„Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Starri Freyr Jónsson skrifar 8. október 2026 11:13 „Fljótlega eftir hvern viðburð lítum við yfir farinn veg og veltum fyrir okkur hvað gekk vel og hvað má bæta,“ segir Jón Sigurður Þórarinsson, sérfræðingur í Greiningu og ráðgjöf hjá Creditinfo. Listinn yfir Framúrskarandi fyrirtæki verður birtur 28. október. Anton Brink Á hverju hausti hefst ákveðinn lokasprettur hjá Creditinfo. Ársreikningar streyma inn, símtölum og tölvupóstum fjölgar og hundruð fyrirtækja eru tekin til nákvæmrar skoðunar. Markmiðið er að finna þau fyrirtæki sem standast ströng skilyrði Creditinfo og geta með réttu talist til Framúrskarandi fyrirtækja.
Einn þeirra sem þekkir þessa vinnu hvað best er Jón Sigurður Þórarinsson, sérfræðingur í Greiningu og ráðgjöf hjá Creditinfo. Samstarfsfólkið hefur stundum kallað hann „Listamanninn“ enda er hann aðalmaðurinn á bak við gerð listans. Þótt lokaspretturinn standi nú sem hæst segir Jón vinnuna í raun standa yfir allt árið. „Fljótlega eftir hvern viðburð lítum við yfir farinn veg og veltum fyrir okkur hvað gekk vel og hvað má bæta. Í upphafi hvers árs metum við líka hvort ástæða sé til að breyta skilyrðunum. Við reynum til dæmis að passa að eigna- og tekjuskilyrðin þróist nokkurn veginn í takt við verðlagsþróun.“ Síminn fer að hringja oftar Fyrirtæki skila ársreikningum jafnt og þétt yfir árið en meginþorri þeirra berst Creditinfo frá ágúst og fram í október. Þá hefst lokaspretturinn hjá Jóni og samstarfsfólki hans. „Listavinnslan sjálf hefst af alvöru í byrjun ágúst og stendur alveg fram að viðburðinum. Ársreikningaskilyrðin eru fimm af tólf skilyrðum sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að komast á listann.“ Það mætti halda að yfirferð ársreikninga væri flóknasti hluti vinnunnar en Jón segir svo ekki vera. Önnur skilyrði geti kallað á mun meiri rannsóknarvinnu. Þar má nefna skilyrði um að fyrirtæki séu virk, sjálfbærniskilyrði og skilyrði um kynjahlutföll í aðalstjórn. Skilyrðin um eignir, tekjur og hagnað eru ströngustu skilyrðin. Þá þarf ársreikningi einnig að hafa verið skilað á réttum tíma samkvæmt lögum. „Við viljum gjarnan tryggja að félög sem eiga þess kost að komast á listann falli ekki á skiladagsetningu. Það útheimtir fjölda símtala og tölvupósta.“ Á sama tíma fjölgar fyrirspurnum frá fyrirtækjum sem vilja gjarnan sjá nafn sitt á listanum. Það er því nóg að gera hjá starfsfólki Creditinfo við að rýna fyrirtæki og svara símtölum og tölvupóstum fram á síðustu stundu. Þrjú góð ár skipta sköpum Það er enginn hægðarleikur að komast í hóp Framúrskarandi fyrirtækja. Jón segir rekstrarskilyrðin almennt vera langmest takmarkandi enda þurfi fyrirtæki að uppfylla þau þrjú ár í röð. „Skilyrðin um eignir, tekjur og hagnað eru ströngustu skilyrðin. Þetta þýðir meðal annars að eitt slæmt rekstrarár getur haft áhrif um töluverðan tíma. Sum detta út á milli ára en önnur koma ný inn.“ Fyrirtæki getur verið stórt, áberandi og að því er virðist í miklum blóma án þess að eiga möguleika á sæti á listanum. „Eitt ár af taprekstri hefur þau áhrif að fyrirtæki kemst ekki á listann í þrjú ár hið minnsta þar sem við horfum til rekstrarniðurstaðna síðustu þriggja ársreikninga.“ Hið gagnstæða getur líka átt við. Jón segir eitt það skemmtilegasta við vinnuna vera að rekast á fyrirtæki sem fer lítið fyrir í daglegri umræðu en reynast einstaklega traust og vel rekin. „Oft eru þetta fyrirtæki sem ég hafði litla eða enga hugmynd um en eru stöðug og vel rekin og eiga sér jafnvel mjög langa sögu. Þetta eru gjarnan fyrirtæki með tiltölulega litla yfirbyggingu, í mjög sérhæfðum rekstri, sem láta ekki mikið yfir sér.“ Aðeins lítið brot kemst í gegn Gögnin á bak við Framúrskarandi fyrirtæki gefa jafnframt áhugaverða mynd af íslensku atvinnulífi. Undanfarin tíu ár hefur hlutfall fyrirtækja sem uppfylla skilyrðin verið merkilega stöðugt. „Hlutfall Framúrskarandi fyrirtækja af fyrirtækjum í landinu hefur verið á bilinu 2,3 til 2,5 prósent undanfarin tíu ár. Með öðrum orðum stenst svipað hlutfall fyrirtækja skilyrði Creditinfo ár eftir ár, óháð efnahagsumhverfinu.“ Mynd/Creditinfo Það eru þó ekki alltaf sömu fyrirtækin. Sum detta út á milli ára en önnur koma ný inn. Efnahagsástandið getur einnig haft mismunandi áhrif á einstakar atvinnugreinar. Skýrt dæmi um það er ferðaþjónustan. Á árunum 2021 til 2023 fækkaði ferðaþjónustufyrirtækjum á listanum verulega vegna áhrifa heimsfaraldursins. Þeim fjölgaði aftur árið 2024 og síðustu tvö ár hafa þau verið fleiri en fyrir faraldurinn. Háir vextir og verðbólga geta sömuleiðis sett strik í reikninginn. „Hærri vextir ættu að öðru óbreyttu að hafa neikvæð áhrif á rekstur fyrirtækja enda leiða þeir til hærri afborgana og vaxtagreiðslna af lánum. Það er erfitt að segja nákvæmlega til um áhrif vaxta og verðbólgu á fjölda fyrirtækja á listanum en líklega draga þau úr fjölgun fyrirtækja.“ Hlutfall Framúrskarandi fyrirtækja af fyrirtækjum í landinu hefur verið á bilinu 2,3 til 2,5 prósent undanfarin tíu ár. Jón bendir þó á að ársreikningar segi ekki alla söguna um stöðu fyrirtækja í dag. Þess vegna sé einnig horft til lánshæfismats, enda þurfi fyrirtæki á listanum að vera í einum af þremur bestu lánshæfisflokkum Creditinfo. „Vanskil fyrirtækja eru ekki sérstaklega há í sögulegu samhengi. Almennt séð held ég því að íslenskt atvinnulíf sé á fínum stað þó að ýmsar blikur séu á lofti.“ Allir leggjast á eitt Nú styttist í að vinnan undanfarna mánuði skili sér endanlega þegar Framúrskarandi fyrirtæki verða kynnt í Hörpu 28. október. Jón segir stemninguna í höfuðstöðvum Creditinfo í Borgartúni magnast jafnt og þétt eftir því sem nær dregur. „Undirbúningurinn hefur snertifleti við allar deildir Creditinfo. Símtölum við fyrirtækin fjölgar eftir því sem líður á mánuðinn og að mörgu er að huga.“ Á stóra deginum leggst svo allt starfsfólk Creditinfo á eitt. „Allt starfsfólkið mætir á viðburðinn og við höfum öll ákveðnu hlutverki að gegna, hvort sem það er að taka á móti fulltrúum fyrirtækjanna á listanum, afhenda viðurkenningar eða sjá um ljósmyndun.“ Þá getur Listamaðurinn loksins lagt listann frá sér, að minnsta kosti í smástund. Áður en langt um líður hefst nefnilega undirbúningurinn fyrir næsta lista.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026 Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Frá löngum gátlista yfir í flennigír og fögnuð Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Eina vottunin sem sýnir hvaða fyrirtæki skara raunverulega fram úr Sjá meira