Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar 25. september 2026 08:32 Geðrækt á vinnustað þarf ekki alltaf að byrja á fræðslu um geðheilsu. Stundum byrjar hún einfaldlega á því hvernig yfirmaður bregst við þegar starfsmaður segir: „Ég klúðraði þessu.“ „Ég skil þetta ekki.“ „Ég næ þessu ekki fyrir föstudag.“ „Ég er ósammála.“ Viðbrögðin við þessum litlu setningum segja nefnilega ýmislegt um vinnustaðinn. Þau kenna starfsfólki hvað er óhætt að segja upphátt og hvað er skynsamlegra að geyma fyrir sig. Þar komum við að sálrænu öryggi. Í gulum september beinum við sjónum sérstaklega að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er mikilvægt að ræða hvernig við bregðumst við þegar einhverjum líður illa. En það er líka ástæða til að horfa aðeins fyrr í ferlið og spyrja: Hvers konar vinnuumhverfi erum við að skapa á venjulegum þriðjudegi? Þar hafa stjórnendur talsverð áhrif. Sálrænt öryggi Sálrænt öryggi snýst um að fólk upplifi að það geti tjáð sig, spurt spurninga, viðurkennt mistök, beðið um hjálp og komið með ábendingar án þess að óttast að verða sér til skammar. Það þýðir ekki að allir þurfi alltaf að vera sammála. Það þýðir ekki heldur að stjórnendur megi ekki gera kröfur, veita erfiða endurgjöf eða taka á frammistöðuvanda. Vinnustaður þar sem sálrænt öryggi ríkir er ekki endilega vinnustaður þar sem engum líður nokkurn tímann óþægilega, þvert á móti ríkir þar stundum töluvert öryggi til þess að geta átt óþægileg samtöl. Munurinn liggur í því hvort hægt sé að segja það sem þarf að segja án þess að þurfa fyrst að meta félagslega áhættu. Sálrænt öryggi verður ekki til með slagorði á vegg. Það verður til í litlum viðbrögðum sem endurtaka sig alla daga. Hvað gerist til dæmis þegar starfsmaður bendir á mistök, eða þegar hann segir að verkefnaálagið sé orðið of mikið? Fær hann samtal eða fyrirlestur um að hann þurfi bara að breyta hugarfari? Fólk er fljótt að læra reglurnar, líka þær sem hvergi eru skrifaðar niður. Og ef starfsfólk þarf að velja rétta augnablikið, rétta tóninn og helst rétta veðurspá áður en það segir yfirmanninum slæmar fréttir, er sálræna öryggið líklega ekki alveg komið á leiðarenda. En hvernig stuðla stjórnendur að sálrænu öryggi? Ein einfaldasta leið stjórnanda til að stuðla að sálrænu öryggi er að sýna sjálfur þá hegðun sem hann vill sjá hjá öðrum. „Ég hafði rangt fyrir mér.“ „Ég veit þetta ekki.“ „Hvað er ég ekki að sjá hér?“ Það getur verið freistandi að halda að stjórnandi þurfi alltaf að hafa svörin. En stjórnandi sem getur viðurkennt eigin mistök sendir mikilvæg skilaboð: Hér má læra, leiðrétta og spyrja. Það þýðir ekki að stjórnandinn afsali sér ábyrgð eða forystu. Það þýðir bara að hann þarf ekki að þykjast vera eina manneskjan á vinnustaðnum sem aldrei klúðrar neinu. Hvernig kemur þetta geðheilsu við? Geðheilsan okkar mótast af ýmsum þáttum, t.d. persónulegum þáttum, erfðaþáttum og umhverfisþáttum. Þar sem við verjum flest ansi mörgum klukkustundum í vinnu þá er vinnuumhverfið stór partur af umhverfisþáttunum. Stjórnendur leggja línurnar til þess að skapa sálrænt öryggi í vinnuumhverfinu. Þeir geta skapað skýrleika um hlutverk og væntingar, fylgst með vinnuálagi, gefið starfsfólki rödd í málum sem snerta það, tekið á óheilbrigðum samskiptum og skapað svigrúm til að segja frá þegar eitthvað gengur ekki. Þannig skapa þeir vinnuumhverfi sem styður við góða geðheilsu. „Ég þarf hjálp“ ætti ekki að vera hættuleg setning Kannski liggur ein mikilvægasta tengingin milli sálræns öryggis og geðheilsu einmitt þar. Hversu öruggt er að segja frá þegar eitthvað fer að verða erfitt? Starfsmaður sem hefur ítrekað upplifað að það sé tekið vel á móti spurningum, mistökum og áhyggjum á auðveldara með að segja: „Ég er kominn með of mikið á borðið.“ Og kannski síðar: „Ég er ekki alveg góður þessa dagana.“ Stjórnandinn þarf þá ekki að greina vandann eða finna töfralausn. Hann þarf fyrst og fremst að hlusta, taka því sem starfsmaðurinn segir alvarlega og bregðast við því sem heyrir undir vinnustaðinn. Þegar þörf er á annars konar stuðningi þarf hann að þekkja mörk hlutverks síns og vita hvert hægt er að vísa fólki. Góð stjórnun er líka geðrækt Gulur september minnir okkur á mikilvægi þess að taka geðheilsu alvarlega og þora að bregðast við þegar við höfum áhyggjur. Fyrir stjórnendur getur sú vinna þó byrjað löngu áður en einhver er kominn á endastöð. Hún getur byrjað í næsta starfsmannasamtali. Á næsta fundi. Þegar næstu mistök verða gerð. Eða næst þegar einhver segir eitthvað sem stjórnandinn hefði helst ekki viljað heyra. Sálrænt öryggi verður nefnilega ekki til í einu stóru átaki. Það byggist upp, eða brotnar niður, í litlum samskiptum á hverjum degi. Góður stjórnandi getur ekki tryggt góða geðheilsu starfsmanna sinna. En hann getur lagt sitt af mörkum til vinnuumhverfis þar sem fólk þarf ekki að eyða orku í að fela mistök, áhyggjur eða erfiðleika. Og þar helst góð geðheilsa oftar í hendur við góða stjórnun en við gerum okkur grein fyrir. Höfundur er sérfræðingur í vinnuvernd og fagstjóri Auðnast Klíník. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.1799. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.1799.
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar