Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Bjarki Sigurðsson skrifar 19. október 2026 09:10 Una Jónsdóttir er forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans. Vísir/Vilhelm Margt bendir til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé smám saman að gefa eftir að mati greiningadeildar Landsbankans. Gangi spár eftir fari vextir að lækka eftir áramót.
Greiningardeildin birti í morgun hagspá til ársins 2029. Þar segir að á síðustu vikum hafi dregið úr óvissu innanlands og að það megi að mörgu leyti líta á framtíðina björtum augum. „Við teljum að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og óvissa um framhald kjarasamninga hefur minnkað. Horfur hafa því batnað og við teljum líklegt að vaxtalækkanir geti hafist snemma á næsta ári,“ segir í hagspánni. Það þýði þó ekki að veturinn verði léttur. Því er spáð að atvinnuleysi aukist en taki smám saman a minnka á næsta ári. Fasteignamarkaðurinn verður áfram rólegur og vöxtur einkaneyslu hægari. Óvissa um alþjóðlega þróun, ekki síst olíuverð, er enn mikil. Hófstilltar verðhækkanir Deildin spáir hófstilltum hagvexti næstu ár, 1,3 prósent og 1,5 prósent næstu tvö ár. Hann verði borinn upp af fjölbreyttum útflutningi. „Álútflutningur nær sér á strik ásamt því sem við gerum ráð fyrir vexti í ferðaþjónustu og að fjölbreyttir vaxtarsprotar halda áfram að blómstra. Við spáum samdrætti í íbúðafjárfestingu næstu ár og afar hófstilltum verðhækkunum á íbúðamarkaði. Það má þó gera ráð fyrir áframhaldandi framgangi ýmissa stærri fjárfestingaráforma, til að mynda tengt orkuöflun og gagnaverum,“ segir í hagspánni. Verðbólgan hafi náð hámarki þegar hún fór í 5,9 prósent. Hún ætti að verða komin undir fimm prósent á fjórða ársfjórðungi næsta árs. Er sú spá rökstudd með því að slaki hafi myndast á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði, sátt náðist á vinnumarkaði og ríkið ætli að halda aftur af gjaldahækkunum. Vextir niður í febrúar Peningastefnunefnd muni hefja vaxtalækkunarferlið í febrúar og vaxtastigið fylgja verðbólgunni niður. „Raunvextir verða nokkuð stöðugir allt spátímabilið, fara hæst í ríflega 3% en verða almennt á bilinu 2-3% á meðan verðbólga lækkar í átt að markmiði.“
Neytendur Fjármál heimilisins Landsbankinn Efnahagsmál Fjármálafyrirtæki Verðlag Fasteignamarkaður Vinnumarkaður Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Sjá meira