Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2026 18:36 Harry Maguire og félagar í Manchester United fengu skell í Meistaradeildinni í kvöld. AP/Antonio Calanni Manchester United steinlá á móti ítalska félaginu Como í Meistaradeildinni í kvöld en lærisveinar Cesc Fabregas voru miklu betra liðið og unnu afar sannfærandi 4-1 sigur. Í stað þess að nýta leikinn til að rífa sig upp úr ládeyðu síðustu leikja var niðurstaðan hörmuleg frammistaða og vandræðalegt tap fyrir lærisveinum Michael Carrick. Þetta var aftur á móti kvöld hins argentínska Nico Paz sem skoraði tvö mörk í leiknum og lagði upp eitt. Argentínumenn binda miklar vonir við þennan 22 ára sóknarmiðjumann og hann sýndi ástæðuna fyrir því í kvöld. Leikurinn byrjaði hræðilega því Nico Paz kom Como í 1-0 strax á annarri mínútu leiksins. Heimamenn skoruðu í raun í fyrstu sókn sinni. Paz fann sér pláss í teignum og sneri boltanum í fjærhornið með frábæru skoti. Como pressaði Manchester United hátt og leikmenn Manchester United komust sjaldan í boltann og áttu í erfiðleikum með að halda honum þegar þeir náðu loks í hann. Como var mun ákveðnara lið en gestirnir. United-menn voru reyndar bara einu marki undir í hálfleik en það breyttist snemma í þeim síðari. Aðeins þrjár mínútur voru liðnar þegar Como komst í 2-0. Manchester United hafði í raun byrjað seinni hálfleikinn af meiri krafti en liðið var gripið í bólinu í skyndisókn þegar Nico Paz sendi snyrtilega sendingu inn í hlaup hjá Tasos Douvikas sem þrumaði boltanum af krafti í netið. Þetta átti eftir að verða enn verra. Menn spurðu sig hvar varnarleikurinn væri eiginlega eftir þriðja mark ítalska liðsins. Carlos Baleba missti boltann til Nico Paz nálægt miðlínunni og Paz æddi inn í teiginn. Enginn nær að komast nálægt honum áður en hann þrumar boltanum í netið. Þvílíkt kvöld fyrir Como, liðið var komið 3-0 yfir og átti það svo sannarlega skilið. Langbesta liðið á vellinum. Martröðinni var ekki lokið því þetta átti bara eftir að versna fyrir leikmenn Manchester United. Fjórða mark Coma leit dagsins ljós þegar miðvörðurinn Jacobo Ramón skallaði boltann í mark enska liðsins á 76. mínútu. Joshua Zirkzee náði að laga stöðuna undir lok leiksins en það mark kom alltof seint. Fótbolti Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United