Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Kjartan Kjartansson skrifar 14. október 2026 14:39 Jóhann Páll Jóhannsson, loftslagsráðherra, í ræðustól á Alþingi. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Stjórnvöld þyrftu að meta fjárhagslegan kostnað og leggja fram tillögur að markvissari aðgerðum ef útlit væri fyrir að þau stæðust ekki loftslagsskuldbindingar ef nýtt frumvarp að loftslagslögum verður samþykkt. Frumvarpið á einnig að herða á innleiðingu loftslagsaðgerða.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Því er sagt ætlað að styrkja umgjörð loftslagsmála, tryggja eftirfylgni með skuldbindingum Íslands og hraða innleiðingu aðgerða. Núverandi lög eru fjórtán ára gömul. Ákvæði sem á að tryggja eftirfylgni með skuldbindingum landsins felur það í sér að ef losunarbókhald Íslands bendi til þess að ekki náist að uppfylla þær þurfi stjórnvöld að meta fjárhagslegan kostnað þess, gera grein fyrir honum í ríkisreikningi og leggja fram tillögu að markvissari aðgerðum. Verði frumvarpið að lögum gæti fljótlega reynt á þetta nýja ákvæði. Nýjasta mat Umhverfis- og orkustofnunar frá því fyrr í haust bendir til þess að íslensk stjórnvöld verði órafjarri því að ná þeim samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda sem þau eru skuldbundin til þess að gera í gegnum EES-samninginn fyrir lok áratugarins. Ísland gæti þá þurft að kaupa losunarheimildir fyrir milljarða króna á næsta áratug þegar bókhald núverandi tímabils Parísarsamkomulagsins verður gert upp. Loftslagsráð verði vísinda og sérfræðiráð Í frumvarpinu er einnig lagt til að heimild verði til staðar til þess að starfrækja sérstök framkvæmdateymi þvert á ráðuneyti og stofnanir til þess að hraða innleiðingu loftslagsaðgerða. Breytingar eru lagðar til á Loftslagsráði, sem er stjórnvöldum til ráðgjafar um loftslagsmál. Það verður að vísinda- og sérfræðiráði samkvæmt frumvarpinu með aukið sjálfstæði og sterkari faglegan grunn. Einnig lögfesti frumvarpið í fyrsta sinn starfsemi landsnefndar um loftslagsvísindi. Markmið beggja breyting er sagt að ákvarðanir stjórnvalda í loftslagsmálum byggist á bestu tiltæku vísindalegu þekkingu hverju sinni. Meti ávinning og kostnað aðgerða Fátt hefur verið um mælanleg markmið eða mat á hverju einstakar loftslagsaðgerðir eiga að skila í áætlunum íslenskra ríkisstjórna umfram almenn losunarmarkmið um tiltekinn samdrátt á tilteknum tíma. Frumvarp ráðherrans virðist eiga að breyta því að einhverju leyti. Í því stendur að í aðgerðaáætlun stjórnvalda skuli koma fram mat á áætluðum kostnaði ásamt mati á loftslagsávinningi af aðgerðunum að því marki sem það er hægt. Þá kveður á um að stjórnvöld móti loftslagsstefnu fyrir landið og í henni eigi að marka heildstæða framtíðarsýn sem feli í sér bæði langtímamarkmið og skilgreind milli- og skammtímamarkmið. Kolefnishlutleysismarkmið hugsanlega endurskoðað Lagt er til í frumvarpinu að stjórnvöld láti meta sérstaklega fyrir lok næsta árs forsendur markmiðs Íslands um kolefnishlutleysi árið 2024 og hvort það sé raunhæft. Það markmið rataði inn í stjórnarsáttmála Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks árið 2020. Jóhann Páll sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpinu að kolefnishlutleysismarkmiðið hefði verið lögfest árið 2021 án þess að skilgreint hefði verið nákvæmlega hvað fælist í því og hvernig það yrði mælt. Mögulegt væri að markmiðið yrði endurskoðað eftir að mat færi fram á hvort það væri raunhæft.
Loftslagsmál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fleiri fréttir Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Sjá meira