Tæknirisarnir horfa til Íslands en raforkukerfið ræður ekki við eftirspurnina
Öll stærstu bandarísku tæknifyrirtækin hafa kannað möguleika á uppbyggingu gagnavera á Íslandi en umfang þeirra verkefna sem þau horfa til er langt umfram það sem raforkukerfið ræður við. Ekki er talið raunhæft að ráðast í mjög stór gagnaversverkefni hér á landi á næstu fimm til sjö árum miðað við fyrirliggjandi áætlanir um aukna orkuframleiðslu.
Tengdar fréttir
Kaupa atNorth á háum verðmargfaldara líkt og þekkt er við sölu gagnavera
Miðað við áætlaðan rekstrarhagnað atNorth, sem byggir meðal annars á þegar tryggðum samningum við viðskiptavini, þá var fjögurra milljarða dala verðlagningin á félaginu í sölu til CPP og Equinix nokkuð í takti við þá háu verðmargfaldara sem þekkjast í viðskiptum með gagnaver sem geta stækkað frekar og mætt eftirspurn frá tæknifyrirtækjum á sviði gervigreindar.
Landsnet og gagnaversfélagið Verne taka í notkun stórt tengivirki í einkaeigu
Félagið Verne Global, sem rekur umfangsmikið gagnaver hér á landi og víðar í Evrópu, og Landsnet hafa í dag tekið í notkun stærsta tengivirki í einkaeigu á Reykjanesskaga. Áfanginn er sagður marka mikilvægt skref í uppbyggingu stækkanlegra og sjálfbærra innviða fyrir afkastamikla tölvuvinnslu og gagnaver á Íslandi.
Möguleiki á sæstreng til Bandaríkjanna 2027 sem myndi „gjörbreyta stöðunni“
Hagmunasamtök iðnaðarins eiga núna í samtali við stjórnvöld vegna hugmynda um lagningu sæstrengs til Bandaríkjanna, sem gæti þá opnað fyrir uppbyggingu gervigreindargagnavera hér á landi, og náist niðurstaða á allra næstu mánuðum væri raunhæft að slíkur strengur yrði tekin í notkun sumarið 2027. Það myndi „gjörbreyta stöðu“ Íslands í gervigreindarkapphlaupinu og skilað miklum útflutningstekjum.
Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka
Til stendur að byggja eitt stærsta gagnaver Íslands við Bakka á Húsavík. Uppbyggingin muni fjölga störfum í bænum töluvert og kosta um 120 milljarða króna. Bandarískur tæknirisi gæti orðið viðskiptavinur gagnaversins.