Viðskipti erlent

Bein út­sending: Hver hlýtur hag­fræði­verð­laun sænska seðla­bankans?

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Fundurinn hefst klukkan 9:15.
Fundurinn hefst klukkan 9:15. Getty

Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi.

Ár hvert, á sama tíma og veitt eru Nóbelsverðlaunin, eru einnig veitt hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans. Fréttamannafundurinn hefst klukkan 9:15 og er í beinu streymi hér fyrir neðan.

Joel Mokyr, Philippe Aghion og Peter Howitt deildu hagfræðiverðlaununum á síðasta ári. Mokyr fékk þau fyrir að hafa bent á nauðsynleg skilyrði fyrir samfelldm hagvexti með tæknilegum framförum. Aghion og Howitt fengu einnig verðlaunin fyrir kenningu sína um viðvarandi vöxt með skapandi eyðileggingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×