Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar 25. september 2026 07:30 Höfundur er alin upp í stórum systkinahópi, meira að segja á þeirra tíma mælikvarða, sjö vorum við krakkarnir sem ólumst upp á sveitabæ nokkrum í Hrútafirði.Við vorum þrjár systur og fjórir bræður, hvorug systranna næst mér í aldri, heldur bræður mínir, þremur og fimm árum eldri. Þar með voru örlög mín ráðin þegar kom að bernskuleikjum. Það gekk nefnilega afskaplega illa að fá bræðurna með mér í dúkkuleik eða mömmó. En ég mátti (oftast) skottast á eftir þeim í strákalegum leikjum, klifrað var uppi á húsþökum, leikið með horn og leggi (já ég er svona gömul), farið í eltingaleiki og kapphlaup. Og byssu- og bófa leiki. Bang, bang, þú ert dauður! Við lékum líka með litlar plastfígúrur, ekki hægt að kalla það tindáta því þeir voru úr plasti, við áttum bæði hermenn (seinni heimstyrjöldin var enn í ferskri minningu kynslóðarinnar á undan) en vinsælli voru þó indíánarnir og kúrekarnir. Og þar voru indíánar óneitanlega í hlutverki vondu kallanna en kúrekar voru þeir góðu. Því við vorum undir áhrifum af amerískum vestrum sem tröllriðu sjónvarpinu. John Wayne og fleiri hetjur sem plöffuðu niður vondu indíánana og lögðu undir sig Vesturheim. Ameríka. Land án íbúa fyrir vestrænar hetjur og frumkvöðla. Það var ekki fyrr en skammarlega löngu seinna sem ég (og vonandi flestir jafnaldrar mínir) uppgötvuðum að við höfðum verið heilaþvegin. Af amerískum hvítþvotti á þjóðarmorði. [i] Að hugsa sér að það skyldi hafa orðið til heil kvikmyndagrein í þessum tilgangi. Indíánarnir voru afmennskaðir. Sýndir sem villimenn, eiginlega ómennskir, berir að ofan, með asnaleg höfuðföt með fjöðrum, gólandi kjánaleg stríðsóp. Og skerandi höfuðleðrið af vesalings kúrekunum. (Óhugnanleg athöfn sem reyndar átti sögu meðal annars frá miðöldum í Evrópu). [ii] En sigurvegarinn skrifar söguna og það þurfti að réttlæta þjóðarmorð. Réttlæta það að hafa ráðist inn í lönd fólks, eytt þar búpening, veiðilendum, drepið fólk miskunnarlaust og þau sem lifðu af voru smám saman hrakin yfir á sífellt minnkandi “verndarsvæði”. Er þetta farið að hljóma eitthvað kunnuglega? Og af hverju skyldi ég hafa farið að rifja upp bernskuleiki mina? Undanfarið hefur ísrahelski “hasbara” áróðurinn [iii] verið að gefa í á samfélagsmiðlunum, mögulega sem andsvar við því að æ fleiri eru að opna augun fyrir þjóðarmorðinu í Palestínu.Af einhverjum orsökum eru misjafnlega mennskir síónistar (sumir eru augljóslega ómennskir “bottar” en því miður er fólk af holdi og blóði þarna innan um) sem halda enn að þeir geti náð til mín og breytt afstöðu minni og fengið mig til að hata fólk. Svo efnisveitan mín á samfélagsmiðlum er stútfull af síoniskum áróðri. Eitt af því sem er vinsælt er að hneykslast á því sem kallað er innræting palestínskra barna – að það sé verið að ala upp í þeim hryðjuverkamennskuna því þau leiki sér í leikjum sem snúist um að grýta, stinga, skjóta og jafnvel drepa innrásarherinn og kúgarana. “Sjáiði, meira að segja börnin hata okkur, enginn er saklaus, það þarf að drepa þau öll”. Að hugsa sér. Ég skal segja ykkur það að mér þurfti sem barni ekkert að vera uppsigað við indíánana í Ameríku til að taka þátt í leikjum sem snerust um að drepa þá.Ég þurfti bara innfluttan, amerískan áróður í gegnum svarthvítt sjónvarp. Indíánar höfðu ekki gert mér nokkurn skapaðan hlut. Þeir höfðu ekki drepið fjölskylduna mina, hrakið mig á flótta, komið í veg fyrir menntun mina, látið mig þurfa að liggja á kaldri jörðinni í gatslitnu tjaldi innan um rottur og skordýr, með suðandi dróna alla nóttina yfir tjaldborginni, neitað mér um læknishjálp, svelt mig, varpað sprengjum á nærliggjandi tjöld og fangelsað og pyntað þá fjölskyldumeðlimi sem ekki höfðu þegar verið drepnir. Bang, bang þú ert dauður. Það er hvort eð er greinilega barnaleikur að drepa fólk. Höfundur er félagsráðgjafi og stjórnarkona í Vonarbrú. [i] Genocide Of Indigenous Peoples - Holocaust Museum Houstonhttps://hmh.org/library/research/genocide-of-indigenous-peoples-guide/ [ii] (DOC) The Skin of the Crown: The Origins and Meanings of Scalping in Early America https://www.academia.edu/38098659/The_Skin_of_the_Crown_The_Origins_and_Meanings_of_Scalping_in_Early_America [iii] Hasbara: the dark art of spinning a war, by Alain Gresh (Le Monde diplomatique - English edition, May 2024) https://mondediplo.com/2024/05/03hasbara Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar