Nærri því áttatíu borgara liggja í valnum eftir árásir Rússa Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 23:52 Frá vettvangi einnar árásar Rússa í Úkraínu. Í henni hæfði eldflaug fjölbýlishús í bænum Pryluky. AP/Evgeniy Maloletka Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert umfangsmiklar árásir á Úkraínu á undanförnum dögum og Úkraínumenn hafa einnig gert árásir í Rússlandi. Rússar hafa þó ákveðið forskot um þessar mundir, þar sem Úkraínumenn eiga erfitt með að verjast skotflaugaárásum Rússa. Doctors are now fighting to save the lives of people injured in the Russian strike on Kramatorsk. As of now, 30 people have been confirmed killed, and sadly, that number may rise. The Russian bomb effectively hit two city minibuses. Some of those killed have still not been identified because of the severity of their injuries. My condolences to all their families and loved ones. Another 18 people were injured in the strike. Residential buildings and cars were also damaged. This strike will not go unanswered. Russia is trying to destroy all life in Donbas, and a response from the world is a must. A forceful response – exactly as the Russians deserve for all the deaths they have brought. May all those killed rest in peace.— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 8, 2026 Þá eru Rússar einnig farnir að nota nýja gerð langdrægra sjálfsprengidróna. Þeir eru þotuknúnir og fara mun hraðar en fyrri drónar sem Rússar hafa notað til árása í Úkraínu. Drónunum nýju hefur verið líkt við ódýrar stýriflaugar, þar sem þeir fljúga lágt og hratt að skotmörkum sínum svo erfitt er að skjóta þá niður með þeim aðferðum sem Úkraínumenn hafa þróað á undanförnum árum. Úkraínumenn eru að þróa eigin þotuknúna dróna sem eru smáir og til stendur að nota til að granda sjálfsprengidrónum Rússa. Ráðamenn í Úkraínu hafa áhyggjur af því að veturinn verði þeim erfiður og heita því að gera sitt til að það sama gildi fyrir Rússa. Mótmælti orðum Rubios Þá mótmælti Selenskí orðum Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að þrátefli ríkti í viðræðum milli Úkraínu og Rússlands. Rubio sagði í Portúgal í morgun að Bandaríkjamenn vildu sjá samið um frið milli Úkraínu og Rússlands. Sá friður þyrfti að vera sanngjarn og langvarandi. Hann sagði að því fyrr sem slíkt samkomulag næðist, því betra. „Bandaríkin eru reiðubúin til að hjálpa til við það. Við höfum reynt. Við munum halda áfram að reyna en við munum ekki verja of miklu í tilgangslaust ferli ef við náum engum árangri.“ Vilja nota Starlink í Rússlandi Selenskí kallaði eftir því að Bandaríkjamenn opnuðu á notkun Starlink-móttökustöðva í Rússlandi, sem myndi gera Úkraínumönnum auðveldara að finna og gera árásir á skotpalla Rússa í Rússlandi. Þannig vonast Úkraínumenn til að draga úr skotflaugaárásum á Úkraínu, þar sem mikill skortur er á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem virka gegn skotflaugum. „Opnið Starlink fyrir Úkraínu. Þið gerðuð það þegar þið voruð að bregðast við Íran. Ég hef sagt það opinberlega. Gerið okkur þetta kleift, hjálpið okkur að verja himinn okkar og stjórna þarna. Þá mun Pútín setjast niður við samningsborðið,“ sagði Selenskí, eins og fram kemur í grein Reuters. Selenskí sagði að ef opnað yrði á þessa leið fyrir Úkraínumenn myndi Pútín „tapa öllu“ á tveimur til þremur mánuðum. Það að geta notað Starlink-móttökustöðvar myndi auðvelda Úkraínumönnum drónaárásir í Rússland, þar sem þeir gætu stýrt þeim og það myndi einnig gera Rússum erfiðara að stöðva þá með rafrænum truflunum, svo eitthvað sé nefnt. Selenskí sagði að á meðan Úkraínumenn gætu þetta ekki, væru Rússar að bíða eftir sambærilegri tækni frá Kína, sem myndi auðvelda þeim árásir í Úkraínu. „Þetta er ekki þrátefli. Þetta er viljaskortur.“ President Zelenskyy’s comment on US Secretary of State Marco Rubio’s remarks that the war in Ukraine is at a "strategic stalemate" and that there are now "no prospects for a negotiated settlement": "You cannot negotiate future economic projects with Russians on the one hand and, on the other, claim that we are in some kind of diplomatic stalemate. We are not in a diplomatic stalemate. Shut down Russia’s entire economy. Shut Russia's mouth. Stop feeding them through your sales. Impose sanctions on their weapons. Open Starlink for Ukraine. You opened it when responding to Iran, after all. Everything worked there. Israel completely controlled the skies over Iran. So when you need it to work, it works. It costs them nothing to help Ukraine. And I said quite frankly: help us protect our skies and gain dominance there. Then Putin will sit down at the negotiating table. Why? Because he will lose everything. In two or three months, he will lose everything. And instead, we are waiting for the Chinese to develop an equivalent and hand it over to Russians. This is not a stalemate - this is called a lack of will."— Anton Gerashchenko (@Gerashchenko_en) October 8, 2026 Sagðir hafa gert útaf við vonir Pútíns um að ná Dónetsk Áður en hann varð forseti á nýjan leik hét Trump því að binda enda á stríðið á sínum fyrsta degi í embætti eða jafnvel fyrr. Viðleitni hans til að hafa bein áhrif á Pútín hefur engu skilað og sérstakir erindrekar hans, þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, tengdasonur Trumps og vinur hans, hafa einnig litlum árangri náð þegar kemur að því að koma á friði. Þá hafa Bandaríkjamenn reynt að fá Úkraínumenn til að verða við núverandi kröfum Rússa og gefa eftir restina af Donbas-svæðinu, sem myndað er af Dónetsk- og Lúhanskhéruðum. Rússar stjórna svo gott sem öllu Lúhansk en Úkraínumenn stjórna enn stórum hluta Dónetsk en það svæði er gjarnan kallað „virkisbelti“ Úkraínu. Rússar hafa lagt gífurlega mikla áherslu á að hernema þetta svæði en það hefur gengið mjög hægt og er talið hafa kostað þá mjög í mönnum og hergögnum á undanförnum árum. Undanfarið hefur Rússum orðið lítið ágengt í Dónetsk. Úkraínumenn hafa staðið í gagnárásum í héraðinu á síðustu mánuðum sem virðast hafa gengið mjög vel. Sjá einnig: Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Í greiningu hugveitunnar Institute for the study of war segir að útlit sé fyrir að Úkraínumenn hafi gert útaf við vonir Pútíns um að ná Dónetsk á þessu ári. Það vildu Rússar gera með því að fara framhjá virkisbeltinu og umkringja það en Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað þær tilraunir. Samhliða þessum hægagangi Rússa á víglínunni hefur aukið púður verið fært í árásir á úkraínskar borgir fyrir veturinn. Gagnrýndi einnig viðskiptavangaveltur Bandaríkjamanna Nýverið bárust fregnir af því að Bandaríkjamenn væru að íhuga að gera þær breytingar að bjóða Rússum umfangsmikla viðskiptasamninga áður en friði hefur verið komið á. Það á að vera til að sýna að þeim sé alvara með að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands. Meðal annars hafa bandarískir og rússneskir erindrekar rætt um að fá bandaríska fjárfesta til að koma að Nord Stream-gasleiðslunum, sem fluttu jarðgas frá Rússlandi til Evrópu fyrir innrásina í Úkraínu 2022. Selenskí ýjaði að þessum fregnum í samtali við blaðamenn í dag, þegar hann hafði gagnrýnt orð Rubios um þrátefli. „Þú getur ekki annars vegar samið við Rússa um framtíðarviðskiptasamninga, á sama tíma og þú segir að við séum í einhvers konar pólitísku þrátefli.“ Selenskí sagði í lok síðasta mánaðar að hann hefði fengið þau skilaboð frá Bandaríkjamönnum að mögulega yrði haldinn þriggja hliða fundur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hann lýsti þó yfir miklum efasemdum um að Pútín hefði raunverulegan áhuga á því að setjast við samningaborðið og ekkert hefur heyrst af þessum fundi. Úkraínskir erindrekar munu ferðast til Bandaríkjanna á morgun og ræða þar við embættismenn Trumps. Selenskí sagði í dag að meðal annars myndu þeir tala um loftvarnir og linnulausar árásir Rússa á úkraínskar borgir.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Hernaður Donald Trump Vladimír Pútín Tengdar fréttir Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. 7. október 2026 11:31 Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á brú í norðurhluta Kænugarðs í nótt. Borgarstjóri höfuðborgarinnar í Úkraínu segir árásina merki um aukningu árása á mikilvæga innviði Kænugarðs. 3. október 2026 09:50 Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu. 2. október 2026 11:15 Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. 30. september 2026 11:01 Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“. 29. september 2026 10:58 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira
Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. 7. október 2026 11:31
Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á brú í norðurhluta Kænugarðs í nótt. Borgarstjóri höfuðborgarinnar í Úkraínu segir árásina merki um aukningu árása á mikilvæga innviði Kænugarðs. 3. október 2026 09:50
Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu. 2. október 2026 11:15
Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garrí Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. 30. september 2026 11:01
Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“. 29. september 2026 10:58