er að gerast í þínu innra landslagi og þá verður ytra landslagið dálítill svona spegill á það hvað ég er að fást við inni í sjálfum mér. 

Tolli hugleiðir reglulega. Hann er í stöðugri þróun. Við listsköpun er hann að næra egóið en það er ekki síður mikilvægur þáttur í lífinu að hjálpa öðrum. vísir/anton brink

Og þá verður það að mála landslag góð þerapísk leið fyrir mig til að finna, endurheimta von og fegurð. Það er dálítið það sem hefur einkennt myndir mínar; það er ljósið, birtan og að gangast við fegurðinni. Sem var mjög erfitt fyrir mig í raun. Það hefur verið erfitt fyrir mig að gangast við sjálfum mér, læra að elska sjálfan mig, læra að standa með mér og læra að finnast ég einhvers virði.“

Fór óhefðbundna leið í myndlistinni

En finnst þér þú hafa mætt einhverjum svona, og þetta finnst mér eftirtektarvert við þinn feril, einhverju svona snobbi af hálfu myndlistarelítunnar – ef svo má að orði komast. Eða það er eins og þú reynir beinlínis að forðast hana. Þín fyrsta sýning þín er niðri á Gúmmívinnustofu, er það ekki?

„Í byrjun var ég bara í þessari bylgju meðal kollega minna af sömu kynslóð. Við skipuleggjum sýningar, við erum að taka þátt í stærri sýningum – sá er tíminn. En síðan má eiginlega segja að ég fari í sjálfskipaða útlegð. Það hentar mér ekki að þurfa að sýna og mála á forsendum annarra og ég gengst alveg við því. Ég gerði samning við sjálfan mig um að ég skyldi lifa á minni myndlist sama hvað það kostaði.“

Þetta kostaði það að Tolli þurfti að sýna ábyrgð.

„Ég fór að fara óhefðbundnu leiðina við að sýna myndlistina, selja myndlistina, taka þátt í samfélaginu á mínum forsendum. Þegar ég horfi til kollega minna erlendis sem voru súperstjörnur sem flugu í þotum, New York og Tókýó; þeir voru kannski með þrjár, fjórar sýningar í einu í þessum borgum. En Björn Th. Björnsson sagði: Þú átt að sýna á þriggja ára fresti. Það var mórallinn hér heima. En ég hugsaði: Nei, ég ætla að sýna þrisvar á ári. Og þá byrjaði ég, í stað þess að fara til Tókýó, að sýna á Akureyri, eða á Hornafirði og svo í Reykjavík. Ég gerði þennan leik algjörlega að mínum.“

Tolli fær friðarverðlaun í Suðaustur-Asíu

Tolli segir að hann hafi ekki uppskorið virðingu kolleganna með þeirri leið sem hann valdi.

„Nei, ég fann alveg fyrir því að mörgum fannst þetta helvíti hrátt hjá karlinum. En, þú veist, það skiptir engu máli vegna þess að aðalatriðið í þessu er að ég hef tekið ábyrgð á mínum ferli og ekki kennt neinum um að eitthvað hafi farið öðruvísi en ég hefði viljað að það færi. Ég hef bara tekið ábyrgð á því sjálfur og vitað að þessi leið myndi stuða. 

Búddalíkneski eru áberandi á vinnustofu listamannsins.vísir/anton brink

Ég hef alveg upplifað það. En í dag er ég mjög sáttur með allan minn feril og ég mjög sáttur með þær móttökur sem ég hef hjá til dæmis í samstarfi við yngri myndlistarmenn og þá kynslóð myndlistarmanna sem eru á sviðinu í dag. Þar er mér vel tekið; þetta fólk hefur gaman af sögu minni og því hvernig ég hef hegðað mér.“

Og samhliða öllu þessu ferð þú að vinna með föngum. Þú færð viðurkenningar, Fálkaorðuna sjálfa og varstu ekki að fá einhverja ægilega fína viðurkenningu úti í heimi?

„Jú, á Filippseyjum. Já, þetta er Gusi Peace Prize. Mikil verðlaun sem eru afhent fólki sem vinnur að mannúðarmálum og hefur gert heiminn að betri stað til að búa á.“

Það er ekkert öðruvísi.

„Þetta er svona þriðja heims,“ segir Tolli og rekur í vörðurnar.

„Eða, maður má eiginlega ekki nota þetta orð lengur, þriðja heims þetta eða hitt, sem er bara söguleg klisja, en þeir eru að vísa í Nóbelinn þarna í Suðaustur-Asíu með þessum verðlaunum. Þetta eru þeirra friðarverðlaun, þeirra mannúðarverðlaun til fólks frá þessum Kyrrahafssvæðum og inni í Afríku. Og þeir eru farnir að tengja sig við Evrópu og finna kandídata sem gætu passað inn í þessa kategóríu. Ég var þess heiðurs aðnjótandi að vera boðin þessi verðlaun fyrir að hafa starfað inni í fangelsunum og hjálpað til við að fólk endurheimti virðingu sína og getu.“

Gamli pönkarinn fær viðurkenningar

Já, það hefur spurst?

„Já, þetta er nú svona eins og með allar sögur, þær eiga sér skrýtna fæðingu. Ástæðan fyrir því að þetta fólk rekst á mig er henni Söru, sem kennd er við Eden, að þakka. Hún er mikill heimsóknarflakkari og á ferðum sínum um heiminn var hún einu sinni stödd í Bútan, í Himalajafjöllum. Og þar hitti hún fyrir fyrrverandi menntamálaráðherra.“

Til að gera langa sögu stutta er hún spurð út í kandídat sem gæti verðskuldað þetta og hún nefnir Tolla. Einhver gögn eru send á milli, nefnd fer í málið og þetta verður úr.

„Ég fór þarna með þriðja manni og tók á móti þessum verðlaunum, sem er gríðarleg viðurkenning fyrir sjálfboðaliðastarfið, ekki bara mitt heldur við erum svo mörg sem vinnum í þessu.“

Það flækist ekkert fyrir gamla pönkaranum að vera verðlaunaður í bak og fyrir.vísir/anton brink

En hvernig er það fyrir gamla pönkarann að vera allt í einu orðinn svona viðurkenndur? Fálkaorðan, út í verðlaunin.

„Jahhh, það er ekkert pönk án viðurkenningar. Ég meina, hvar væri Sex Pistols ef það væri ekki málið?“

En hvernig kemur þetta starf í fangelsunum til?

„Það kemur bara til vegna 12 spora starfs míns inni í fangelsinu. Ég hef verið aktífisti þar í rúm 20 ár og í kjölfar þess starfs hefur orðið til mjög öflug hreyfing fyrrverandi fanga og fólks sem er að vinna að þessu. Alltaf einu sinni í viku fer hópur frá okkur, bæði karlar og konur, á Hólmsheiði og eins á Litla-Hrauni, þannig að þetta er nokkur tugur manna sem er að vinna á bak við þetta.“

Flekaskil milli grasrótarinnar og hins faglega arms

Tolli segir að hann og sá hópur hafi starfað fyrir tvær ríkisstjórnir og í vor leiddi hann starfshóp um úrbætur í fangelsismálum.

„Við skiluðum af okkur ágætisskýrslum, sérstaklega fyrri skýrslan og í kjölfarið stofnuðum við góðgerðarfélagið Bata og Bati rekur núna þrjú úrræði, áfangaheimili fyrir fólk sem er að koma úr refsivörslukerfinu. Við erum í góðu samstarfi við fangelsismálayfirvöld og við Krýsuvík, meðferðarheimilið þar, þannig að við myndum nokkuð þétt úrræði sem virka.“

Það leiðir eitt af öðru í þessum efnum sem öðrum. 

„Það stóð aldrei til að fara í eitthvað svona en þetta verður bara til. Það er eins og maður sé leiddur í gegnum þetta ferli og þegar maður er búinn að fara þarna einu sinni í viku í 15 ár þá fór ég að finna það. Það mun eitthvað gerast. Haltu áfram, þannig að ég gafst aldrei upp. Í dag hefur þetta starf fætt af sér solid batterí sem eru þessi áfangaheimili sem við rekum. Aðferðafræðin við að vinna með fólki sem er inni í fangelsum út af fíkniójafnvægi fyrst og fremst. Jafningjanálgunin er hvað öflugust, það er að segja að þeir sem hafa verið í þessum aðstæðum og náð bata og hluti þeirra hefur ílengst með okkur í starfinu og heldur áfram að starfa inni í fangelsinu. 

Tolla hefur gengið afar vel að feta listabrautina en hann dregur ekki úr því að það er erfitt að vera listamaður, á svo margvíslegan máta.vísir/anton brink

Forstöðumenn húsanna okkar eru fólk sem hefur setið í fangelsum bæði í kvennaúrræðinu og karlaúrræðunum. Þeir sem hafa dvalið í fangelsum eru með forstöðu þar.“

Hvernig stuðar þessi óeining sem nú er innan SÁÁ þig og ykkur? Kanntu einhverjar skýringar á því?

„Mér sýnist þetta vera einhver flekaskil milli grasrótar og svo þess faglega arms sem við tölum um að hafi eina akademíska nálgun, gagnreynda og ritrýnda nálgun á úrræði fyrir fólk í fíknivanda. Þetta er auðvitað bara þróun, það er auðvitað framþróun þegar hægt er að virkja læknavísindin og annað til að grípa fólk, sérstaklega með ópíóíðafíknina og skyld verkefni.“

Sá fíknivandi er að sögn Tolla marglaga og flókinn.

„Mín reynsla er að þegar við erum að takast á við þann vanda með fólkið þá þarf að gera það á heildrænan hátt. Það er ekki hægt að búta niður líffræðilega þáttinn og skilja eftir andlega þáttinn, tilfinningalega þáttinn eða félagslega þáttinn. Þetta þarf allt að vera í harmoníu og þess vegna er þetta svo grátlegt að þessir fulltrúar þessara tveggja sjónarmiða innan SÁÁ skyldu ekki ná að finna taktinn saman án þess að þar halli á neinn í sameiginlegu markmiði.“

Þurfum ekki að hafa áhyggjur af SÁÁ

Við vitum náttúrulega ekkert hvernig þetta allt fer.

„Jú, þetta fer vel.“

Já? Þú ert alveg sannfærður um það?

„Já, já, þetta er allt toppfólk og menn eru ekkert að missa sjónar af markmiðunum. Menn þurfa bara að finna balansinn sinn aftur og finna taktinn og síðan að finna traustið, og áfram gakk.

Jæja, það er þá gott að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu.

„Bara alls ekki.“

Mig langar að spyrja þig út í eitt sem varðar bæði vímuna og listina. Er hægt að skapa listaverk án vímu?

„Já, vel er spurt. Þegar maður lítur yfir hópinn, það er að segja það fólk sem var með manni í myndlistarskólanum og síðan kreðsinn: Það voru ekki margir bindindismenn í þessum hópi. Nei. Fólk fór misjafnlega vel með þetta en langflestir voru að nota eitthvað. 

Er hægt að fremja list án vímu? Tolli hefur velt þessu fyrir sér og segir vanta upp á spurninguna.vísir/anton brink

Og svo ef við horfum yfir goðsagnaheim skálda, myndlistarmanna og svona sénía yfirleitt þá eru margir turnar þarna sem eiga sér ansi svarta sögu í neyslu, drekka sig í hel og sprauta sig í hel.“

Við erum að tala um heila stefnu, til dæmis rómantísku stefnuna, sem hreinlega byggði á þessu meðal annars?

„Já, og bara Beat-kynslóðin.“

Að ekki sé nú talað um hana.

„Houston, we have a problem“

„Tími séníanna hérna á Íslandi. Maður sat við fótskör þessara snillinga og þetta gekk allt út á að drekka. Það sem maður gleymir að spyrja er: Hversu góð hefðum við orðið ef við hefðum sleppt neyslunni? Er einhver að segja að við hefðum ekki getað komist að enn betri niðurstöðu ef við hefðum sleppt því? Þá kemur maður aftur að þessu sem er uppskera þjáningarinnar. Því verður ekki neitað að í þeim eyðingareldi sem fíkniójafnvægi er og sú tortíming og þessi sársauki, þessi afhjúpun kveikir auðvitað á innsæi. Ef þér tekst að komast út úr því lifandi ertu reynslunni ríkari.“

Tolli segir það oft svo að sársauki sem menn upplifi sem fórnarlömb, sem börn í þessum aðstæðum þar sem alkóhólismi er í foreldrahúsum, telji.

„Eða hinir fullorðnu eða þeir sem leiða hjörðina, þeir gefa þér arfleifð sársauka sem þú berð svo áfram út í lífið. Og það fer að vera óbærilegt þar til þú kemst aftur í efni sem búa til núvitund með þér, sem gera það allt í einu mögulegt að vera ég án þess að það sé svona erfitt. Þetta er hringrás. Einkennandi fyrir fíkniójafnvægi er afneitun. Það er ekkert að hjá mér fyrr en ég hef gefist upp og það er eins og kennt er í búddismanum, ef þú ætlar að breyta einhverju þá verðurðu að byrja á því að gangast við því.“

Tolli segist ekki hafa gengist við sínum alkóhólisma fyrr en hann var orðinn 42 ára gamall.

„Kominn inn á Vog. Og þá allt í einu rennur upp fyrir mér: „Houston, we have a problem“. Þetta er tvíbent. Það er ekki hægt að neita því að þjáningin og sársaukinn hafa orðið uppspretta mikilla og stórkostlegra listaverka. En að það þurfi að vera óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að búa til góða list, það þarf ekki að vera svo.“

Var gefið krabbamein

Tolli segir að hann hefði alveg verið til í að vera laus við það vesen sem fylgir fíkniójafnvæginu.

„Ég er að sjá til dæmis í yngri kynslóðinni af myndlistarmönnum mikinn professionalisma. Þau skilgreina sig á allt annan hátt. Þau eru svo miklu meira fagfólk. Þau eru að ná svo miklu lengra með miðlana sína en við gerðum sem vorum svona að treysta á sko uppskeru „blackoutsins“ – að einhver snilld fæddist í algleymi vímunnar.“

Sú hefur verið trú margra?

„Eldri dóttir mín, Ásdís, rekur tvö gallerí, Þulu á Hafnartorgi og hérna á Grandanum og svo er yngri systir hennar starfandi myndlistarmaður, hún Kristín. Og í gegnum þær hef ég fengið snertingu við yngri kynslóð myndlistarmanna. Þetta er allt öðruvísi fólk. Þó að við séum alltaf eins frá einum tíma til annars þá skilgreina þau sig í orði og verki á annan hátt heldur en við sem vorum uppi á gullöld snillinganna. Í alvöru. Þau bara eru svo miklu meira pró. Og það er gaman að fylgjast með því. En samt, þú veist, það er, það er erfitt að vera listamaður. Það er ekki auðvelt. Þetta er töff. Á svo marga vísu.“

Þú ert orðinn hvað, 73 ára gamall?

„Já, þakka þér fyrir.“

Ekkert að þakka. En það voru fréttir af því fyrir kannski fimm árum að þú hefðir fengið krabbamein til að glíma við?

„Já, mér var gefið krabbamein.“

Ók?

Og það var krabbamein í blöðrunni sem greindist sem betur fer á byrjunarstigi. Þannig að ég fór í gegnum uppskurð þar sem þetta var fjarlægt. Ég hef síðan verið með stóma, þvagstóma hægra megin. Já, já, svo lærir maður að lifa með því eins og hverjum öðrum fylgihlut.“

Hamingjan eru mannréttindi

Tolli segir þetta áfall blása sér kappi í kinn.

„Lífið verður svo miklu verðmætara eftir að hafa farið í gegnum svona. Þegar maður er annars vegar búinn að fara í gegnum það að fá að endurfæðast í batagöngu 12 spora samtaka og fá allt í einu kraft til þess að fara að taka ábyrgð á lífi sínu og gera réttmæta kröfu til hamingjunnar. 

Hamingjan er tilgangur lífsins. Tolli hefur sjálfan Dalaí Lama fyrir því og ekki lýgur sá ágæti maður.vísir/anton brink

Þú veist, að vera hamingjusamur er í raun og veru tilgangur lífsins. Ég hef þetta eftir Dalai Lama, sko. Hann sagði þetta í Laugardalshöllinni þegar hann kom. Hann smellti þessu fram og mér finnst það svo fallegt af því að hamingja er ekki forréttindi heldur mannréttindi.“

Og Tolli segir engan geta tekið ábyrgð á því nema maður sjálfur, svona í grófum dráttum. 

„Síðan kemur krabbameinið og maður fer í gegnum það. Og þá er í raun og veru ekkert aftur snúið með það að ég lifi hvern dag í þakklæti – ég lifi hvern dag í meiningu. Það er alltaf tilgangur í lífinu, í því sem ég er að fara að gera og því sem ég er að fást við og mikið af því sem ég er að fást við eins og að vera myndlistarmaður, þar er maður að næra egóið. Þetta snýst um mig og mitt. En á móti helga ég stóran hluta tilveru minnar í að hjálpa öðrum.“

Og þetta samspil er farsælt með það fyrir augum að öðlast hamingjuna.

„Þess vegna getur maður sagt til allra þarna úti sem langar til að fá hlutdeild í hamingjunni. Frábært. Gefið einhvern tíma af lífi ykkar í að hjálpa öðrum. Það er alveg óbrigðult lyf.“

Skelfingu lostinn frammi fyrir dauðanum

En í tengslum við það að þú færð þennan helvítis krabba. Varstu ekkert hræddur við dauðann?

„Jú, ég var alveg skelfingu lostinn.“

Þessi afdráttarlausa yfirlýsing kemur á óvart.

„Ég sá fyrir mér hægfara ömurlega dauðagöngu. Og þetta ástand sem ég réði ekkert við ríkti í rúma 48 klukkutíma. 

Fyrst eftir greiningu varð Tolli skelfingu lostinn. En svo fóru kerfin að tikka inn.vísir/anton brink

Eftir það fóru kerfin að tikka inn og ég að ná tökum á þessu, ná jafnvægi og átta mig á því að þetta er allt í lagi. Það verður allt í lagi sama hvernig fer. Það sem maður hefur lært af þessu er að þetta snýst mikið til um viðhorfsstýringu og bara lífið yfir höfuð. Hvernig er ég að næra og mata sjálfan mig?“

Í andlega geiranum gengur þetta mikið til út á það á hverju fólk fóðrar sig, bæði af hugmyndum og efni.

„Iðkun. Gefðu sjálfum þér bara það besta og mikið af því. Og þá á ég við bæði andlega, líkamlega, félagslega. Taktu ábyrgð sjálfur á þínu lífi og lærðu af þeim sem á undan ganga. Og lærðu að vera í þessu harmoníi þar sem er viska, viska þar sem er fólk sem hefur reynt þetta og þekkir. Og svo er eitt sem maður hefur lært: Þetta er ekki eins alvarlegt og við höldum. Þetta er bara ókei.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.