Braut kynferðislega á Andy Carroll Aron Guðmundsson skrifar 24. september 2026 11:51 Andy Carroll í leik með Newcastle United. Mynd/AP Fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Andy Carroll, var beittur kynferðislegu ofbeldi árið 2021 þegar hann var leikmaður Newcastle United.
Carroll, sem er nú 37 ára gamall og spilar fyrir utandeildarlið Dagenham og Redbridge, opnar sig um málið í nýrri sjálfsævisögu sem ber nafnið Owning it en það er The Athletic sem greinir frá. Kynferðisofbeldið átti sér stað að kvöldi til árið 2021, sama dag og Carroll hafði spilað leik fyrir Newcastle United, en ofbeldismaðurinn hlaut seinna þriggja ára fangelsisdóm. Ónefndur „frægur“ vinur þáverandi kærustu Carrolls hafi boðið sjálfum sér heim til þeirra til þess að horfa á hnefaleikakvöld í sjónvarpinu en Carroll segist alltaf hafa haft skrýtna tilfinningu gagnvart manninum. Sjálfur hafi Carroll farið snemma í háttinn það kvöld eftir að honum hafi liðið óþægilega með samskipti sín við manninn og fundið fyrir léttri svimatilfinningu eftir að hafa innbyrt nokkra áfenga drykki. Carroll segist því næst hafa vaknað við að umræddur maður hafi verið að reyna að veita honum munnmök undir sæng. Hann hafi hent manninum út úr húsi sínu og þegar hann hafi gert tilraun til þess að komast aftur inn segist Carroll hafa „slegið hann eins fast og ég gat“ með þeim afleiðingum að maðurinn rotaðist. Árásarmaðurinn neitaði sök í málinu en var ákærður fyrir kynferðisbrot og seinna sakfelldur. „Það sem kom fyrir mig hafði áhrif á alla þætti míns lífs,“ skrifar Carroll í sjálfsævisögu sinni. „Þetta gerði mér erfitt fyrir að einbeita mér að nokkru öðru, þar á meðal fótboltanum.“ Á þessum tíma hafði Andy Carroll gengið í raðir Newcastle United í annað sinn á sínum knattspyrnuferli og hafði áður verið á mála hjá Liverpool og West Ham United. Carroll á að baki 9 A-landsleiki fyrir England.
Enski boltinn Newcastle United Liverpool FC West Ham United Kynferðisofbeldi Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Sjá meira