Erlent

Á­fall fyrir Evrópu og vest­ræna sam­vinnu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vilborg Ása telur samkomulagið fela í sér mikil tíðindi.
Vilborg Ása telur samkomulagið fela í sér mikil tíðindi.

Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.

Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um samkomulagið við Rússa á samfélagsmiðli sínum Truth Social í gærkvöldi. Samkomulagið felur meðal annars í sér að Rússar geti flutt út þrjú hundruð þúsund tonn af díselolíu á alþjóðamarkaði þegar í stað, fimm hundruð þúsund lítra í nóvember og aftur milljón tonn af olíu í desember. 

Fullyrti Bandaríkjaforseti að eldsneytisverð á heimsvísu myndi með þessu lækka en stutt er í þingkosningar í Bandaríkjunum þar sem útlit hefur verið fyrir að Repúblikanar missi meirihluta sinn í báðum deildum þingsins.  Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur segir samkomulagið fela í sér mikil tíðindi.

„Þetta er ákveðið áfall fyrir Evrópu. Þarna er bara beinlínis verið að grafa undan refsiaðgerðum Evrópu og Bandaríkin voru hluti af því. En núna fara þau svona á móti, móti hagsmunum Evrópu og Úkraínu.“

Ljóst sé að markmið Bandaríkjaforseta sé að hafa áhrif á eldsneytisverð og verðbólgu í Bandaríkjunum fyrir miðannakosningar í nóvember. Sérfræðingar telji hinsvegar að aðgerðirnar muni ekki skipta eins miklu í efnahagslegu tilliti líkt og Bandaríkjaforseti bindi vonir við.

„Þetta er einfaldlega enn eitt dæmið um það að Evrópulönd standa ein með Úkraínu, að það er ekki hægt að treysta á Bandaríkin þegar kemur að stríðinu í Úkraínu.“

Þannig sé samkomulagið enn eitt dæmið um það núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum meti vestræna samvinnu ekki eins mikils og fyrri stjórnvöld hafi gert frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

„Eins og er er stærsta ógnin sem steðjar að Evrópu Rússland, aðgerðir Rússlands í Úkraínu og víðar um alla Evrópu, fjölþáttaógnir sem beinast gegn Evrópuríkjum og þetta er enn eitt dæmið um það að við þurfum að finna út úr því sjálf.“

Rússar hafi undanfarna mánuði fært sig upp á skaftið með fjölþáttaaðgerðum í Evrópu, meðal annars í Þýskalandi og Póllandi. 

Hvaða áhrif heldurðu að þetta samkomulag muni hafa á hegðun Rússa?

„Þetta gefur Pútín byr undir báða vængi. Þetta er ekki líklegt til að draga úr vilja Pútíns til að halda áfram sínum undirgrafningi í Evrópu, að grafa undan öryggi Evrópuríkja.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×