Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar 28. september 2026 08:02 Dauðinn er óhjákvæmilegur hluti lífsins, jafn raunverulegur og andardrátturinn sjálfur. Samt eigum við mörg erfitt með að tala um hann og reynum gjarnan að halda hugsuninni um hann frá okkur eins lengi og við getum. Í umræðunni um dánaraðstoð vakna óhjákvæmilega stærri spurningar um dauðann sjálfan, óskir okkar við lífslok og hversu tilbúin við erum að ræða þær. Nútímalæknisfræði hefur gert okkur kleift að lengja lífið og meðhöndla sjúkdóma sem áður voru ólæknandi. Það er stórkostleg framþróun. En samhliða henni hefur dauðinn að mörgu leyti færst út úr hversdagslegri umræðu og inn á vettvang heilbrigðiskerfisins. Við megum þó ekki gleyma að dauðinn er ekki aðeins læknisfræðilegt viðfangsefni heldur líka mannleg reynsla. Að tala opinskátt um dauðann getur hjálpað okkur að skilja betur eigin óskir og gildi. Slík samtöl geta dregið úr óvissu og skapað rými fyrir meiri nánd og skilning. Þegar líður að ævilokum verður oft skýrara hvað skiptir mestu máli. Fyrir suma er það að vera heima, fyrir aðra að hafa ástvini nærri sér, að ráða sem mestu um eigin aðstæður eða einfaldlega njóta þeirra stunda sem eftir eru. Samtöl um þessi atriði geta stuðlað að því að lokakafli lífsins sé betur í samræmi við óskir hvers og eins. Hvernig hefjum við samtalið? Mörgum finnst erfitt að hefja samtal um dauðann, jafnvel við þá sem standa þeim næst. Það er skiljanlegt. Dauðinn getur vakið ótta, sorg og óvissu og stundum óttumst við að það eitt að nefna hann muni gera erfiðar aðstæður enn erfiðari. En það þarf ekki að hafa öll svörin. Stundum nægir að spyrja af einlægri forvitni, hlýju og virðingu. Hér eru nokkrar spurningar sem geta opnað slíkt samtal. Hverjar eru vonir þínar? Von snýst ekki alltaf um lækningu eða langa framtíð. Hún getur líka snúist um það sem hefur gildi hér og nú: að eiga góðan dag, vera heima, hitta ákveðna manneskju, halda sjálfstæði sínu eða skilja eitthvað eftir sig. Að spyrja um vonir getur hjálpað okkur að skilja hvað skiptir manneskjuna raunverulega máli og hvernig við getum stutt hana. Hvað færir þér gleði? Gleðin hverfur ekki endilega þótt dauðinn nálgist. Hún getur tekið á sig aðrar og einfaldari myndir. Hún getur falist í bók sem fær mann til að brosa, ljósi sem fellur inn um gluggann, rödd ástvinar, tónlist, góðum mat eða húmor sem léttir andrúmsloftið. Að vita hvað veitir gleði getur hjálpað okkur að hlúa að lífinu, jafnvel þegar tíminn er orðinn takmarkaður. Hvar liggja mörk þín? Óskir fólks um læknismeðferð og umönnun við lífslok eru ólíkar. Sumir vilja nýta allar þær meðferðir sem í boði eru en aðrir vilja setja skýr mörk um hvaða meðferð þeir vilja þiggja þegar líður að ævilokum. Það er ekkert eitt rétt svar. Persónuleg gildi, reynsla og óskir hvers og eins ráða þar mestu. Að geta sagt skýrt hvar eigin mörk liggja getur skapað öryggi og skilning fyrir einstaklinginn sjálfan, aðstandendur hans og heilbrigðisstarfsfólk. Hvað veldur þér mestum áhyggjum? Áhyggjur við lífslok snúast ekki alltaf um dauðann sjálfan. Fólk getur óttast sársauka, að missa sjálfstæði sitt, verða öðrum byrði eða haft áhyggjur af maka, börnum og vinum. Að fá að orða þessar áhyggjur getur létt á þeim og gefið öðrum líka tækifæri til að hlusta og sýna stuðning. Oft verður samtalið þá ekki aðeins um dauðann heldur um ástina og tengslin sem fylgja lífinu. Hvað gefur þér styrk? Styrkur getur birst á ólíkum stöðum. Sumir finna hann í náttúrunni, tónlist, trú eða samveru með ástvinum. Aðrir sækja hann í húmor, hefðir, minningar eða návist dýra. Að spyrja um það sem gefur styrk getur hjálpað okkur að skilja hvað styður við manneskjuna þegar aðstæður verða erfiðar. Hvaða reynslu hefur þú af veikindum og endalokum annarra? Reynsla okkar af veikindum og dauða annarra mótar oft eigin hugmyndir um lífslok. Við getum borið með okkur minningar um friðsæl andlát, erfiðar meðferðir, óuppgerðar spurningar eða stundir mikillar nándar. Með því að ræða þessa reynslu getum við betur skilið hvaðan óskir okkar og ótti koma. Að tala um dauðann er að tala um lífið Samtöl um dauðann snúast ekki eingöngu um síðustu daga eða vikur lífsins. Þau vekja líka spurningar um hvernig við viljum lifa. Hvað skiptir okkur mestu máli? Hvar liggja mörk okkar? Hvað færir okkur gleði? Hvern viljum við hafa nálægt okkur þegar á reynir? Þögnin um dauðann gerir hann ekki auðveldari, hvorki fyrir þann sem er að deyja né þá sem lifa áfram. Með því að opna samtalið getum við skapað rými fyrir óskir, ótta, vonir og þau gildi sem skipta okkur mestu máli. Það þarf stundum hugrekki til að tala um dauðann. En slík samtöl geta fært okkur nær hvert öðru og minnt okkur á hvað við viljum gera við þann tíma sem við höfum. Að tala um dauðann er því líka að tala um hvernig við viljum lifa. Greinarhöfundur er formaður Lífsvirðingar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun