Upp­gjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafn­firðingar aftur á sigurbraut

Andri Már Eggertsson skrifar
Tinna Alexandersdóttir, leikmaður Hauka, með skottilraun
Tinna Alexandersdóttir, leikmaður Hauka, með skottilraun Vísir/Pawel

Eftir tvo tapleiki í röð komust Haukar aftur á sigurbraut eftir fimm stiga sigur gegn Val á útivelli 85-90. Leikurinn var jafn og spennandi en í fjórða leikhluta settu Haukar í annan gír og lönduðu sigri.

Gestirnir úr Hafnarfirði mættu með góða orku inn í leikinn og byrjuðu töluvert betur. Haukar gerðu fyrstu fjórar körfurnar og það tók Val þrjár mínútur að gera fyrstu stig leiksins.

Jadakiss Nashi Guinn var frábær í kvöldVísir/Pawel

Eftir því sem leið á leikhlutann kom betri taktur í Valsliðið og úr varð hraður og skemmtilegur körfubolti. Sigrún Björg Ólafsdóttir, leikmaður Hauka, endaði leikhlutann á þriggja stiga körfu og staðan var 22-29 eftir fyrsta fjórðung.

Annar leikhluti var kaflaskiptur. Valsarar voru betri framan af og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum 40-39. Viktor Marinó Alexandersson, þjálfari Hauka, tók leikhlé skömmu síðar og Haukar fundu taktinn. Staðan í hálfleik var 49-50.

Tinna Alexandersdóttir á leið í sniðskotVísir/Pawel

Valsarar áttu fyrsta höggið í þriðja leikhluta og voru í bílstjórasætinu. Forskot Vals var þó aldrei meira en sjö stig. Jadakiss Nashi Guinn, leikmaður Hauka, endaði þriðja leikhluta á ótrúlegri flautukörfu þar sem allir leikmenn Vals voru búnar að loka á hana en einhvern veginn náði hún að kasta boltanum upp í loft og ofan í fór hann. Staðan var 71-67 þegar haldið var í síðasta fjórðung.

Valur - Haukar Bónus deild kvenna Haust 2026Vísir/Pawel

Haukar byrjuðu fjórða leikhluta betur og gerðu fyrstu fimm stigin. Um miðjan fjórða leikhluta setti Sólrún niður stemmningsþrist og Jamil Abiad, þjálfari Vals, fékk nóg og tók leikhlé í stöðunni 75-81.

Haukar unnu að lokum fimm stiga sigur 85-90.

Það reyndist þrautinni þyngri að ná boltanum þarna Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Jadakiss Nashi Guinn, leikmaður Hauka, gerði síðustu körfuna í þriðja leikhluta sem minnkaði forskot Vals niður í fjögur stig og Haukar gengu á lagið í fjórða leikhluta.

Stjörnur og skúrkar

Jadakiss Nashi Guinn, leikmaður Hauka, var frábær í kvöld með 28 stig, 7 fráköst og 9 stoðsendingar.

Eloise Stéphanie Pavrette átti einnig góðan leik fyrir gestina. Hún gerði 21 stig og tók 6 fráköst.

Valsarar fengu afar lítið framlag af bekknum sem skilaði aðeins þremur stigum. 

Dómararnir 

Dómarar kvöldsins voru Kristinn Óskarsson, Jón Þór Eyþórsson og Daníel Steingrímsson. Þríeykið stóð sig afar vel í kvöld og komst vel frá sínu.

Stemning og umgjörð

Haukar hituðu upp í bleikum upphitunarbol ásamt því að spila í bleikri keppnistreyju sem bæði karla og kvenna liðið hefur gert í tilefni af bleikan október. Treyjan er mjög flott og mætti fara í sölu fyrir almenning.

„Vörnin var léleg í fjórða leikhluta“

Jamil Abiad, þjálfari Vals, á hliðarlínunni í leik kvöldsinsVísir/Pawel

Jamil Abiad, þjálfari Vals, var svekktur eftir tap kvöldsins og þá sérstaklega fjórða leikhluta liðsins.

„Vörnin var léleg í fjórða leikhluta. Við spiluðum vel í þrjá leikhluta og vorum yfir farandi inn í fjórða leikhluta en þar klúðruðum við þessu,“ sagði Jamil eftir leik.

Aðspurður út í hvað fór úrskeiðis í fjórða leikhluta talaði Jamil um að varnarleikur liðsins hafi verið slakur.

„Orkan fór niður og við gáfum þeim opin skot og töpuðum nokkrum boltum. Vörnin okkar er það sem vinnur leiki fyrir okkur en við vorum líka að mæta góðu liði sem refsar,“ sagði Jamil að lokum. 

 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira