Handbolti

Enn með fullt hús

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var að venju markahæst Haukakvenna.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var að venju markahæst Haukakvenna. vísir/Ernir

Haukar eru áfram með fullt hús stiga á toppi Olís-deildar kvenna í handbolta eftir sigur á Selfossi að Ásvöllum í dag.

Haukakonur náðu undirtökunum snemma leiks í dag og voru með yfirburði frá upphafi til enda. Staðan var 19-11 fyrir heimakonur í hálfleik.

Haukar bættu við eftir hléið og unnu ellefu marka sigur, 35-24.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir va rmarkahæsta Haukakvenna með sex mörk en Embla Steindórsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir skoruðu fimm. Hulda Hrönn Bragadóttir og Hulda Dís Þrastardóttir skoruðu sex hvor fyrir Selfoss.

Haukar eru sem fyrr með fullt hús stiga á toppi deildarinnar en Selfoss er með tvö stig í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×