Harðorð yfirlýsing Manchester City Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 16:55 Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024. Vísir/Getty Forráðamenn Manchester City hafa gefið út yfirlýsingu þar sem að þeir lýsa vonbrigðum sínum og undrun á yfirlýsingu ensku úrvalsdeildarinnar eftir að sekt félagsins í umfangsmiklu máli var í dag staðfest. „
Félagið er saklaust af ásökunum ensku úrvalsdeildarinnar og til er yfirgripsmikið safn óhrekjanlegra sönnunargagna sem styðja allar afstöður þess í þessu máli,“ segir í harðorðri yfirlýsingu Manchester City. Dómur óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar sem deildin birti á heimasíðu sinni í dag var sérlega harðorður. City var þar sagt hafa skekkt mynd af fjárútlátum eigenda félagsins um meira en 900 milljónir punda, yfir 144 milljarða króna, til þess að uppfylla fjármálareglur. Það hafi viljandi villt til um eftirlitsmönnum knattspyrnunnar og „með framferði sínu hafi félagið greinilega ætlað að sniðganga reglur ensku úrvalsdeildarinnar“. Club statement.🔗 https://t.co/yrJ8Z0A52Y pic.twitter.com/0NP2k33JT9— Manchester City (@ManCity) September 29, 2026 Enn fremur hafi félagið verið ósamvinnuþýtt með rannsókninni og brotið ítrekað gegn skyldum sínum gagnvart rannsóknaraðilum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að félagið hefði „gert samstilltar tilraunir til að stöðva og hindra rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar“. Manchester City hyggst nýta sér þær áfrýjunarleiðir sem í boði eru á þeim grunni að álit nefndarinnar innihaldi klár mistök. „Félagið hefur af kostgæfni virt réttláta málsmeðferð yfir átta ára tímabil á þeim grunni að stjórn ensku úrvalsdeildarinnar og framkvæmdastjórn myndu hegða sér sem sjálfstæður, óhlutdrægur og sanngjarn eftirlitsaðili, laus við alla flokkadrætti.“ Félagið geti tjáð sig takmarkað um stöðu mála. Það sé ekki hægt fyrr en allri framtíðarmálsmeðferð er lokið.
Enski boltinn Manchester City Fótbolti Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Sjá meira