Sport

Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt

Andri Broddason skrifar
Philadelphia Eagles hafa verið gagnrýndir fyrir að láta Jaylen Hurts spila með blóðtappa.
Philadelphia Eagles hafa verið gagnrýndir fyrir að láta Jaylen Hurts spila með blóðtappa. AP Photo/Matt Slocum

NFL leikstjórnandinn Jaylen Hurts sem spilar fyrir Philadelphia Eagles greindist með blóðtappa og mun líklegast ekki spila meira á tímabilinu. Eagles hefur verið gagnrýnt fyrir að láta Hurts spila þrátt fyrir greininguna.

Í tilkynningu frá umboðsmanni Hurts í gær kom fram að hann hefði greinst með blóðtappa sem væru búnir að færast yfir í lungun. Hann mun því hvorki geta spilað né æft meira með liðinu þar sem hann þarf að fara á blóðþynnandi lyf til þess að losna við blóðtappann.

Lið Eagles mætti Jaguars 11. október en leikurinn fór fram í London. Lið Eagles var búið að finna blóðtappann í fætinum á Hurts og hélt leikmanninum vakandi í 36 tíma áður en hann spilaði gegn Jaguars. Eagles tapaði leiknum en áhorfendur NFL-deildarinnar hafa gagnrýnt Eagles fyrir að hugsa ekki nóg um heilsu leikmannsins.

Samkvæmt ESPN er vanalega ekki mælt með því að halda þeim sem hafa blóðtappa vakandi lengi og því er sú ákvörðun hjá liðinu óvenjuleg. Leikurinn gegn Jaguars var spilaður í London og löng flugferðalög geta aukið líkurnar á að blóðtappinn færist. Uppgötvað var að Hurts væri með blóðtappa eftir að liðið fór til London.

Umdeilanlegt er hvort að Hurts hafi átt að snúa aftur til Bandaríkjanna þar sem blóðtappinn endaði á að færast til lungnanna. Ekki er búið að staðfesta hvort það sé vegna ferðalagsins eða ekki.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×