Lífið

Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn

Agnar Már Másson skrifar
„Hver og einn verður að ráða sínum næturstað“ nefnist nýútgefin plata Elvars Smára Júlíussonar en henni mætti lýsa sem kvikmyndarlausri kvikmyndatónlist.
„Hver og einn verður að ráða sínum næturstað“ nefnist nýútgefin plata Elvars Smára Júlíussonar en henni mætti lýsa sem kvikmyndarlausri kvikmyndatónlist. Vísir/Agnar

„Mér finnst ógeðslega erfitt að finna titla á hluti, sérstaklega þegar maður er að gera músík sem er ekki með neinum orðum. Þannig að ég byrjaði bara að leita; grúska í bókum, fletta í gegnum eitthvað og reyna bara að finna einhver orð eða setningar. Þegar ég var alveg að vera búinn með plötuna og mig vantaði ennþá titil þá fór ég bara að skrolla á Vísi og þar var þessi fyrirsögn.“

Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en titillinn er vísun í ummæli Ingu Sæland, menntamálaráðherra og formanns Flokks fólksins, frá því í apríl.

Það var eitthvað við þessa setningu – sem Inga skrifaði í yfirlýsingu þegar hún brást við úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins – sem heillaði Elvar og hann ákvað því að gera hana að titli plötunnar enda átti hún líka vel við innihaldið.

En þótt Elvar eigni Ingu nafn plötunnar er tengingin við pólitíkina ekki meiri en svo. Lögin fjalla nefnilega að engu leyti um innanhússdeilur í ríkisstjórnarflokkunum, heldur segir Elvar að platan snúist að mestu um að finna sjálfan sig og komast að því hvernig manneskja maður vill vera.

Kvikmyndatónlist án kvikmyndar

Hljómgervlar eru í aðalhlutverki í verkinu, sem flakkar á milli nýklassíkur, „ambient“ og jafnvel „synthwave“. Fyrsta lagið tekur á móti hlustandanum með fiðluleik frá strengjatríóinu Tríó Sól á meðan þungt bassahljóð kraumar í bakgrunninum. Í raun minna lögin frekar á kvikmyndatónlist – og það er engin tilviljun.

„Já, það er klárlega það sem ég er að gera. Það var í raun ætlunin með þessari plötu; að reyna að toga saman alla þá þræði sem ég hef verið að vinna með í tónlist hingað til,“ segir Elvar Smári, sem er um þrítugt, í samtali við Vísi og nefnir í því samhengi meðal annars „kvikmyndastöff“ og indírokk.

Þó að tónlist hafi að miklu leyti fylgt Elvari, sem er alinn upp í Grafarholti, út lífið hafði hann sem unglingur fyrst séð fyrir sér að vinna að kvikmyndagerð. Hann gekk í Borgarholtsskóla og var þar á kvikmyndabraut en á þeim árum fékk hann áhuga á grafískri hönnun og þannig lá leiðin í Listaháskóla Íslands.

Ekki leið þó á löngu áður en hann færði sig um set og fluttist af grafísku deildinni yfir á tónlistarbrautina í sama skóla, og hafði hann þá sérstaklega áhuga á kvikmyndatónlist. Hann segist sérstaklega draga innblástur frá Trent Reznor úr Nine Inch Nails, sem gerði meðal annars tónlistina undir Pixar-myndina Sál en einnig The Social Network, sem er í miklu uppáhaldi hjá Elvari.

Sjálfur hefur hann komið að ýmsum kvikmyndaverkefnum í gegnum árin. Elvar nefnir í því samhengi að hann hafi meðal annars unnið að tónlistinni í þáttaröðunum King and Conqueror og Reykjavík Fusion auk margra annarra tilfallandi verkefna.

En nú hefur hann í raun gefið út kvikmyndatónlist án kvikmyndar.

Og maður spyr sig: Hvers konar kvikmynd á þetta að vera?

„Þetta verður eiginlega átómatískt einhvers konar dagbók úr lífi manns á þeim tíma sem ég var að búa hana til,“ svarar Elvar.

„Maður var alltaf að flytja eitthvað og flakka á milli landa og hugsa hvers konar manneskja maður vill vera, hvað maður trúir á og hvað maður gerir við líf sitt. Ef þetta væri mynd þá væri þetta svoleiðis mynd,“ bætir hann við. Hann hafi verið að reyna að finna sinn stað í lífinu.

Frá upptökum á strengjaleiknum.Aðsend

Elvar svarar játandi þegar hann er spurður hvort líta megi á plötuna sem eins konar yfirlýsingu; að hann vilji koma sér á framfæri og sýna hvað hann geti í raun gert.

„Algjörlega, en ég myndi segja það er svona þær helmingurinn af þessu. Þú veist, þetta er það sem ég kann nú og get gert,“ svarar Elvar.

„Og síðan er hinn parturinn: að ég elska að gera þetta.“

Varði nær öllum stundum á Húrra

Þetta er vissulega ekki í fyrsta sinn sem Elvar gefur út plötu en seinast gerði hann það árið 2017, þá um 22 ára, undir listamannsnafninu Án.  Hann furðar sig sjálfur smá á því hversu ósmeykur hann var, þá sem algjör byrjandi, við að gefa eitthvað út.

Sú plata, er heitir Ljóstillífun, var gefin út undir formerkjum Möller Records, raftónlistarútgáfu sem þeir Jóhann Ómarsson (Skurken) og Árni Grétar Jóhannesson heitinn (Futuregrapher) stofnuðu árið 2011, en sá síðarnefndi lést fyrir aldur fram í fyrra.

Elvar segist hafa lært mikið af þeim Jóhanni og Árna og lýsir þakklæti í þeirra garð fyrir að hafa fengið tækifæri til að koma fram. Hann minnist svokallaðra „label-kvölda“ sem voru haldin á Húrra þegar sá skemmtistaður var og hét, en þar var upprennandi tónlistarmönnum teflt fram.

Þessi ár voru afar mótandi fyrir Elvar, að hans sögn, og kveðst hann hafa varið nánast öllum vakandi stundum á Húrra – ýmist á djamminu, tónleikum, pöbbkviss eða að horfa á bíómyndir – og verið þar umkringdur sams konar listafólki.

Hann syrgir það að staðir til tónleikahalds í Reykjavík virðist vera á hverfanda hveli.

„Það er alltaf jafn sorglegt að labba fram hjá þar sem Húrra var,“ segir hann. „Mér finnst þetta rosalega mikilvægt, að það sé einhver staður til þess að gera hluti svo að þeir geti orðið til.“

Síkvikur synth-nördi

Elvar er greinilega með synth-dellu.

Þegar blaðamaður gekk inn í stofuna á heimili Elvars í Laugardal mátti þar finna nokkuð umfangsmikið safn hljómgervla. Þar má nefna Korg-minilogue, sem Elvar segist hafa keypt þegar hann útskrifaðist úr menntaskóla, og svo klassískan Moog-hljómgervil, sem hann fjárfesti í fyrir nokkrum árum eftir að hann komst að því að skatturinn skuldaði honum peninga. 

Auk þess voru margar aðrar græjur á borðinu sem undirritaður hafði ekki glóru um hvað gerðu.

Að undanförnu hefur hann einnig unnið að glænýjum íslenskum hljóðgervli er nefnist Katla og er sá fyrsti sinnar tegundar. 

Elvar Smári spilar á Kötlu-hljómgervilinn.Vísir/Agnar

Katla er hönnuð af íslenska félaginu Genki Instruments og seldist hratt upp þegar hann var gefinn út í mars á þessu ári. Danstónlistarmeistarinn Deadmau5 er meðal annars búinn að næla sér í slíka græju.

Elvar segist hafa hannað öll „preset“ sem finna má í hljóðfærinu, en græjan dregur innblástur af samnefndri eldstöð undir Mýrdalsjökli. 

„Bara búinn að vinna þetta“

En hvað tekur þá við? Svo skemmtilega vildi til að daginn sem Elvar gaf út Hver verður að ráða sínum næturstað fékk hann póst um að hann hefði verið valinn í kvikmyndatónlistarprógram hjá INNI music.

„Að fá þær fréttir sama daginn, þá hugsaði ég bara með mér: „Já, ókei. Ég er bara búinn að vinna þetta,““ segir Elvar Smári og hlær örlítið við. Sömuleiðis segist hann farinn að leggja drög að næstu útgáfu, en „númer eitt, tvö og þrjú“ sé að semja meira fyrir kvikmyndir, alla vegana ef kostur gefst.

Elvar Smári lítur því bjartsýnn fram á veginn enda ljóst að hann hefur fundið sína hillu, jafnvel þótt sumir segi að enginn ráði sínum næturstað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.