Erlent

Tugir slösuðust vegna ský­stróka á Sikil­ey

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Veðurofsinn olli miklu tjóni.
Veðurofsinn olli miklu tjóni. Skjáskot

Tugir slösuðust þegar tveir skýstrókar gengu yfir strandbæinn Marsala á vesturströnd Sikileyjar á föstudag. Bílar ultu og byggingar skemmdust, þar á meðal skóli þar sem 273 nemendur voru við nám.

Að minnsta kosti ellefu voru fluttir á sjúkrahús eftir að hafa orðið fyrir braki og glerbrotum, að því er Guardian greinir frá. Sjötugur maður var meðal þeirra sem verst varð út úr því. Hann var lagður inn á sjúkrahús í bænum Mazara del Vallo með mörg beinbrot og var ástand hans talið lífshættulegt.

Myndskeið sem birtust á föstudagsmorgun sýndu tvo skýstróka nálgast bæinn af hafi. Miklar skemmdir urðu þegar þeir gengu á land.

Sex börn slösuðust í skóla

Sex börn hlutu minniháttar skurði og skrámur þegar strokkur skall á skóla í bænum. Byggingin var rýmd í snatri.

Á drónamyndum sem teknar voru eftir á mátti sjá umfangsmiklar skemmdir á skólanum. Rúður höfðu brotnað og borð og stólar oltið um koll. Ljósmyndir frá bænum sýndu jafnframt bíla á hvolfi og skemmdir á öðrum byggingum.

Óvenjuhlýr sjór magni byli

Óveðurskerfið myndaðist við aðstæður þar sem mikill hiti var yfir Norður-Afríku og sjór í Miðjarðarhafi óvenjuhlýr miðað við árstíð.

Vísindamenn hafa varað við því að hækkandi sjávarhiti vegna loftslagsbreytinga geti aukið tíðni öflugar storma á svæðinu. Á Miðjarðarhafi myndast stöku sinnum lægðir með einkenni hitabeltisfellibylja. Þeim geta fylgt vindhraði yfir 27 metrum á sekúndu og allt að fimm metra háar öldur.

Sérfræðingar hafa meðal annars tengt metsjávarhita við óveðrið sem grandaði lúxussnekkjunni Bayesian undan ströndum Sikileyjar í ágúst 2024. Sjö fórust í því slysi, þar á meðal breski tæknifjárfestirinn Mike Lynch og dóttir hans á unglingsaldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×