Innlent

Leita öku­manns sem ók á dreng á reið­hjóli

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan leitar ökumannsins sem talið er að sé ung kona.
Lögreglan leitar ökumannsins sem talið er að sé ung kona. Vísir/Einar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bíls sem ók á dreng á reiðhjóli í Mosfellsbæ í gærkvöldi um kvöldmatarleytið með þeim afleiðingum að drengurinn slasaðist og skemmdir urðu á hjólinu. Ökumaðurinn er sagður hafa ekið rakleiðis af vettvangi án þess að hafa skeytt um drenginn eða líðan hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að slysið hafi orðið klukkan 18:30 í gærkvöldi við Vefarastræti 11 í Mosfellsbæ. Strákurinn sem um ræðir sé átta ára gamall.

Lögregla ítrekar að við atvik eins og þetta sé mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl né skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis sé áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar séu ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi.



„Lögreglan biður umræddan ökumann, sem talið er að sé ung kona, um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum um málið má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hildur.run@lrh.is.“

Fréttin uppfærð 15:16.

Ökumaðurinn hefur gefið sig fram, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×