Skoðun

Hvað kostar venju­legt líf?

Þórarinn Ingi Pétursson skrifar

Það er eðlilegt að sum gjöld ríkis og sveitarfélaga breytist milli ára. Kostnaður við þjónustu hækkar og hið opinbera þarf reglulega að endurskoða tekjuforsendur sínar. En hækkanir verða að vera hóflegar og samræmdar. Þær mega ekki leggjast hver ofan á aðra án þess að stjórnvöld meti hvað þær þýða samanlagt fyrir heimilin.

Þess vegna spurði ég félags- og húsnæðismálaráðherra á Alþingi 7. október sl. hvort ráðherra eða ráðuneytið hefði lagt heildstætt mat á áhrif fyrirhugaðra skatta- og gjaldahækkana á fjárhag ólíkra fjölskyldna. Þeirri spurningu þarf að svara skýrt áður en fjárlagafrumvarpið verður að lögum.

Heimilin greiða heildarreikninginn

Í fjárlagafrumvarpinu eru nefnilega ýmsar breytingar sem snerta fjárhag heimilanna. Þar má nefna hækkanir krónutölugjalda og kílómetragjalds, niðurfellingu raunhækkunar skattleysismarka og óbreyttar fjárhæðir barnabóta. Við bætist fyrirhugað afnám vaxtabóta.

Boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinna eru skref í rétta átt, en aðeins skref.

Hver breyting kann að virðast viðráðanleg ein og sér. En fjölskyldur greiða þær allar úr sama veskinu. Hækkun eins gjalds kemur til viðbótar við aðrar hækkanir og minni stuðning. Einhver verður því að bera ábyrgð á heildarmyndinni.

Við í Framsókn höfum metið áhrif frumvarpsins á ólíkar fjölskyldur. Samkvæmt þeim útreikningum geta áhrifin á hjón með tvö börn og húsnæðislán numið um 200 þúsund til yfir 300 þúsund krónum á ári þegar áætluð óbein áhrif á húsnæðislán eru talin með. Niðurstaðan fer eftir tekjum, lánasamsetningu og öðrum aðstæðum.

Þetta eru sviðsmyndir sem þarf að bera saman við mat stjórnvalda og uppfæra þegar endanlegar breytingar á frumvarpinu liggja fyrir. Þær sýna hvers vegna nauðsynlegt er að reikna dæmið til enda.

Búsetan skiptir máli

Heildarmat þarf einnig að taka mið af búsetu. Tvær fjölskyldur með sömu tekjur og jafn mörg börn geta haft mjög ólíkt svigrúm eftir því hvað vegalengdir eru langar til vinnu, í skóla og að sækja þjónustu. Þar sem einkabíllinn er nauðsyn og aðrir ferðamátar óraunsæir verður kostnaður við akstur ekki auðveldlega skorinn niður.

Fólk getur ekki einfaldlega stytt leiðina til vinnu eða fært heilbrigðisþjónustuna nær heimilinu. Þess vegna þarf að skoða breytingar á akstursgjöldum út frá raunverulegum aðstæðum fjölskyldna. Meðaltal segir ekki alla söguna.

Þetta snýst líka um framþróun á landsbyggðinni. Ef við viljum efla matvælaframleiðslu og fjölga atvinnutækifærum verðum við að huga að fjárhag þeirra fjölskyldna sem bera uppi byggðirnar. Landbúnaður, sjávarútvegur og matvælavinnsla þurfa fólk sem sér framtíð í að búa, starfa og ala upp börn í viðkomandi samfélögum.

Áform um atvinnuuppbyggingu verða því að endurspeglast í ákvörðunum um skatta, gjöld og þjónustu. Það þarf að vera fjárhagslega raunhæft að setjast að þar sem tækifærin eru.

Kjarabætur þurfa að skila sér

Í sumum heimilisdæmum okkar þyrfti um tveggja til fjögurra prósenta launahækkun, umfram almennar launahækkanir næsta árs, til að mæta áætlaðri viðbótarbyrði. Þá fer hluti ávinnings af kjarabótum í að standa undir ákvörðunum hins opinbera um hækkanir gjalda eingöngu.

Þetta ætti að vera sérstakt áhyggjuefni fyrir ráðherra félags- og vinnumarkaðsmála. Tekjulægri barnafjölskyldur hafa lítið svigrúm til að mæta auknum útgjöldum. Sama krónutala vegur þyngra hjá þeim.

Boðaðar breytingar til að létta byrðar af heimilunum eru fagnaðarefni. En fjárhæðirnar þurfa að liggja fyrir. Ef barnabætur hækka þarf jafnframt að skýra hvort skerðingarmörkin fylgi með og hver ávinningurinn verður þegar aðrar breytingar eru teknar með í reikninginn.

Heildarmat áður en ákvörðun er tekin

Þetta er kjarninn í Heimilissátt Framsóknar: að meta skatta, gjöld og bætur saman út frá fjárhag ólíkra fjölskyldna og samræma ákvarðanir hins opinbera.

Ég kalla eftir að ríkisstjórnin birti slíkt mat áður en fjárlög verða samþykkt. Þar þarf að sýna áhrif eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu og greina á milli beinna áhrifa og áætlaðra óbeinna áhrifa.

Ábyrg ríkisfjármál og öflugar byggðir kalla á heildarsýn. Við verðum að vita hvað ákvarðanir okkar kosta fólkið sem á að búa, starfa og byggja upp starfsemi fyrirtækja um allt land.

Höfundur er bóndi og alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×