Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar 25. september 2026 11:30 Viðtal á Sprengisandi 15. mars síðastliðinn vakti mig til umhugsunar. Þar ræddu þeir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og stofnandi Sidekick Health, og Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir á Landspítala, um stöðu heilbrigðiskerfisins og þau tækifæri sem felast í stafrænni þróun. Það sem situr eftir við hlustun á viðtalið við þá er einföld en óþægileg staðreynd: Heilbrigðiskerfið okkar er ekki hannað til að hámarka skilvirkni og að bæta þjónustuna. Nú er hvati kerfisins ekki að gera meira fyrir minna, heldur þvert á móti. Ef þjónustuaðili sinnir fleiri sjúklingum á dag, minnka tekjurnar í mörgum tilfellum. Ef tekist er á við að einfalda ferla eða færa þjónustu yfir í stafrænar lausnir, skilar það sér ekki sjálfkrafa í sparnaði heldur oft minni fjármögnun, sem er kerfislægt vandamál. Á sama tíma stendur kerfið frammi fyrir þremur stórum áskorunum: i) mönnunarvanda, ii) ört vaxandi fjölda aldraðra og iii) sífellt meiri fjárþörf. Það er því ljóst að við getum ekki leyst framtíðarvandann með auknu fjármagni einu saman. Við þurfum að hugsa í lausnum og teikna kerfið upp á nýtt. Stafræn heilbrigðisþjónusta mun án efa skipta sköpum og vera lykilatriði í því að bæta þjónustu til lengri tíma. Árið 2018 lýstu íslensk stjórnvöld því yfir að auka ætti hlutdeild fjarlækninga í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030, meðal annars til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að sérfræðiþjónustu. En þrátt fyrir skýr markmið þar um er raunveruleikinn sá að fjarlækningar eru enn nánast óplægður akur hér á landi. Það er sérstaklega sláandi í ljósi þess að reynslan, bæði hér heima og erlendis, sýnir að stafrænar lausnir virka. Þær geta stytt biðtíma, bætt eftirfylgd og aukið þátttöku sjúklinga í eigin meðferð. Biðlistar valda ekki eingöngu óþægindum, þeir eru kostnaðurvaldur. Þeir tefja greiningu, auka líkur á alvarlegri veikindum og leiða til dýrari meðferða síðar. Með því að færa einfaldari erindi yfir í stafrænt form má losa um tíma sérfræðinga og beina sjúklingum fyrr á rétta braut, þjónusta þá hraðar og koma þeim sem mest þurfa á sérfræðiþjónustu að halda strax að. Það er skynsamleg forgangsröðun. Bæði fyrir sjúklinga og fyrir heilbrigðiskerfið. Forsenda þess að koma upp sklivirkri stafrænni heilbrigðisþjónustu er að virkja réttu hvatana til breytinga. Nýtt kerfi þarf að umbuna en ekki refsa fyrir skilvirkni, nýsköpun og árangur. Stafræn heilbrigðisþjónusta á ekki að snúast um að gera meira með auknum tilkostnaði, heldur hversu vel það er gert með sem skilvirkustum á sem hagkvæmasta máta. Nýtum okkur tæknina og innleiðum lausnir, sem þjónusta fleiri, hraðar og betur. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Viðtal á Sprengisandi 15. mars síðastliðinn vakti mig til umhugsunar. Þar ræddu þeir Tryggvi Þorgeirsson, læknir og stofnandi Sidekick Health, og Davíð Ottó Arnar, yfirlæknir á Landspítala, um stöðu heilbrigðiskerfisins og þau tækifæri sem felast í stafrænni þróun. Það sem situr eftir við hlustun á viðtalið við þá er einföld en óþægileg staðreynd: Heilbrigðiskerfið okkar er ekki hannað til að hámarka skilvirkni og að bæta þjónustuna. Nú er hvati kerfisins ekki að gera meira fyrir minna, heldur þvert á móti. Ef þjónustuaðili sinnir fleiri sjúklingum á dag, minnka tekjurnar í mörgum tilfellum. Ef tekist er á við að einfalda ferla eða færa þjónustu yfir í stafrænar lausnir, skilar það sér ekki sjálfkrafa í sparnaði heldur oft minni fjármögnun, sem er kerfislægt vandamál. Á sama tíma stendur kerfið frammi fyrir þremur stórum áskorunum: i) mönnunarvanda, ii) ört vaxandi fjölda aldraðra og iii) sífellt meiri fjárþörf. Það er því ljóst að við getum ekki leyst framtíðarvandann með auknu fjármagni einu saman. Við þurfum að hugsa í lausnum og teikna kerfið upp á nýtt. Stafræn heilbrigðisþjónusta mun án efa skipta sköpum og vera lykilatriði í því að bæta þjónustu til lengri tíma. Árið 2018 lýstu íslensk stjórnvöld því yfir að auka ætti hlutdeild fjarlækninga í heilbrigðisþjónustu til ársins 2030, meðal annars til að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að sérfræðiþjónustu. En þrátt fyrir skýr markmið þar um er raunveruleikinn sá að fjarlækningar eru enn nánast óplægður akur hér á landi. Það er sérstaklega sláandi í ljósi þess að reynslan, bæði hér heima og erlendis, sýnir að stafrænar lausnir virka. Þær geta stytt biðtíma, bætt eftirfylgd og aukið þátttöku sjúklinga í eigin meðferð. Biðlistar valda ekki eingöngu óþægindum, þeir eru kostnaðurvaldur. Þeir tefja greiningu, auka líkur á alvarlegri veikindum og leiða til dýrari meðferða síðar. Með því að færa einfaldari erindi yfir í stafrænt form má losa um tíma sérfræðinga og beina sjúklingum fyrr á rétta braut, þjónusta þá hraðar og koma þeim sem mest þurfa á sérfræðiþjónustu að halda strax að. Það er skynsamleg forgangsröðun. Bæði fyrir sjúklinga og fyrir heilbrigðiskerfið. Forsenda þess að koma upp sklivirkri stafrænni heilbrigðisþjónustu er að virkja réttu hvatana til breytinga. Nýtt kerfi þarf að umbuna en ekki refsa fyrir skilvirkni, nýsköpun og árangur. Stafræn heilbrigðisþjónusta á ekki að snúast um að gera meira með auknum tilkostnaði, heldur hversu vel það er gert með sem skilvirkustum á sem hagkvæmasta máta. Nýtum okkur tæknina og innleiðum lausnir, sem þjónusta fleiri, hraðar og betur. Höfundur er framkvæmdastjóri.
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar