Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar 5. október 2026 14:00 Fyrir utan foreldra eru kennarar líklega þeir, sem geta haft hvað mest áhrif á líf og framtíð barna. Kennarinn kveikir áhuga, byggir upp sjálfstraust og sér hæfileika sem barnið sjálft hefur kannski ekki enn uppgötvað að það hefur. Þetta er gott að hafa í huga á alþjóðlegum degi kennara. Á þeim degi hugsum við sérstaklega um mikilvægi kennarastarfsins og framlag kennara til menntunar þjóðarinnar. PISA: Bæði jákvætt og neikvætt Við stöndum frammi fyrir risavöxnum áskorunum sem við getum ekki með nokkru móti neitað að horfast í augu við. Niðurstöður PISA eru áminning til okkar allra. Námslegur styrkur íslenskra nemenda hefur aldrei mælst lakari og nú í nýútkominni PISA könnun. Við megum ekki vera í afneitun og verðum að taka niðurstöðunum alvarlega. Þrátt fyrir að Ísland verji meiri fjármunum til menntunar en OECD-ríkin gera að meðaltali, er niðurstaðan ekki betri en raun ber vitni. Mitt í auga stormsins verðum við að gleðjast yfir því sem er jákvætt. PISA staðfestir ýmislegt jákvætt í íslensku skólakerfi er snýr að líðan nemenda. Þeir upplifa almennt sterka tengingu við skólann sinn. Margt bendir til að skólasamfélagið okkar hafi styrkleika sem skipta miklu máli fyrir nemendur. Þar er talað um seiglu þeirra og þrautseigju. Þau gefast ekki upp. Það er svo sannarlega það sem við þurfum að vinna með og byggja á þegar við ráðumst í þær breytingar í menntakerfinu sem ég tel nauðsynlegar. Botninum er hins vegar náð og nú spyrnum við okkur kröftuglega frá honum. Aðrar áskoranir nú en áður Starf kennarans er vafalítið flóknara nú en áður. Nýjar áskoranir nánast daglega sem þarf að mæta. Nemendahópurinn er til að mynda mun fjölbreyttari. Þar má nefna sérstaklega hvað börnum af erlendum uppruna hefur fjölgað mikið. Mörg þeirra þurfa sérstakan stuðning í íslensku og í námi almennt. Við erum einnig með auknar kröfur um einstaklingsmiðað nám, ríkari meðvitund um ólíkar þarfir barna og meiri væntingar um að skólinn grípi snemma inn í þegar eitthvað bjátar á. Þetta er allt rétt og afar mikilvægt. Við verðum að mæta kennurum af sanngirni og spyrja okkur hvort við höfum alltaf fylgt auknum kröfum eftir með nægum stuðningi. Kennarar eiga að hafa aðgang að sérfræðingum og þeim stuðningi sem þeir þurfa á að halda inni í kennslustofunni. Þeir þurfa meira svigrúm til starfsþróunar og aukna möguleika á sérhæfingu. Meðal annars í læsi, stærðfræði, íslensku sem öðru tungumáli, sérkennslu og nýrri tækni s.s. gervigreind. Það verður að mæta því aukna álagi sem allt of margir kennarar mega búa við í störfum sínum hvern einasta dag. Það er ótækt með öllu að finnast eitthvað eðlilegt við það, að bæta endalaust nýjum verkefnum á kennara og gera ráð fyrir að vinnudagurinn lengist sjálfkrafa. Kennarar eiga að fá að vera kennarar. Þeir eiga að geta undirbúið sig, kennt, metið framvindu nemenda og sinnt þeim. Þeim á að líða vel í vinnunni en ekki að vera að bugast undan auknu álagi. Mætum nemendum, þar sem þeir eru Við verðum að ná fyrr til barna sem eru að dragast aftur úr í námi vegna ólíkra og mismunandi námsörðugleika. Við verðum að finna fleiri leiðir er varðar námið og gera betur í að mæta ólíkum hæfileikum og þörfum. Það er ekki hægt að ætlast til að allir geri eins, á sama tíma og með sama hætti. Menntakerfið þarf að búa yfir sveigjanleika sem opna öllum nemendum dyrnar að bjartri framtíð en ekki loka þeim. Ég tel að við þurfum einnig að breyta tóninum í umræðunni um skólana okkar. Það er sjálfsagt að gagnrýna. Það á gera kröfur. En sífelld leit að sökudólgum skilar engu. Vaxandi vandi menntakerfisins er á ábyrgð okkar allra. Eina leiðin til árangurs er að viðurkenna það og taka höndum saman. Það er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra, foreldra, kennara, skólastjórnenda, sveitarfélaga og stjórnvalda að börnin okkar fái góða menntun. Raunveruleg tækifæri til að blómstra Það er mikið í húfi. Menntamál eiga ekki að snúast um kerfi og skýrslur. Þau snúast um börn, daglega líðan þeirra, uppfræðslu og framtíð. Um barnið sem mætir í skólann að morgni og þarf hlýlegt bros og hvatningu inn í daginn. Um barnið sem glímir við það að læra að lesa. Um barnið sem er nýkomið til landsins og hefur takmarkaðan skilning á umhverfi sínu. Um unglinginn sem er að missa trúna á sjálfan sig. En líka um barnið sem þarf meiri hvatningu og stuðning en það fær. Þetta eru börnin sem kennarar mæta á hverjum degi. Stöndum saman Í dag er alþjóðlegur dagur kennara. Þakklæti til ykkar allra er mér efst í huga. Takk fyrir þolinmæðina og alla þá óeigingjörnu vinnu sem þið innið af hendi hvern dag. Höfundur er mennta- og barnamálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Inga Sæland Skóla- og menntamál Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun