Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir, Sigríður Maack og Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifa 5. október 2026 16:01 Birta við eldhúsborðið. Skjól á leiðinni í skólann. Tré fyrir utan gluggann og bekkur þar sem hægt er að staldra við. Ró til að hvílast og staður til að hitta aðra. Umhverfið snertir okkur á hverjum degi. Umgjörð utan um lífið allt frá uppvexti, samveru og sköpun minninga. Innan mannvirkja og á milli þeirra lærum við, vinnum, eldumst og finnum okkur stað í samfélaginu. Þess vegna skiptir máli að við mótum þessa ramma lífs okkar og samfélagsins í heild af alúð og nærgætni, fagmennsku en jafnframt með manngæsku og þarfir allra að leiðarljósi. Við viljum byggja öflugt og öruggt samfélag, og til þess að það megi verða þurfum við að skapa aðstæður fyrir tengsl. Það skiptir máli hvernig íbúðir eru hannaðar út frá höfuðáttum, hvernig mannvirki tengjast göturýminu og hvað fær að gerast á milli húsanna. Græn svæði þar sem börn leika sér, gönguleiðir þar sem nágrannar mætast og sameiginleg rými þar sem fólk getur sest niður ýta undir samskipti í nærumhverfinu, geta haft í för með sér bætta almenna lýðheilsu, tengt okkur við hvert annað og minnkað einmanaleika og einangrun. Umhyggjan býr líka í því sem er síður sýnilegt. Í loftinu sem við öndum að okkur, birtunni sem nær inn og því hvernig hljóð berst á milli rýma. Þegar vel er að þessu staðið getur umhverfið stutt við heilsu okkar og líðan. Gefið okkur næði, ró og svigrúm til að njóta hversdagsins. Í þessu felast gæði arkitektúrs. Þegar talað er um að vanda til verka þegar við hönnum hið manngerða umhverfi þá er ekki verið að tala um íburð. Góð hönnun getur falist í einfaldri lausn sem er vel hugsuð, efni sem endist eða húsi sem fær að standa áfram í nýju hlutverki. Hún felst í að sjá verðmæti í því sem fyrir er og hugsa lengra en að verklokum. Ávinningurinn safnast upp með árunum. Góð dagsbirta nýtist á hverjum degi. Tréð vex og veitir skjól. Vönduð rými þjóna nýjum kynslóðum. Það sem við gerum vel í dag getur skilað sér margfalt í framtíðinni — í fegurð, vellíðan, virðingu fyrir umhverfinu og sterkari tengslum. Þar spilum við öll hlutverk. Þau sem hanna, taka ákvarðanir, byggja og búa í húsunum. Við berum sameiginlega ábyrgð á umhverfi sem aðrir munu erfa og gera að sínu. Leggjum því natni í umhverfið okkar. Gefum okkur tíma til að hugsa um fólkið sem þar á að lifa, vaxa og dafna bæði nú og í framtíðinni. Allir græða á því að vandað sé til verka. Í tilefni af Degi arkitektúrs bjóðum við öll velkomin á Parketið í Grósku næstkomandi fimmtudag kl. 17. Þar fjallar Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum um SAMFÉLAG og tengsl þess við byggingarlist. Gleðilegan dag arkitektúrs! Höfundar eru í stjórn Arkitektafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arkitektúr Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Birta við eldhúsborðið. Skjól á leiðinni í skólann. Tré fyrir utan gluggann og bekkur þar sem hægt er að staldra við. Ró til að hvílast og staður til að hitta aðra. Umhverfið snertir okkur á hverjum degi. Umgjörð utan um lífið allt frá uppvexti, samveru og sköpun minninga. Innan mannvirkja og á milli þeirra lærum við, vinnum, eldumst og finnum okkur stað í samfélaginu. Þess vegna skiptir máli að við mótum þessa ramma lífs okkar og samfélagsins í heild af alúð og nærgætni, fagmennsku en jafnframt með manngæsku og þarfir allra að leiðarljósi. Við viljum byggja öflugt og öruggt samfélag, og til þess að það megi verða þurfum við að skapa aðstæður fyrir tengsl. Það skiptir máli hvernig íbúðir eru hannaðar út frá höfuðáttum, hvernig mannvirki tengjast göturýminu og hvað fær að gerast á milli húsanna. Græn svæði þar sem börn leika sér, gönguleiðir þar sem nágrannar mætast og sameiginleg rými þar sem fólk getur sest niður ýta undir samskipti í nærumhverfinu, geta haft í för með sér bætta almenna lýðheilsu, tengt okkur við hvert annað og minnkað einmanaleika og einangrun. Umhyggjan býr líka í því sem er síður sýnilegt. Í loftinu sem við öndum að okkur, birtunni sem nær inn og því hvernig hljóð berst á milli rýma. Þegar vel er að þessu staðið getur umhverfið stutt við heilsu okkar og líðan. Gefið okkur næði, ró og svigrúm til að njóta hversdagsins. Í þessu felast gæði arkitektúrs. Þegar talað er um að vanda til verka þegar við hönnum hið manngerða umhverfi þá er ekki verið að tala um íburð. Góð hönnun getur falist í einfaldri lausn sem er vel hugsuð, efni sem endist eða húsi sem fær að standa áfram í nýju hlutverki. Hún felst í að sjá verðmæti í því sem fyrir er og hugsa lengra en að verklokum. Ávinningurinn safnast upp með árunum. Góð dagsbirta nýtist á hverjum degi. Tréð vex og veitir skjól. Vönduð rými þjóna nýjum kynslóðum. Það sem við gerum vel í dag getur skilað sér margfalt í framtíðinni — í fegurð, vellíðan, virðingu fyrir umhverfinu og sterkari tengslum. Þar spilum við öll hlutverk. Þau sem hanna, taka ákvarðanir, byggja og búa í húsunum. Við berum sameiginlega ábyrgð á umhverfi sem aðrir munu erfa og gera að sínu. Leggjum því natni í umhverfið okkar. Gefum okkur tíma til að hugsa um fólkið sem þar á að lifa, vaxa og dafna bæði nú og í framtíðinni. Allir græða á því að vandað sé til verka. Í tilefni af Degi arkitektúrs bjóðum við öll velkomin á Parketið í Grósku næstkomandi fimmtudag kl. 17. Þar fjallar Auður Hreiðarsdóttir frá Esju Arkitektum um SAMFÉLAG og tengsl þess við byggingarlist. Gleðilegan dag arkitektúrs! Höfundar eru í stjórn Arkitektafélags Íslands.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun