Innlent

Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi

Kjartan Kjartansson skrifar
Fé hefur leitað í skógræktarsvæði í Óseyri við Stöðvarfjörð um margra ára skeið. Landeigendur þar vildu að sveitarfélagið léti smala fénu en við því hefur ekki verið orðið. Sveitarfélagið var sýknað af skaðabótaskyldu í héraðsdómi í síðustu viku. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki.
Fé hefur leitað í skógræktarsvæði í Óseyri við Stöðvarfjörð um margra ára skeið. Landeigendur þar vildu að sveitarfélagið léti smala fénu en við því hefur ekki verið orðið. Sveitarfélagið var sýknað af skaðabótaskyldu í héraðsdómi í síðustu viku. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/Vilhelm

Sveitarfélaginu Fjarðabyggð bar ekki lagaskylda til þess að smala fé sem gekk í einkaland og olli tjóni á skógrækt í Stöðvarfirði. Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfu landeiganda um að skaðabótaskylda þess yrði viðurkennd.

Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á hendur Fjarðabyggð vegna ágangs sauðfjár yfir tveggja ára tímabil. Ágangurinn stóð þó mun lengur yfir samkvæmt stefnu í málinu.

Sagði landeigandinn að ágangsféð hefði valdið stórfelldu tjóni á skógræktinni. Landgræðslan hefði metið hluta jarðarinnar í mjög slæmu eða slæmu ástandi í gróðufarsútekt árið 2019. Ekki hefði gengið að fá ætlaða eigendur fjárins til þess að fjarlægja það.

Landeigandinn reyndi að fá sveitarfélagið til þess að smala ágangsfénu á grundvelli ákvæðis laga um afréttarmálefni og fjallaskil en án árangurs. Sveitarfélagið vísaði kvörtuninni til fjallaskilanefndar þess en aðeins bændur áttu sæti í henni. Á meðal nefndarmanna þar var bóndi sem landeigendur töldu að ætti hluta ágangsfjárins.

Innviðaráðuneytið taldi að ákvörðun sveitarfélagsins um að smala ekki fénu hefði verið ólögmæt þegar ráðuneytið úrskurðaði um stjórnsýslukæru landeigendanna í vor. Sveitarfélagið hefði ekki uppfyllt rannsóknarreglu í stjórnsýslulögum áður en það komst að niðurstöðu.

Ráðuneytið féllst engu að síður ekki á að ógilda ákvörðunina þar sem ágangurinn, sem átti sér stað árið 2024, væri þá þegar yfirstaðinn. Beindi ráðuneytið því í staðinn til sveitarfélagsins að hafa sjónarmið úrskurðarins til hliðsjónar í framtíðinni.

Hafi ekki mátt banna lausagöngu á eigin landi

Samkvæmt lögunum um afréttarmálefni ber sveitarfélagi að smala fé ef það fer úr einu heimalandi í annað. Sú skylda er ekki til staðar ef féð kemur úr afrétti. Landeigandinn byggði meðal annars á að enginn afréttur væri skilgreindur í Fjallabyggð og féð hefði komið úr öðru heimalandi.

Krafðist landeigandinn þess í dómsmálinu að skaðabótaskylda sveitarfélagsins vegna tjóns sem féð vann á jörðinni og kostnaðar við að laga til eftir það yrði viðurkennd.

Ívar Ingimarsson. fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, rekur ferðaþjónustu á Óseyri og stundar skógrækt ásamt Hrefnu Dagbjörtu Arnarsdóttur, eiginkonu sinni. Þau hafa um árabil kvartað undan ágangi fjár á jörðinni.Vísir/Friðrik Þór Halldórsson

Sveitarfélagið taldi sig ekki hafa neina skyldu til að smala fénu og vísaði til lagalegrar óvissu. Skógræktarsvæðið á Óseyri væri heldur ekki afgirt og því væri gæti langeigandinn ekki bannað lausagöngu búfjár þar.

Ekki vitað hvaðan féð kom og ekki víst að afréttir væru ekki til staðar

Héraðsdómur Austurlands sýknaði sveitarfélagið af kröfunni með dómi á fimmtudag. Taldi dómurinn að ekki væri hægt að slá því föstu að beitilönd einstakra jarða í Fjarðabyggð væru ekki notuð með líkum hætti og afréttir.

Dómurinn studdist meðal annars við vitnisburð Arnórs Ara Sigurðssonar, bónda á Þverhamri og nefndarmanns í fjallaskilanefnd Fjarðabyggðar. Nefndin tók fyrir erindi landeigandans á Óseyri um að fé yrði smalað, þar á meðal fé í eigu Arnórs Ara. Bóndinn sagði dómnum að hann hefði ekki fjallað um erindi landeigenda að Óseyri hjá fjallaskilanefnd.

Málið var rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands en dómur féll á fimmtudag.Vísir/Jóhann

Einnig byggði dómurinn á því að ekki lægi fyrir hvaðan ágangsféð hefði komið. Því hefði ekki verið sýnt fram á að sveitarfélagið hefði verið skyldugt til þess að láta smala fénu.

Hákon Þorsteinsson, héraðsdómari, taldi heldur ekki vegið að eignarrétti landeiganda að Óseyri vegna annarra úrræða sem hann hefði til þess að vernda hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×