Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 11:32 Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar. Bærinn hefur samþykkt tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og lækkun greiðslna til bæjarfulltrúa vegna þungrar rekstrarstöðu. Vísir/Anton Brink Seltjarnarnesbær hefur samþykkt tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og lækkun greiðslna til bæjarfulltrúa. Greiðslurnar verða jafnframt tengdar mætingu á bæjarstjórnarfundi. Aðgerðirnar eru liður í því að bregðast við þungri rekstrarstöðu bæjarins.
Bæjarráð samþykkti aðgerðirnar 28. september og bæjarstjórn staðfesti fundargerð ráðsins samhljóða á fundi sínum 7. október. Áður en nýtt starfsfólk verður ráðið á að leita leiða til að færa starfsfólk til innan bæjarins, endurskipuleggja verkefni og auka samstarf deilda og stofnana. Undanþágur frá banninu verða heimilar þegar þeirra er þörf til að tryggja lögbundna grunnþjónustu og öryggi íbúa. Greiðslur ráðast af mætingu Samhliða ráðningar- og yfirvinnubanninu á að lækka greiðslur til bæjarfulltrúa og greiða þeim eftir raunverulegri mætingu á bæjarstjórnarfundi. Markmiðið er að breytingarnar á greiðslunum skili að minnsta kosti sextán prósenta sparnaði. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins telur eðlilegt að kjörnir fulltrúar taki sjálfir þátt í aðhaldsaðgerðunum og horfi til eigin kostnaðar. Segja tapið hafa numið 411 milljónum Í bókun fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra kemur fram að tap á rekstri bæjarins og fyrirtækja hans hafi numið 411 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Meirihlutinn segir verðbólgu, háa vexti og hækkandi launa- og rekstrarkostnað hafa gert reksturinn erfiðari. Hann leggur þó áherslu á að ytri aðstæður skýri ekki stöðuna að fullu og að bæjarstjórn beri ábyrgð á að endurskoða eigin rekstur og forgangsröðun. Skoða rekstur bókasafns og sundlaugar Einnig hafa verið samþykktar úttektir á rekstri bókasafnsins, sundlaugarinnar og félagsmiðstöðvarinnar Selsins til að kanna möguleika á hagræðingu. Samkvæmt bókun meirihlutans verður áfram farið yfir rekstur og opnunartíma bókasafns og sundlaugar. Ekki sé hins vegar tilefni til að stytta opnunartíma Selsins frekar að svo stöddu, enda hafi hann þegar verið styttur. Minnihlutinn gerði athugasemdir við gögn um opnunartíma Selsins og kallaði eftir samráði við ungmennaráð. Þá lagði hann áherslu á að standa vörð um forvarnarstarf fyrir börn og ungmenni.
Seltjarnarnes Sveitarstjórnarmál Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira