Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir og Zophonías O. Jónsson skrifa 24. september 2026 10:33 Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 er kynnt með þeim orðum að efla eigi háskólastigið. Í málaflokki háskóla og rannsóknastarfsemi eru 1.343 milljónir króna sérstaklega ætlaðar til eflingar háskólastigsins, en um leið er gerð 1.351,4 milljóna króna aðhaldskrafa á málaflokkinn. Þar af tengjast 660 milljónir almennri kröfu um 1% fækkun stöðugilda hjá ríkinu. Reikningsdæmið er ekki flókið, aðhaldskrafan er 8,4 milljónum króna hærri en fjárhæðin sem sérstaklega er kynnt sem „efling háskólastigsins“! Gert er ráð fyrir 750,1 milljónar króna raunaukningu í málaflokkinn í heild, sem er vel, en ekki liggur þó ljóst fyrir hvernig hún kemur til með að skiptast eða hversu mikið af henni muni skila sér í kjarnastarfsemi ríkisháskólanna. Þrengt að rannsóknarstörfum Miðað við verðlagsforsendur frumvarpsins rýrna framlög til helstu rannsóknasjóða um 5% að raunvirði og fjárfestingarframlög á háskólastigi lækka um tæp 15% að raunvirði. Samkeppnissjóðirnir eru mikilvægur hluti af starfsumhverfi prófessora. Þeir standa undir rannsóknum, uppbyggingu rannsóknahópa, ráðningum ungs vísindafólks og þátttöku íslenskra háskóla í alþjóðlegu samstarfi. Þegar raunvirði sjóðanna minnkar þrengist svigrúm til að fjármagna rannsóknir og byggja upp þekkingu til framtíðar. Það sama á við um fjárfestingar í húsnæði, tækjum og öðrum rannsóknainnviðum. Úreltur búnaður og ófullnægjandi starfsaðstaða hafa bein áhrif á það hvaða rannsóknir er hægt að stunda hér á landi og hvort íslenskir háskólar geti keppt um hæft starfsfólk. Þegar stöðugildum fækkar við ríkisháskólana hverfa verkefnin ekki með þeim. Kennslan þarf áfram að fara fram, verkefni og próf þarf að meta, leiðbeina þarf nemendum og sinna stjórnunarstörfum. Vinnan dreifist einfaldlega á færri hendur og við þær aðstæður þrengist fljótt að rannsóknartímanum. Akademískt starfsfólk brennur gjarnan fyrir rannsóknum sínum og leggur starfið sjaldnast alveg frá sér að vinnudegi loknum. Þennan eldmóð má þó ekki nota til að bæta upp skort á fjármagni. Við getum ekki rekið rannsóknaháskóla og reitt okkur á að vísindafólk sinni rannsóknum í frítíma sínum. Langvarandi aðhald í rekstri ríkisháskólanna gerir þeim erfiðara að laða að og halda í öflugt vísindafólk. Þegar sérfræðingur hverfur úr starfi tapast ekki aðeins eitt stöðugildi. Þá getur einnig tapast sérþekking, rannsóknasamstarf og uppbygging margra ára. Háskólarnir varða allt samfélagið Ríkisháskólarnir eru ekki afmarkaður heimur þeirra sem þar nema og starfa. Við þá eru meðal annars menntaðir læknar, kennarar, verkfræðingar og aðrir sérfræðingar sem samfélagið þarf á að halda. Þar fara jafnframt fram grunnrannsóknir sem mynda stoðirnar sem samfélagið hvílir á, t.a.m. á sviði heilbrigðismála, náttúruvár, sjávarútvegs, landbúnaðar, loftslags, íslenskrar tungu og nýrrar tækni, svo dæmi séu tekin. Samkvæmt Education at a Glance 2025 voru útgjöld á hvern háskólanema á Íslandi árið 2022 aðeins um 78% af meðaltali hinna Norðurlandanna, þ.e. nær fjórðung vantaði upp á að Ísland næði nágrannaríkjunum. OECD hefur jafnframt vakið athygli á kjörum og starfsumhverfi háskólakennara og mikilvægi fjármögnunar rannsókna. Ríkisháskólarnir ganga því ekki inn í árið 2027 með mikið svigrúm. Það er sjálfsagt að gæta aðhalds í opinberum rekstri, svo og öðrum rekstri, en forgangsröðunin er pólitísk ákvörðun. Sparnaður sem veikir getu samfélagsins til að mennta sérfræðinga, stunda rannsóknir og skapa nýja þekkingu getur reynst dýr þegar til lengri tíma er litið. Félag prófessora við ríkisháskóla hefur lagt til að Alþingi falli frá 1.351,4 milljóna króna aðhaldskröfunni sem lögð er á málaflokk háskóla og rannsóknastarfsemi. Jafnframt verði raunvirði rannsóknasjóðanna varið og fallið frá lækkun fjárfestingarframlaga á háskólastigi. Það tekur mörg ár að byggja upp öflugt háskólastarf en mun skemmri tíma að grafa undan því. Sigrún er formaður og Zophonías er varaformaður Félags prófessora við ríkisháskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjárlagafrumvarp 2027 Háskólar Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun Skoðun Skoðun Heimskuleg leigubremsa eða heimskulegir hagfræðingar? Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar