Enski boltinn

Hvað verður um Martinez eftir gagn­rýnina?

Andri Broddason skrifar
Stjórn Manchester United er ekki sátt með athugasemdir Lissandro Martinez.
Stjórn Manchester United er ekki sátt með athugasemdir Lissandro Martinez. Oscar J. Barroso/Getty Images

Óvíst er hvað verður um framtíð Lissandro Martinez, leikmanns Manchester United, hjá félaginu. Hann gagnrýndi stjórn liðsins harðlega eftir leik gærkvöldsins þar sem Manchester United tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.

Mikil ringulreið virðist hafa myndast eftir að Martinez gagnrýndi stjórn félagsins fyrir að standa ekki með leikmönnunum. Manchester United endaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili eftir erfiða byrjun á tímabilinu og hefur liðið ekki fengið liðsauka í sumar til að takast á við bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu.

Mikið ákall var meðal bæði stuðningsmanna og leikmanna Manchester United til að stækka leikmannahópinn og styrkja ef liðið ætlaði að ná langt í bæði ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Það virðist ekki hafa gerst og voru einu kaup sumarsins gerð á miðjunni.

Í byrjunarliðinu í gær var Ayden Heaven í vinstri bakverði en hann spilar vanalega sem miðvörður. Manchester United var aðeins með einn leikmann sem er hreinræktaður vinstri bakvörður fyrir tímabilið og var það Luke Shaw. Þrátt fyrir að hafa verið lengi leikmaður Manchester United þá hefur hann langa meiðslasögu og er hann fjarverandi vegna meiðsla.

Gagnrýni Martinez var helst beint að Jason Wilcox sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá Manchester United. Samkvæmt Sky Sports er stjórn Manchester United brjáluð yfir athugasemdum hans í gær og er líklegt að félagið standi með Wilcox.

Verður Martinez áfram hjá Manchester United?

Aðeins eitt ár er eftir af samningi Martinez við félagið en hægt er að framlengja samninginn um eitt ár. Ekki er þó víst að félagið geri það eftir ringulreiðina sem hann skapaði en Martinez langaði að fara í sumar. Hann tjáði að hann vildi fara til Atletico Madrid, mótherja Manchester United í gær, síðasta sumar en enska félagið fékk ekki nógu gott tilboð í hann.

Framtíð argentíska miðvarðarins hjá félaginu virðist því vera í lausu lofti. Þrátt fyrir það hefur hann verið mikilvægur leikmaður í liði Manchester United og óvíst hvernig gengi liðsins verður án hans í miðverðinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×