Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar 24. september 2026 18:02 Í grein sinni á Vísi þann 22. september, undir heitinu « er afleiðingin orsök?", tekst Hjálmtý Heiðdal, formanni Félagsins Ísland-Palestína, að draga upp einstaklega einfaldaða mynd af einu flóknasta deilumáli samtímans. Í stað þess að takast á við málefnaleg rök kýs hann að skipta öllum þeim sem styðja tilverurétt Ísraels eða efast um málflutning hans í fimm hópa: fáfróða, rasista, eiginhagsmunaseggi, bókstafstrúaða eða "íslenska síonista", sem hann skilgreinir einnig sem rasista. Þessi nálgun er kunnugleg rökvilla (ad hominem). Þegar rök þrýtur er gripið til þess ráðs að ráðast á persónu og innræti viðmælenda. Samkvæmt Hjálmtý getur enginn haft skilning á öryggishagsmunum Ísraels nema af illsku eða vankunnáttu. Sú fullyrðing dæmir sig sjálf. Söguleg siðblinda um andspyrnu Alvarlegasti hluti greinar Hjálmtýs er tilraun hans til að réttlæta og fegra samtök á borð við Hamas og Hezbollah sem lögmætar andspyrnuhreyfingar, og líkja þeim við andspyrnumenn gegn nasistum í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta er söguleg siðblinda. Hér er ekki um að ræða frelsishreyfingar sem berjast eingöngu gegn hernámi, heldur samtök sem hafa lýst því yfir í stofnsáttmálum sínum og með verkum sínum að markmiðið sé útrýming Ísraelsríkis og gyðinga. Að líkja samtökum sem fremja skipulögð fjöldamorð á almennum borgurum, taka gísla og beita kerfisbundið kynferðisofbeldi við andspyrnuhetjur Evrópu er hvorki boðlegt né í samræmi við alþjóðalög. Alþjóðalög viðurkenna aldrei hryðjuverk eða vísvitandi árásir á óbreytta borgara sem lögmætt vopn. Rangfærslan um aðskilnaðarstefnu Hjálmtýr heldur því fram að í Ísrael ríki „apartheid“ (kynþáttaaðskilnaður) og fullyrðir að arabískir ríkisborgarar hafi « takmarkaðan rétt til búsetu". Þetta stenst enga skoðun. Arabískir Ísraelar, sem telja um tvær milljónir eða ríflega fimmtung landsmanna, njóta fullra borgararéttinda. Þeir kjósa í frjálsum kosningum, sitja á ísraelska þinginu (Knesset), gegna stöðu dómara, meðal annars í Hæstarétti Ísraels, og starfa sem læknar, háskólaprófessorar og embættismenn. Þeir búa hvar sem þeir kjósa í landinu. Að bera lífskjör og réttindi þeirra saman við aðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku forðum er hrein sögufölsun. Ef leita á að raunverulegum aðskilnaði og útilokun í Miðausturlöndum ætti höfundur frekar að líta til nágrannaríkjanna og svæða undir stjórn öfgahópa. Þar hefur fornum samfélögum gyðinga nánast algjörlega verið eytt; þeir voru hraktir burt eða myrtir, og geta hvergi búið í dag vegna lífshættu. Hver er fórnarlamb áróðurs? Hjálmtýr sakar aðra um að trúa áróðri, en virðist sjálfur hafa gleypt viðtekinn áróðursfrasaforða án gagnrýni. Hann hunsar að gyðingar eiga sér árþúsunda langa sögu og órjúfanleg menningarleg og trúarleg tengsl við landið. Þeir eru ekki aðkomumenn í eigin sögulega heimalandi. Ég tel mig til þess fimmta hóps sem Hjálmtýr telur sig geta afskrifað sem rasista: Ég er íslenskur síonisti. Fyrir mér þýðir síonismi einfaldlega stuðningur við sjálfsákvörðunarrétt og tilverurétt gyðinga í eigin ríki. Ég er hvorki rasisti né haldin andúð á öðrum þjóðum. Ég bý í Frakklandi, á vini og samferðafólk úr ólíkum menningarheimum og alls staðar að úr heiminum, og veit að veruleikinn er margbrotinn en ekki svarthvít áróðursmynd. Það er fullkomlega eðlilegt að fólk hafi áhyggjur af örlögum saklausra borgara og kalli eftir friði. En friður næst aldrei með því að réttlæta hryðjuverkasamtök, afbaka staðreyndir eða stimpla alla sem neita að fylgja einhliða línunni sem illa innrætta. Höfundur var stofnandi Borgarahreyfingarinnar og síonisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Seðlabankastjóri kominn í bakkgírinn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar