Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. október 2026 17:02 Sunna Björg Helgadóttir forstjóri álversins í Straumsvík. Betur fór en á horfðist þegar eldur kom upp í kerskála í álverinu í Straumsvík um hádegisbil í gær. Forstjóri Rio Tinto segir starfsmenn hafa brugðist hárrétt við, eldsupptök eru enn ókunn.
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi tvo dælubíla á vettvang en rúlla varð áltökubílnum út úr skálanum svo slökkvilið ætti auðveldara með að komast að honum. Sunna Björg Helgadóttir forstjóri álvers Rio Tinto segir viðbrögð starfsfólks hafa verið til fyrirmyndar. „Að koma auga á eldinn, hafa strax samband við slökkviliðið sem kemur fljótlega á svæðið. Fyrst kemur hópur frá slökkviliðinu og svo kemur bíllinn. Okkar starfsmenn fóru aðeins að vinna við eldinn en sáu fljótt að þeir myndu ekki ráða við hann þannig að þeir fóru bara í burtu og létu slökkviliðið um sín störf og það tókst bara ágætlega að ná eldinum niður innan eðlilegs tímaramma.“ Duft var notað en ekki vatn til slökkvistarfsins. „Það er ekki hægt að nota vatn inni í kerskála, þar er mikill straumur og mikið rafmagn þannig að unnið er með duft og þurfti í raun og veru bara að færa tækið aðeins frá til að það væri auðveldara að slökkva í honum. En svo bara var hann dreginn út úr skálanum þannig að þeir gátu farið að kæla hann betur og setja vatn á hann.“ Fjórtán starfsmenn voru á vakt í kerskálanum þegar eldurinn kom upp og segir Sunna enga hættu hafa skapast, enginn hafi slasast. Sunna segir ekki ljóst hvernig eldurinn kom upp. „Fyrst og fremst vildum við bara tryggja öryggi fólksins á svæðinu. Rannsókn er í raun og veru hafin en það er of snemmt að segja til hvað fór úrskeiðis þarna hjá okkur.“
Slökkvilið Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira