Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar 26. september 2026 16:31 Við sem eigum börn sem eru að nálgast þann aldur að velja sér háskólanám stöndum frammi fyrir spurningu sem ætti ekki að vera erfið: Hvað eigum við að segja þeim þegar þau spyrja hvort það sé þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Ef barnið þitt vill verða læknir, kennari, sálfræðingur, verkfræðingur, félagsráðgjafi eða sérhæfa sig á öðru sviði ætti svarið að vera einfalt: Já. Menntaðu þig. Fylgdu áhuga þínum. En svarið er ekki lengur alveg svo einfalt. Hvernig á ungt fólk að framfleyta sér meðan á námi stendur? Hversu mikið þarf það að vinna með náminu og hversu miklar skuldir þarf það að taka á sig? Og hvernig fara afborganir námslána saman við dýr húsnæðislán þegar námi lýkur? Þetta eru ekki jaðarspurningar. Þær varða kjarna þess hvernig við viljum byggja upp samfélagið. Jöfn tækifæri á blaði en ekki í reynd Markmið laga um Menntasjóð námsmanna er skýrt. Samkvæmt 1. gr. laganna á að tryggja fólki tækifæri til náms „án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti“. Framfærslulán eiga jafnframt að nægja námsmanni til almennrar framfærslu. Menntasjóðurinn á því að vera félagslegt jöfnunartæki. En þegar markmið laganna eru borin saman við raunveruleikann blasir við misræmi. Í skýrslu Nönnu Hermannsdóttur hagfræðings kemur fram að grunnframfærsla sjóðsins skólaárið 2026–2027 sé 178.442 krónur á mánuði. Lágmarksframfærsluviðmið Umboðsmanns skuldara er 236.402 krónur. Munurinn er tæplega 58 þúsund krónur á mánuði. Fyrir marga námsmenn verður niðurstaðan einföld: Þeir verða að vinna með námi. Árið 2012 voru um 15.000 lánþegar hjá LÍN en árið 2025 um 5.000 hjá Menntasjóði námsmanna. Sú þróun vekur spurningar um hvort sjóðurinn gegni enn sama félagslega jöfnunarhlutverki. Þegar vinna verður forsenda náms Samkvæmt EuroStudent vinna 61,9% íslenskra námsmanna allt kennslutímabilið og önnur 14,2% öðru hverju. Aðeins 23,9% segjast ekki vinna á kennslutímabilinu. Vinna með námi getur veitt dýrmæta reynslu en skýrsla Nönnu sýnir að fjárhagsleg nauðsyn vegur sérstaklega þungt hér á landi. Íslenskir námsmenn vinna í ríkum mæli vegna þess að þeir þurfa tekjurnar til að hafa efni á náminu og meta fjárhagsstöðu sína einna verst meðal evrópskra námsmanna. Við höfum farið að líta á það sem sjálfsagðan hlut að fullt háskólanám fari saman við mikla atvinnuþátttöku. Síðan furðum við okkur á því að námsmenn ljúki ekki námi nógu hratt. Greining Nönnu sýnir raunar að markmið laganna frá 2020 um að flýta námslokum hefur ekki gengið eftir; hlutfall þeirra sem ljúka námi innan tilskilins tíma lækkaði eftir gildistöku laganna samkvæmt þeim gögnum sem lágu fyrir við gerð skýrslunnar. Ísland hefur farið aðra leið Íslenska fyrirkomulagið er verulega frábrugðið kerfum hinna Norðurlandanna. Styrkhlutfallið er lægst hér, vaxtakjör að jafnaði óhagstæðari og hlutfall námsmanna sem fá opinberan námsstuðning langlægst. Skólaárið 2008–2009 tóku 57% skráðra nema við íslenska háskóla námslán. Skólaárið 2024–2025 var hlutfallið aðeins 12,5%. Á sama tíma sýna gögn EuroStudent að námsmenn vinna óvenjumikið og glíma við verulega fjárhagslega erfiðleika. Spurningin er því hvort kerfið hafi hætt að gegna því hlutverki sem því var ætlað. Skuldin hverfur ekki við útskrift Vandanum lýkur ekki við útskrift. Þá tekur við að komast inn á húsnæðismarkað og stofna heimili, samhliða afborgunum námslána. Ný rannsókn Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir BHM og fleiri samtök háskólamenntaðra sýnir að meðal fólks með húsnæðislán en án greiðslna af námslánum eiga 16–19% erfitt með að standa undir mánaðarlegum húsnæðiskostnaði. Hjá þeim sem greiða bæði húsnæðislán og námslán er hlutfallið 28%. Meðal þeirra sem höfðu keypt fasteign þurftu jafnframt 62% fólks 34 ára og yngra fjárhagslega aðstoð, einkum frá fjölskyldu, til kaupanna. Hjá fólki 55 ára og eldra var hlutfallið 20%. Þarna birtist stærra samfélagslegt vandamál. Ef börn efnameiri foreldra geta lokið námi með minni skuldum og fengið síðan aðstoð við fyrstu íbúðarkaup, en önnur þurfa að vinna meira með námi, taka meiri lán og kaupa húsnæði án sambærilegs stuðnings, er hætt við að efnahagsleg staða foreldra ráði sífellt meiru um lífskjör næstu kynslóðar. Stjórnvöld hafa brugðist þessu verkefni Þegar lögin lofa jöfnum tækifærum til náms en framfærslan nær ekki opinberu lágmarksviðmiði; þegar meirihluti námsmanna vinnur allt kennslutímabilið; þegar nýting lána- og styrkjakerfisins hefur dregist mjög saman; og þegar námslán bætast við þunga greiðslubyrði húsnæðislána, hefur framkvæmd kerfisins ekki staðið undir eigin markmiðum. Það dugir ekki lengur að breyta einstökum hlutföllum eða hliðra tekjumörkum. Þörf er á heildarendurskoðun á hlutverki og uppbyggingu Menntasjóðs námsmanna. Grunnspurningin er einföld: Viljum við að efnahagur foreldra ráði því hversu auðvelt er fyrir ungt fólk að afla sér menntunar og byggja síðan upp sjálfstætt líf? Við viljum geta sagt börnunum okkar að ef þau hafa áhuga, hæfileika og metnað til að leggja á sig langt nám sé það þess virði. Að samfélagið þurfi á þekkingu þeirra að halda. Að þau séu ekki að gera fjárhagsleg mistök með því að mennta sig. Menntasjóður námsmanna á að gera okkur kleift að segja það með sannfæringu. Eins og kerfið er núna er það orðið óþarflega erfitt. Höfundur er hagfræðingur og formaður lífeyris- og lánanefndar BHM Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Gunnar Alexander Ólafsson Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Grein sálfræðings um að læra að opna sig Dávur í Dali skrifar Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar