„... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar 3. október 2026 14:46 Ljóst er að Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar til 17 ára stígur til hliðar á örlagastundu, þegar endurskoðun á mikilvægasta raforkusamningi fyrirtækisins – við Alcoa Fjarðaál – stendur fyrir dyrum. Enginn skyldi þó ætla Herði að vera að hlaupast undan merkjum – hann hefur þvert á móti sem forstjóri tekist einbeittur á við gríðarlegar áskoranir í rekstri og uppbyggingu þessa öflugasta fyrirtækis landsmanna. Hundruð milljarða í arðgreiðslur og skatta Í tíð Harðar hefur Landsvirkjun endursamið við öll stóriðjufyrirtækin, nema Alcoa Fjarðaál, og sótt til þeirra margföldun á raforkuverði þannig að stóriðjan greiðir nú jafnhátt raforkuverð og í nágrannalöndunum. Öðru vísi mér áður brá þegar Ísland var á hreinum útsölumarkaði og bauð raforkuna jafnvel undir kostnaðarverði og án eðlilegrar arðsemi. Endursölusamningarnir hafa á tíðum kostað hörð átök við öflugustu alþjóðleg ál- og kísiljárnsfyrirtæki sem eru ekki lömb að leika sér við! Og þjóðin, sem er eigandi Landsvirkjunar, hefur notið góðs af seiglu og árangri Harðar og samstarfsmanna hans í þessum efnum. Samningarnir, niðurgreiðsla skulda og bættur rekstur, hefur skilað þjóðarbúinu hundruð milljarða með arðgreiðslum og sköttum, og að auki létt ríkisábyrgð af gömlum lánalínum. Nú fagnar Alcoa Og nú skal loks endursamið um framleiðslu Kárahnúkavirkjunar, sem er þriðjungur af allri raforkuframleiðslu Landsvirkjunar. Rafmagnsverð til álversins í Reyðarfirði, Alcoa-Fjarðaáls, var bundið 2007 með samningum í 40 ár, – FJÖRUTÍU ÁR – fram til ársins 2047 – með þeirri undantekningu þó að endurskoðun gæti farið fram eftir 20 ár, s.s. á árinu 2027 – að gefnum tilteknum forsendum. Unnið hefur verið að þessari endurskoðun af hálfu Landsvirkjunar um nokkurra ára skeið enda er hún gríðarlega mikilvæg fyrir þjóðarbúið. Ég tel það glapræði af stjórn Landsvirkjunar að láta ágreining um „stjórnarhætti“ verða til þess að setja hana í uppnám. Mér er nefnilega nær að halda að þeir sem mest geta fagnað tíðindum gærdagsins séu yfirmenn Alcoa á heimsvísu. Prívatstjórn Daða Más Það dugir lítt fyrir stjórnarformanninn að segja að þau Hörður hafi „ekki alltaf verið sammála um allt“. Hún verður að tala skýrar og upplýsa okkur, eigendur Landsvirkjunar um hvað málið snýst. Stjórnin er eins og menn muna handvalin af Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra, sem skipaði hana einhendis með ógleymanlegum hroka án aðkomu Alþingis í fyrsta skipti í 60 ára sögu fyrirtækisins. Það má því ætla að ágreiningurinn sem stjórnarformaður talar um og Hörður segir að snúist um „stjórnarhætti“ sé ekki aðeins milli forstjórans og stjórnarinnar, heldur einnig milli forstjórans og ráðherrans. Gerbreytt fyrirtæki Ég sat í stjórn Landsvirkjunar samfellt á árunum 2014-2025, tilnefnd af þingflokki Vinstri grænna, skipuð af viðkomandi fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Framsóknarflokks. Áður sat ég í stjórn fyrirtækisins 2003-2006 sem einn þriggja fulltrúa Reykvíkinga sem þá áttu hlut í Landsvirkjun ásamt Akureyringum. Það voru mikil viðbrigði og gjörbreytt fyrirtæki að koma að á árinu 2014 en þá hafði Hörður verið þar forstjóri í 5 ár, tók við eftir Hrunið á mjög erfiðum tímum í rekstri fyrirtækisins. Ég get með sanni sagt - eins og núverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar - að á þessum langa tíma vorum við Hörður „ekki alltaf sammála um allt“. Nægir þar að nefna Hvammsvirkjun og svokallaða Kjalölduveitu. En uppúr stendur að Hörður Arnarson var í öllum samskiptum heiðarlegur og vandaður forstjóri, sem skilar nú af sér góðu og vel reknu fyrirtæki til hagsbóta fyrir landsmenn alla. Fyrir það ber að þakka, en ég játa að ég óttast hvað við tekur. Tortryggni og vantraust Stjórnin verður að gera hreint fyrir sínum dyrum, skýra um hvað málið snýst. Orð stjórnarformannsins valda aðeins tortryggni og vantrausti. Höfundur er fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsvirkjun Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun