Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Aron Guðmundsson skrifar 15. október 2026 09:32 Amin Cosic í baráttunni með undir 21 árs landsliði Íslands Guðmundur/Vísir Amin Cosic og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Viking náðu óvæntu jafntefli gegn stórveldinu Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Íslendingurinn greip tækifærið og fékk mynd af sér með stjörnu Bayern sem var þó skúrkurinn í liðinu í leiknum.
Amin Cosic og liðsfélagar hans í norska meistaraliðinu Viking náðu óvæntu jafntefli gegn stórveldinu Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Íslendingurinn greip tækifærið og fékk mynd af sér með stjörnu Bayern sem var þó skúrkurinn í liðinu í leiknum. Dramatískt jöfnunarmark undir lok leiks á heimavelli sá til þess að Viking tryggði sér 3-3 jafntefli gegn Bayern í umræddum leik í Meistaradeildinni. Þeir norsku höfðu komist tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik en gæðin í Bayern Munchen sönnuðu sig og sneru leikmenn liðsins leiknum sér í vil. Michael Olise, leikmaður Bayern Munchen, var hins vegar rekinn af velli í seinni hálfleik eftir að Zlatko Tripic, liðsfélagi Cosic hjá Viking, hafði komist í hausinn á honum. Olise fékk fyrra gula spjaldið sitt í leiknum fyrir að stöðva skyndisókn með því að brjóta á leikmanni Viking. Eftir brotið ákvað hann svo að kasta boltanum í andlitið á Tripic sem norski fyrirliðinn gerði mikið úr. Olise var því rekinn af velli með rautt spjald og Viking gekk á lagið, jafnaði leikinn í kjölfarið og tryggði sér dýrmætt stig. Michael Olise og Amin Cosic eftir leik Viking og Bayern MunchenMynd: Amin Cosic á Instagram Eftir leik fékk Amin Cosic, sem er hluti af öflugu undir 21 árs landsliði Íslands, mynd af sér með Olise sem hann lítur greinilega mikið upp til. Tveir öflugir sóknarmenn en Olise var skúrkurinn þetta kvöld. „Draumur,“ skrifar Cosic við myndina af sér og Olise, sem hann birti á Instagram, eftir leik.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Norski boltinn Íslendingar erlendis Landslið karla í fótbolta Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Enski boltinn Fleiri fréttir Íslenski landsliðsmaðurinn fékk mynd af sér með skúrkinum Leikur Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Sjá meira