Skoðun

Er einka­væðingin hættu­legri en gervigreindin?

Kristján Logason skrifar

Við höfum eytt undanförnum mánuðum í að ræða hættuna af gervigreind. Sagt er að hún muni taka störfin okkar, auka ójöfnuð, grafa undan lýðræði og jafnvel verða ógn við sjálft samfélagið.

Það er kannski rétt.

En það er hugsanlegt að meiri hætta liggi annars staðar.

Hvað ef stærsta vandamálið verður ekki gervigreindin sjálf heldur sú staðreynd að við höfum, áður en hún breytir samfélaginu, selt frá okkur þá innviði, tekjustofna og stjórntæki sem ríkið þarf til þess að takast á við breytingar framtíðarinnar?

Ef gervigreind og sjálfvirkni draga verulega úr eftirspurn eftir vinnuframlagi fólks verður helsta verkefni ríkisins ekki að halda útgjöldum niðri. Það verður að tryggja að borgarar geti áfram lifað mannsæmandi lífi. Hvernig tryggjum við fólki húsaskjól, hita, rafmagn, heilbrigðisþjónustu, fjarskipti og aðgang að samfélaginu ef vinnulaun hætta að vera jafn örugg leið og áður til þess að dreifa verðmætum samfélagsins og standa undir skattstofni ríkisins?

Þá skiptir miklu máli hver á orkuna, fjarskiptin, grunninnviðina og þau fyrirtæki sem samfélagið getur ekki verið án.

Því einkavæða má eignina.

En ábyrgðina virðist mun erfiðara að einkavæða.

Það er í þessu samhengi sem umræða síðustu ára um einkavæðingu mikilvægra íslenskra innviða verður allt í einu miklu alvarlegri.

Við erum nefnilega að ræða um að selja frá okkur hluti sem við vitum ekki hversu mikilvægir verða eftir tíu, tuttugu eða þrjátíu ár.

Eignin fer — ábyrgðin verður eftir

Í umræðu um einkavæðingu er gjarnan rætt um söluverðið.

Hversu mikið fæst fyrir fyrirtækið?

Hversu mikið má lækka skuldir ríkisins?

Getur einkaaðili rekið fyrirtækið betur?

Þetta eru í sjálfu sér eðlilegar spurningar. En ein mikilvægasta spurningin gleymist samt yfirleitt:

Hver ber endanlega ábyrgð þegar eitthvað fer úrskeið is?

Við höfum reyndar þegar fengið svarið við þeirri spurningu.

Það er samfélagið.

Þegar bankakerfið hrundi gat ríkið einfaldlega ekki staðið hjá og sagt að bankarnir væru fyrirtæki á markaði og eigendur þeirra yrðu að bjarga sér sjálfir. Samfélagið þurfti að tryggja áframhaldandi fjármálakerfi.

Þegar Covid skall á gat ríkið heldur ekki sagt að rekstraráhætta væri einkamál fyrirtækja. Tugum milljarða var varið í stuðningsaðgerðir, launatengd úrræði, tekjufallsstyrki, viðspyrnustyrki, lokunarstyrki og ríkisábyrgðir með það yfirlýsta markmið að verja störf og halda atvinnulífinu gangandi.

Það má færa mjög sterk rök fyrir þessum aðgerðum. Hefði ríkið ekki gripið inn í hefði tjónið getað orðið miklu meira.

En Covid sýndi okkur eitthvað sem við ættum ekki að gleyma:

Áhætta einkarekstrar er aðeins einkarekin upp að ákveðnu marki. Þegar tjónið verður nógu stórt verður það samfélagslegt.

Þess vegna hefði verið eðlilegt að minnsta kosti að ræða hvort stór opinber fjárframlög til ákveðinna fyrirtækja ættu í sumum tilfellum að koma gegn eignarhlut, breytanlegu láni eða öðrum rétti samfélagsins til framtíðarverðmæta.

Ef skattgreiðendur taka áhættuna þegar illa gengur er ekki fráleitt að spyrja hvort þeir eigi að fá hlutdeild í ávinningnum þegar fyrirtækið kemst aftur á réttan kjöl.

Annars skapast undarlegt fyrirkomulag:

Hagnaðurinn er einkavæddur.

Áhættan er samfélagsvædd.

HS Orka og varnargarðarnir

Jarðhræringarnar á Reykjanesskaga hafa sýnt þetta skýrt.

HS Orka er einkarekið orkufyrirtæki. Ríkið seldi hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja árið 2007 og sveitarfélög seldu síðar sína hluti. Í dag er félagið að helmingi í eigu Jarðvarma, sem er í eigu íslenskra lífeyrissjóða, og að helmingi í eigu sjóða í stýringu breska innviðafjárfestingafélagsins Ancala.

En þegar eldgos hótuðu Svartsengi breyttist umræðan.

Ríkið gat ekki sagt: Þetta er einkafyrirtæki. Eigendurnir geta séð um sig sjálfir.

Svartsengi er einfaldlega of mikilvægt. Þar fer fram framleiðsla á heitu vatni fyrir Suðurnes og þar eru mikilvægir raforkuinnviðir. Ríkið fór því í umfangsmiklar varnaraðgerðir.

Varnargarðar voru reistir, hraun kælt og hitaveitulagnir varðar. Í nóvember 2025 var kostnaður ríkissjóðs af þessum aðgerðum kominn yfir ellefu milljarða króna. Síðar óskaði fjármálaráðuneytið eftir mati á því hvort þeir sem nutu góðs af aðgerðunum, meðal annars HS Orka, HS Veitur og Bláa lónið, ættu að taka þátt í kostnaðinum.

HS Orka hefur aftur á móti bent á að varnargarðarnir hafi fyrst og fremst verið reistir til að verja almannahagsmuni og því eigi þeir ekki hlutdeild í kostnaði. Og það er einmitt mergurinn málsins. Báðir geta haft rétt fyrir sér. Varnargarðarnir verja eignir einkafyrirtækis.En ríkið varð að verja þær vegna almannahagsmuna.

Eignin var einkav æ dd. Endanlega ábyrgðin var það ekki.

Það er sú setning sem við þurfum að hafa í huga þegar næsta einkavæðing er rædd.

Þegar einkafyrirt æ ki verður of mikilv ægt til a ð mega stöðvast

Við sáum annað afbrigði af sama vandamáli nýlega hjá Icelandair.

Þegar flugvirkjar hófu verkfall í september var ríkisstjórnin tilbúin að kalla Alþingi saman og setja lög á verkfallið. Verkfallinu var síðan aflýst eftir samkomulag um fjögurra vikna samningalotu og því kom ekki til lagasetningar. Icelandair er einkafyrirtæki. En starfsemi þess er svo mikilvæg fyrir eylandið Ísland að stjórnvöld töldu hugsanlega ekki unnt að leyfa því að stöðvast.

Þetta vekur erfiða en nauðsynlega spurningu.

Ef starfsemi einkafyrirtækis er svo þjóðhagslega mikilvæg að ríkið telur sig þurfa að grípa inn í kjaradeilu til þess að tryggja áframhaldandi rekstur, hvaða samfélagslega ábyrgð fylgir þá þeirri sérstöðu?Þjóðhagsleg ábyrgð getur varla aðeins gilt um starfsmenn.

Ef fyrirtæki nýtur þeirrar stöðu að samfélagið getur ekki leyft því að falla eða stöðvast er það orðið eitthvað meira en venjulegt fyrirtæki. Það er orðið hluti af innviðum samfélagsins.

Við h ö fum þegar misst sambandið

Fjarskiptin sýna enn eina hlið málsins.

Lokun eldri 2G- og 3G-kerfa var tæknilega séð eðlileg þróun. Ný kerfi nýta tíðnir betur og bjóða meiri flutningsgetu. En eftir lokunina kom í ljós að sumir símar gátu ekki tengst neyðarnúmerinu 112 þótt þeir gætu að öðru leyti nýtt farsímaþjónustu. Vandamálið var nógu alvarlegt til þess að Fjarskiptastofa setti sérstakar leiðbeiningar, varanúmer við 112 og hóf vinnu við nýjar kröfur um prófanir farsíma. Þarna blasir við einföld staðreynd:

Fjarskipti eru ekki lengur munaðarvara. Þau eru ö ryggiskerfi.

Þau eru aðgangur að stjórnvöldum, banka, heilbrigðisþjónustu, vinnu, upplýsingum og neyðarþjónustu. Og mikilvægi þeirra mun aðeins aukast.

Raunar virðast stjórnvöld sjálf hafa áttað sig á þessu á öðrum hluta fjarskiptakerfisins. Farice, Öryggisfjarskipti og tæknihluti Neyðarlínunnar voru sameinuð á þessu ári í Korda, félagi í fullri eigu ríkisins. Korda rekur nú sæstrengina sem tengja Ísland við umheiminn, Tetra-kerfið og önnur mikilvæg öryggisfjarskipti. Félagið kallar þessa innviði sjálft „líflínu fjarskipta Íslands“.

Líflínu selur maður ekki frá s é r án þess að hugsa mj ö g langt fram í tímann.

Og samt viljum við selja meira

Áfram heldur umræðan um sölu samfélagslegra eigna.

Á þessu þingi hefur verið lagt fram frumvarp þar sem markmiðið er beinlínis að ríkið selji eignarhlut sinn í Landsbankanum, að hluta eða öllu leyti.

Í stjórnmálaumræðu hafa einnig komið fram tillögur um sölu hluta í Landsneti og RARIK og hugmyndir um að selja stóran minnihlutahlut í Landsvirkjun. Í Reykjavík hafa komið fram hugmyndir um sölu Ljósleiðarans og annarra eigna Orkuveitunnar.

Hugmyndir um einkavæðingu knýja hinsvegar fram alvarlega spurningu:

Hvaða eignir má samf é lagið leyfa s é r að missa stj ó rn á ?

Landsvirkjun er gott dæmi. Fyrirtækið greiddi ríkissjóði um 110 milljarða króna í arð vegna rekstraráranna 2021–2025. Um tuttugu milljarðar runnu í ríkissjóð á þessu ári einu. Þegar rætt er um að selja hlut í slíku fyrirtæki er því ekki nóg að segja hvað fæst fyrir hlutinn í dag.

Við verðum líka að spyrja:

Hvaða arð seljum við frá okkur næstu fimmtíu árin?

Hvaða áhrif seljum við?

Hvaða ákvörðunarvald?

Og hvers virði verður það ákvörðunarvald í samfélagi sem getur verið gjörólíkt okkar samfélagi?

Gervigreindin breytir d æ minu

Þarna komum við aftur að gervigreindinni. Við vitum ekki hversu mörgum störfum hún mun útrýma. Kannski verður þróunin mun hægari en svartsýnustu spár gera ráð fyrir. Kannski verða til jafn mörg störf og hverfa. En jafnvel þá er líklegt að gervigreind breyti því hvernig verðmæti verða til. Fyrirtæki geta framleitt meira með færra fólki. Vinnulaun geta orðið minni hluti af verðmætasköpun hagkerfisins. Fólk færist til í starfi, Vinnutími verður styttri og hlutastörfum fjölgar.

Þá getur skattstofn sem byggir að verulegu leyti á vinnu fólks veikst á sama tíma og þörfin fyrir samfélagslega þjónustu eykst. Við gætum því staðið frammi fyrir samfélagi þar sem ríkið þarf að tryggja borgurum ákveðnar grunnforsendur lífs óháð stöðu þeirra á vinnumarkaði.

Það þarf að tryggja hita, rafmagn, heilbrigðisþjónustu, húsaskjól, fjarskipti og síðar hugsanlega tölvugetu og aðgang að gervigreind. Ef við höfum þá þegar selt frá okkur stóran hluta þeirra kerfa sem veita þessa þjónustu verður ríkið komið í einkennilega stöðu.

Það ber ábyrgðina. En einhver annar á kerfið.

Frá rafmagni yfir í g ö gn

Við þurfum líka að hugsa lengra en til hefðbundinna innviða. Fyrir hundrað árum voru vegir, hafnir, vatnsveitur og rafmagn augljósir grunninnviðir. Í dag eru fjarskipti það líka. Á næstu árum bætast líklega nýir innviðir við: gagnageymsla, reikniafl, stafræn auðkenning, gagnatengingar, og gervigreindarkerfi.

Ef íslensk stjórnsýsla, heilbrigðiskerfi, atvinnulíf og almenningur verða háð nokkrum erlendum fyrirtækjum um þessa þjónustu getum við verið fullvalda að lögum en samt orðið mjög háð ákvörðunum sem teknar eru annars staðar.

Þá verður fullveldi ekki aðeins spurning um fána, landhelgi og stjórnarskrá.

Það verður líka spurning um hver á og stjórnar kerfunum sem samfélagið getur ekki starfað án.

Hver ákveður verðið?

Hver ákveður hver fær þjónustu?

Hver ákveður hvað gerist þegar skortur verður?

Hver getur lokað?

Hver getur sagt nei?

Hver ræður í raun?

Borgari eða viðskiptavinur?

Kannski liggur stærsti munurinn hér. Í markaðshagkerfi erum við viðskiptavinir. Ef það borgar sig ekki að veita okkur þjónustu getur verið fullkomlega eðlilegt fyrir fyrirtæki að hætta því. En í samfélagi erum við borgarar. Samfélag getur ekki sagt við mann sem þarf að komast í samband við 112: “Því miður borgaði sig ekki að reka kerfið þar sem þú ert”. Það getur ekki sagt við fjölskyldu í janúar: “Því miður hafið þið ekki efni á hita.”

Og ef vinnumarkaðurinn breytist vegna gervigreindar getur þessi munur orðið ein mikilvægasta spurning næstu áratuga. Viðskiptavinur sem getur ekki borgað er slæmur viðskiptavinur. Borgari sem þarf aðstoð er samfélagsleg ábyrgð. Þess vegna getum við ekki ákveðið í dag hvaða innviði við seljum eingöngu út frá því hvaða verð fæst fyrir þá árið 2026.

Hver ber ábyrgð ina?

Við vitum nú þegar hver reddar málunum þegar allt fer úrskeiðis.

Ríkið kom þegar bankarnir féllu.

Ríkið kom þegar Covid lokaði samfélaginu.

Ríkið reisir varnargarðana þegar hraunið stefnir á mikilvæga innviði.

Ríkið íhugar að grípa inn þegar flugsamgöngur stöðvast.

Ríkið verður að tryggja neyðarsamband þegar fjarskiptakerfi breytast.

Og ríkið mun hlaupa undir bagga þegar næsta stóra áfall dynur yfir.

Það er ekki gagnrýni á ríkið. Það er hlutverk þess.

En ef samfélagið ber alltaf endanlega ábyrgð vaknar sú spurning hvers vegna það eigi kerfisbundið að selja frá sér eignirnar, tekjurnar og ákvörðunarvaldið sem geta hjálpað stjórnvöldum að bera þá ábyrgð.

Eignarhaldið má einkavæða. Endanlega samf é lagslega ábyrgðin verður eftir.

Það er þess vegna sem einkavæðing grunninnviða er ekki bara spurning um rekstrarform.

Hún er spurning um áhættustýringu.

Hún er spurning um getu framtíðarkynslóða til að taka ákvarðanir.

Og að lokum er hún spurning um fullveldi.

Við spyrjum gjarnan hvers virði Landsvirkjun, Landsbankinn eða Ljósleiðarinn séu á markaði í dag.

Sú spurning er sennilega röng.

Við ættum frekar að spyrja:

Hvers virði verð ur það fyrir Íslendinga árið 2050 eða 2070 að eiga enn og stj ó rna þeim kerfum sem samf é lagið getur ekki verið á n?

Og áður en við seljum þau ættum við að geta svarað einni spurningu til viðbótar:

Ef við seljum eignina en sitjum áfram uppi með ábyrgðina — hva ð gr æ ddi samf é lagið á s ö lunni?

Höfundur er ljósmyndari og áhugamaður um gervigreind.




Skoðun

Sjá meira


×