Innlent

„Þetta situr náttúru­lega í manni“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Miklar skemmdir urðu í óveðrinu á Siglufirði.
Miklar skemmdir urðu í óveðrinu á Siglufirði. Jónatan Valby

Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný.

Mikið tjón varð á Siglufirði vegna ofsaveðursins í gær. Öflugar vindhviður riðu yfir bæinn um hádegisbilið og þá fuku þök af þremur húsum samtímis. Björgunarsveitir af öllum Tröllaskaganum komu til bjargar.

„Það er ekkert grín þegar svona þök fara af í heilu lagi í kringum íbúðarhúsahverfi. Þökin fara á loft, falla niður og splundrast og dreifast um hverfið. Um tíma þá óskuðum við eftir að fólk væri bara ekki á ferðinni á Siglufirði en það er alveg ljóst að það er gríðarlegt tjón á sumum stöðum í bænum,“ sagði Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð í samtali við fréttastofu í morgun.

Björgunarsveitarmenn að störfum á Siglufirði.Landsbjörg

Karen Birgisdóttir var heima hjá sér á Siglufirði um hádegisbil í gær, þar sem hún býr ásamt manni og tveimur börnum, þegar hún heyrði gríðarlegan hvell. Hún segist fyrst hafa haldið að gluggar í húsinu hefðu brotnað, þar til hún sá skyndilega til himins í gegnum þakið.

„Efri hæðin er svo til bara ónýt, þannig að það þarf að rífa það allt út og byggja þakið upp á nýtt. Það fór í heilu lagi upp í næstu götu,“ sagði Karen í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Fjölskyldan fékk húsaskjól í nótt hjá foreldrum Karenar. Nú þurfi að bíða eftir mati frá tryggingum en ljóst að fjölskyldan getur ekki dvalið í húsi sínu á næstunni.

Mikinn hvell gerði á Siglufirði í gær.Landsbjörg

„Það var nú bara afskaplega lítið sofið. Þetta situr náttúrulega í manni og maður var bara að reyna að hugsa um að við myndum hafa þetta svona sem eðlilegast fyrir börnin. Ég er með eina einn þriggja ára og eina sjö ára,“ segir Karen.

Hvenær vonist þið til að geta farið að gista aftur heima hjá ykkur? 

„Það er rosalega erfitt að segja. Eigum við að reyna að vona fyrir jólin? Ég held að það yrði kraftaverk sko,“ bætir hún við.

Þak fauk af þremur húsum á Siglufirði í óveðrinu í gær.Jónatan Valby

Karen segir íbúa á Siglufirði standa saman í áfallinu.

„Það hefur komið algjörlega í ljós hversu yndislega gott við höfum það hérna. Samfélagið hefur svo aldeilis brugðist við. Við erum að fá skilaboð ofan á skilaboð þar sem er verið að bjóða okkur húsnæði og aðstoð og símtöl.“

„Við stöndum saman á svona þegar að svona stendur á. Það er alveg á hreinu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×