Fótbolti

Sjáðu jöfnunarmark Rice og stór­tap Manchester United

Andri Broddason skrifar
Declan Rice skoraði jöfnunarmarkið gegn stórliði Bayern München.
Declan Rice skoraði jöfnunarmarkið gegn stórliði Bayern München. AP Photo/Martin Meissner

Meistaradeild Evrópu stóð undir nafni og bauð upp á nóg af mörkum. Bayern München tók á móti Arsenal þar sem var stórmeistarajafntefli, Como gaf Manchester United rassskellingu og Hákon Arnar Haraldsson gaf góða stoðsendingu.

Stórleikur kvöldsins var klárlega þegar Bayern München tók á móti Arsenal en þessi lið mættust einnig á síðasta tímabili. Leikurinn var gríðarlega jafn og var mikið fjör í seinni hálfleik þar sem bæði lið fengu fullt af færum. Hann endaði að lokum með sanngjörnu jafntefli en Harry Kane, leikmaður Bayern München, náði því afreki að skora í tíunda Meistaradeildarleiknum sínum í röð.

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille tóku á móti tyrkneska liðinu Galatasaray og var sannkölluð markaveisla þar á ferð. Bæði lið skoruðu snemma í leiknum og náði Hákon Arnar að leggja eitt mark upp fyrir Lille. Gestirnir náðu þó að skora tvö mörk í seinni hálfleik og tryggja sér sigur í Frakklandi.

Manchester United fór í heimsókn til Como þar sem heimamenn unnu stórsigur. Mikil rigning var á leiknum sem gerði Manchester United erfitt fyrir en það hafði engin áhrif á Como. Heimamenn vorum með örugga fjögurra marka forystu þegar Manchester United náði loks að setja eitt sárabótamark í lokin. Tímabilið hjá Manchester United heldur áfram að vera slæmt og virðist ekki ætla að batna í bráð.

Eftir að hafa valdið vonbrigðum í síðustu leikjum sýndi Real Madrid loks gömlu góðu taktana í gær. Liðið var lengi að skora fyrsta markið en liðið var duglegra við markaskorunina í seinni hálfleik. Yan Diomande, leikmaður Real Madrid, virðist vera í góðum takti og skoraði glæsimark í leiknum.

Mörkin úr hinum leikjum gærdagsins má sjá hér fyrir neðan:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×