Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 18:00 Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Manchester City, vildi fátt segja við Rob Harris, fréttamann Sky. Nick Harris, fréttamaður hjá Sky News í Bretlandi, reyndi að taka Ferran Soriano, framkvæmdastjóra Manchester City, tali á fundi stjórnarmanna Evrópufélaga í Kaupmannahöfn. Úr urðu heldur vandræðaleg samskipti.
Stjórnendur margra stærstu félaga Evrópu eru saman komnir á stórum fundi í Kaupmannahöfn, þar sem Aleksander Ceferin, forseti UEFA, var einnig á meðal gesta. Enska úrvalsdeildin opinberaði seinni part dags að Manchester City væri sekt um fjölmörg brot á reglum deildarinnar, sem og reglum UEFA, um fjárhagslega háttvísi yfir níu ára tímabil. Einbeittan brotavilja mætti sjá á aðgerðum City í málinu og félagið hafi jafnframt reynt að stöðva og hindra rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar á málinu. Ferran Soriano, framkvæmdastjóri Manchester City, var á meðal gesta á fundinum í Kaupmannahöfn og Rob Harris, fréttamaður Sky, reyndi að ná af honum tali í ljósi ásakananna. "Do you apologise to football fans? The Premier League says 'sham' contracts, is this a 'sham' club?"@RobHarris questions Man City chief executive Ferran Soriano after the club was found guilty of all charges related to Premier League's financial ruleshttps://t.co/3A2kYsOcCZ pic.twitter.com/LstPJGEPd7— Sky News (@SkyNews) September 29, 2026 „Enska úrvalsdeildin hefur staðfest að þið svindluðuð í áratug. Biðjið þið fótboltaáhugamenn afsökunar?“ var fyrsta spurning Harris til Soriano. „Ég hef ekkert að setja, takk fyrir,“ sagði Soriano sem hafði þá greinilega lokið máli sínu. Harris spurði þá hvort City-menn væru vissir um að þeir gætu unnið málið með áfrýjun og stóð Serrano þá steinrunninn og neitaði að svara. Það átti eftir að verða reyndin það sem eftir lifði viðtals, ef viðtal skal kalla. Orðið blekking eða fals (e. sham) kom fyrir fimm sinnum í dómi nefndar ensku úrvalsdeildarinnar í málinu. Í því ljósi spurði Harris: „Úrvalsdeildin segir ykkur hafa búið til falssamninga (e. sham contracts), eruð þið falsfélag (e. sham club)?“ Enn neitaði Serrano að svara. Harris spurði þá frekari spurninga og Serrano sagði ekkert annað en takk, áður en hann gekk í burtu. Myndskeið af samskiptunum má sjá í spilaranum.
Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Sjá meira