Viðskipti innlent

Ráðinn fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá Kea­hótelum

Atli Ísleifsson skrifar
Jökull Alexander Egilsson.
Jökull Alexander Egilsson. KEA Hotels

Jökull Alexander Egilsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum ehf. og hefur þegar hafið störf.

 Í tilkynningu segir að Jökull hafi mikla reynslu af hótel- og veitingarekstri og sé menntaður í faginu.

„Jökull hefur gegnt fjölbreyttum stjórnunarstöðum á hótelum í Reykjavík frá árinu 2011 og starfað sem hótelstjóri síðastliðinn áratug. Í þeim störfum hefur hann borið ábyrgð á bæði gisti- og veitingarekstri hótelanna. Árið 2021 leiddi hann opnun hótelsins Granda og hefur stýrt því allt þar til hann kom til Keahótela.

Erlendis starfaði Jökull meðal annars á Grand Hyatt í Atlanta í Bandaríkjunum, þar sem hann lauk stjórnendaþjálfun Hyatt, og á fimm stjörnu hótelinu Alpina Gstaad í Sviss. Hann er með BA-gráðu í alþjóðaviðskiptum með áherslu á hótel- og ferðaþjónustustjórnun frá César Ritz Colleges í Sviss og hefur jafnframt kennt hótel- og ferðaþjónustustjórnun við Háskólann í Reykjavík.

Keahótel reka tíu hótel víðs vegar um landið og sem framkvæmdastjóri rekstrar hefur Jökull yfirumsjón með daglegri starfsemi þeirra. Í starfinu mun hann leggja ríka áherslu á framúrskarandi upplifun gesta, öfluga liðsheild og góðan rekstrarárangur. Jökull situr í framkvæmdastjórn Keahótela,“ segir í tilkynningunni.

Keahótel er eitt stærsta hótelfélag landsins og rekur tíu hótel víðs vegar um landið. Í Reykjavík eru Hótel Borg, Apótek Hótel, Sand Hótel, Hótel Skuggi, Storm Hótel og Reykjavík Lights Hótel. Utan höfuðborgarinnar rekur félagið Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Kötlu við Vík og Hótel Grímsborgir í Grímsnesi. Hjá félaginu starfa um 350 starfsmenn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×