Lífið

Opin­bera haustrómantík á Spáni

Samúel Karl Ólason skrifar
Jóhann Hlíðar Helgason og Helga Möller í Cartagena á Spáni.
Jóhann Hlíðar Helgason og Helga Möller í Cartagena á Spáni. Facebook/Jóhann Hlíðar

Helga Möller söngkona og Jóhann Hlíðar Helgason fréttamaður hafa fundið ástina og það á Spáni. Bæði birtu í kvöld mynd af þeim saman en henni fylgdi textinn: „Haustrómantík í Cartagena…“

Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið.

Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tók fyrst þátt, þegar hún flutti Gleðibankann ásamt Eiríki Haukssyni og Pálma Gunnarssyni.

Jóhann Hlíðar hefur lengi búið og starfað á Spáni en þaðan hefur hann lengi sent frá sér pistla um fréttaefni á Spáni og víðar í heiminum.


Tengdar fréttir

Helga Möller í pólitíkina

Söngkonan Helga Möller hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook síðu sinni og segist stefna á þriðja eða fjórða sætið í prófkjörinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.