Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar 5. október 2026 15:00 Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Atvinnuöryggi, húsnæði á viðráðanlegu verði og góð þjónusta skipta miklu þegar fólk velur sér stað til að búa á. Að mínu mati eru þetta meðal helstu kosta Fjarðabyggðar. Ný greining Konráðs S. Guðjónssonar hjá Kontext, sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi, sýnir sterka stöðu landshlutans hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð. Atvinnuástandið hefur lengi verið gott á Austurlandi. Atvinnuleysi er umtalsvert minna en á landinu öllu. Það hefur verið 2,4% á árinu, samanborið við 4,5% á landsvísu, samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Launagreiðslur á íbúa voru jafnframt 8% hærri en að meðaltali á landinu. Atvinnulífið í Fjarðabyggð er fjölbreytt. Sjávarútvegur, fiskeldi, álframleiðsla og iðnaður vega þar þungt. Hér eru einnig störf í þjónustu, ferðaþjónustu og hjá hinu opinbera. Þessi fjölbreytni skapar tækifæri fyrir fólk með ólíka menntun, reynslu og áhugasvið. Húsnæðiskostnaður skiptir ekki síður máli. Fasteignaverð á Austurlandi hefur hækkað á síðustu árum en er enn töluvert undir landsmeðaltali. Samkvæmt greiningunni er fermetraverðið 64–73% af landsmeðaltali, eftir tegund húsnæðis. Það getur gert ungu fólki og fjölskyldum auðveldara að eignast húsnæði og koma sér fyrir. Hærri tekjur og lægra íbúðarverð geta því skilað sér í meiri kaupmætti og betri lífskjörum. Þjónusta við fjölskyldur er annar mikilvægur þáttur. Börn í Fjarðabyggð fá leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og engir biðlistar eru eftir plássi. Innan byggðakjarnanna er yfirleitt stutt í skóla, leikskóla, íþróttir og daglega þjónustu. Það getur þýtt minni tíma í skutl og meiri tíma með fjölskyldunni og til frístunda. Náttúran er aldrei langt undan. Fjöllin, firðirnir og gönguleiðirnar eru hluti af daglegu umhverfi okkar. Hvert byggðarlag hefur sín sérkenni og sína sögu en saman mynda þau öflugt samfélag með fjölbreyttu íþrótta-, menningar- og félagsstarfi. Framlag Austurlands til þjóðarbúsins er mikið. Vöruútflutningur frá Austurlandi nam um 224 milljörðum króna árið 2025, eða um 20 milljónum króna á mann. Það er tæplega ellefufalt meira en að meðaltali í öðrum landshlutum. Hlutur Austurlands í vöruútflutningi var 25% árið 2025 og hefur verið svipaður síðustu ár, þótt þar búi aðeins um 3% þjóðarinnar. Tölurnar segja þó ekki alla söguna. Greiningin sýnir sterka stöðu Austurlands hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð. Í Fjarðabyggð bætast við góð þjónusta við fjölskyldur og nálægð við náttúruna. Það eru raunverulegir kostir fyrir þá sem vilja búa, starfa og byggja upp framtíð sína í Fjarðabyggð. Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Það hefur margborgað sig. Höfundur er upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Atvinnuöryggi, húsnæði á viðráðanlegu verði og góð þjónusta skipta miklu þegar fólk velur sér stað til að búa á. Að mínu mati eru þetta meðal helstu kosta Fjarðabyggðar. Ný greining Konráðs S. Guðjónssonar hjá Kontext, sem unnin var fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi, sýnir sterka stöðu landshlutans hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð. Atvinnuástandið hefur lengi verið gott á Austurlandi. Atvinnuleysi er umtalsvert minna en á landinu öllu. Það hefur verið 2,4% á árinu, samanborið við 4,5% á landsvísu, samkvæmt mælingum Vinnumálastofnunar. Launagreiðslur á íbúa voru jafnframt 8% hærri en að meðaltali á landinu. Atvinnulífið í Fjarðabyggð er fjölbreytt. Sjávarútvegur, fiskeldi, álframleiðsla og iðnaður vega þar þungt. Hér eru einnig störf í þjónustu, ferðaþjónustu og hjá hinu opinbera. Þessi fjölbreytni skapar tækifæri fyrir fólk með ólíka menntun, reynslu og áhugasvið. Húsnæðiskostnaður skiptir ekki síður máli. Fasteignaverð á Austurlandi hefur hækkað á síðustu árum en er enn töluvert undir landsmeðaltali. Samkvæmt greiningunni er fermetraverðið 64–73% af landsmeðaltali, eftir tegund húsnæðis. Það getur gert ungu fólki og fjölskyldum auðveldara að eignast húsnæði og koma sér fyrir. Hærri tekjur og lægra íbúðarverð geta því skilað sér í meiri kaupmætti og betri lífskjörum. Þjónusta við fjölskyldur er annar mikilvægur þáttur. Börn í Fjarðabyggð fá leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og engir biðlistar eru eftir plássi. Innan byggðakjarnanna er yfirleitt stutt í skóla, leikskóla, íþróttir og daglega þjónustu. Það getur þýtt minni tíma í skutl og meiri tíma með fjölskyldunni og til frístunda. Náttúran er aldrei langt undan. Fjöllin, firðirnir og gönguleiðirnar eru hluti af daglegu umhverfi okkar. Hvert byggðarlag hefur sín sérkenni og sína sögu en saman mynda þau öflugt samfélag með fjölbreyttu íþrótta-, menningar- og félagsstarfi. Framlag Austurlands til þjóðarbúsins er mikið. Vöruútflutningur frá Austurlandi nam um 224 milljörðum króna árið 2025, eða um 20 milljónum króna á mann. Það er tæplega ellefufalt meira en að meðaltali í öðrum landshlutum. Hlutur Austurlands í vöruútflutningi var 25% árið 2025 og hefur verið svipaður síðustu ár, þótt þar búi aðeins um 3% þjóðarinnar. Tölurnar segja þó ekki alla söguna. Greiningin sýnir sterka stöðu Austurlands hvað varðar atvinnu og húsnæðisverð. Í Fjarðabyggð bætast við góð þjónusta við fjölskyldur og nálægð við náttúruna. Það eru raunverulegir kostir fyrir þá sem vilja búa, starfa og byggja upp framtíð sína í Fjarðabyggð. Ég flutti austur og sé ekki eftir því. Það hefur margborgað sig. Höfundur er upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun