Lífið

Rang­lega greind með MS-sjúkdóm

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Christina Applegate með dóttur sinni, Sadie Grace LeNoble, árið 2022 þegar leikkonan fékk Hollywood-stjörnu.
Christina Applegate með dóttur sinni, Sadie Grace LeNoble, árið 2022 þegar leikkonan fékk Hollywood-stjörnu. EPA

Leikkonan Christina Applegate segist hafa verið ranglega greind með MS-sjúkdóm. Hún hætti að leika fyrir fimm árum eftir greininguna og hefur síðan þá verið ötull talsmaður fyrir fólk með sjúkdóminn. Leikkonan segir tíðindin vera vonbrigði því hún glími enn við alvarleg einkenni og viti ekki hvað ami að sér.

Applegate greindi frá tíðindunum í tveimur nýjum þáttum af hlaðvarpi sínu MeSsy en það hafði legið á ís síðustu sjö mánuði vegna veikinda leikkonunnar. Grátbólgin leikkonan sagði þar frá því að ný greiningartækni hefði leitt í ljós að hún væri ekki með MS-sjúkdóm (e. multiple sclerosis).

„Þetta kann að hljóma eins og stórfregn, en fyrir mér er ég komin aftur á byrjunarreit. Það er erfitt að segja frá því að [læknirinn minn] kom inn í herbergið og sagði: „Til hamingju, þú ert ekki með MS.“,“ sagði leikkonan.

Applegate sagðist „ekki vera neitt glöð“ yfir tíðindunum því hún fyndi enn fyrir miklum einkennum og verkjum. MS-sjúkdómur er langvinnur sjúkdómur í miðtaugakerfinu þar sem truflun verður á taugaboðum á milli heila og líkama. Einkenni eru margbreytileg og geta birst í tvísýni, sjóntapi, vöðvatapi, samhæfingarmissi og minnistapi.

„Þú ert ekki ranglega sjúkdómsgreind og svo allt í einu skánarðu. Ég hef ekki skánað... ef eitthvað þá hef ég versnað á ýmsan hátt. Þannig að ég er aftur komin á byrjunarreit að því leyti að ég veit ekki hvað hrjáir mig,“ sagði hún.

Applegate greindi frá því árið 2021 að hún hefði greinst með MS-sjúkdóm árið 2021 og hætti í kjölfarið að leika eftir síðasta þátt sjónvarpsseríunnar Dead to Me. Síðan þá hefur Applegate verið ötull talsmaður fólks með sjúkdóminn og byrjaði með hlaðavarpið MeSsy með leikkonunni Jamie-Lynn Sigle þar sem þær miðla reynslu sinni af sjúkdómnum.

Sé með öll einkenni MS

„Ég er með öll einkenni manneskju með MS. Hvert einasta,“ sagði leikkonan í hlaðvarpinu og bætti svo við að margir sjúkdómar valdi svipuðum einkennum. Læknar viti ekki af hverju einkennin stafi eða hvað hrjái hana.

„Fjöldi fólks er ranglega greindur með MS,“ sagði leikkonan, hún væri því ekki einsdæmi. Það væri hins vegar ljóst að eitthvað annað amaði að henni sem læknar ættu eftir að komast að hvað væri.

„Mér líður eins og ég hafi valdið öllum vonbrigðum,“ sagði leikkonan og vísaði þar til þess hvernig hún hefur verið talsmaður fyrir fólk með sjúkdóminn síðustu ár. Hún væri enn í sjokki yfir fregnunum.

„Þetta er skrítin tilfinning því ég varð - ég og þú - eins konar fyrirmynd fólks með MS,“ sagði leikkonan við Sigler, meðstjórnanda sinn í þættinum.

„Ég hafði ástæðu fyrir því af hverju dagurinn minn sökkaði alla daga. Og nú er ég ekki með neina ástæðu og það dregur úr mér kjark og er mjög truflandi fyrir mig,“ sagði hún jafnframt.

Í seinni hluta þáttarins ræddi Applegate um síðustu fimm ár og líf sitt með veikindunum.

„Ég upplifað mikið þunglyndi út af þessu. Ég hef misst all. Ég missti vinnuna... þetta hefur stöðvað líf mitt,“ sagði hún og bætti við: „Ég þarf enn að nota hjólastól þegar ég fer til læknis. Ég get ekki gengið frá bílnum inn til mín. Ég er enn að glíma við þetta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.