Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Stefán Árni Pálsson skrifar 23. september 2026 23:16 Michael Carrick fer ekki vel af stað með liðið á tímabilinu en það er aðeins með fimm stig eftir fimm umferðir. Vísir/Carl Recine/Getty Images Manchester United er enn með skuldir upp á meira en einn milljarð punda þrátt fyrir umfangsmikinn niðurskurð hjá félaginu undanfarin misseri.
BBC greinir frá. Þá hefur félagið staðfest að 63,5 milljónum punda hafi verið varið í landakaup vegna fyrirhugaðs nýs heimavallar. United birti í dag ársreikning sinn þar sem kemur fram að tekjur félagsins hafi aldrei verið meiri, eða 677,6 milljónir punda. Rekstrarhagnaður nam 22,6 milljónum punda en til samanburðar tapaði félagið 113,2 milljónum punda árið á undan. Þetta gerist þrátt fyrir að United hafi ekki leikið í Evrópukeppni á síðasta tímabili í fyrsta sinn í áratug. Fjármagnskostnaður félagsins jókst hins vegar verulega og nam 69,6 milljónum punda, sem er 228,3 prósenta aukning frá fyrra ári. Stór hluti hækkunarinnar skýrist af gengistapi. Samkvæmt útreikningum fjármálasérfræðingsins Kieran Maguire hefur fjármagnskostnaður United einn og sér nú farið yfir einn milljarð punda frá því Glazer-fjölskyldan keypti félagið árið 2005 með skuldsettri yfirtöku. Lóðin fyrir nýja völlinn Í reikningunum kemur einnig fram að félagið hafi varið 63,5 milljónum punda af 125 milljóna dollara, eða um 94 milljóna punda, viðbótarláni í kaup á landi undir nýjan leikvang. United hefur ekki gert grein fyrir því nákvæmlega í hvað afgangurinn af láninu hefur farið. Fyrirhugaður nýr heimavöllur félagsins á að rísa í um 350 metra fjarlægð frá Old Trafford og áætlað er að byggingarkostnaðurinn verði yfir tveimur milljörðum punda. Heildarskuldir félagsins hafa lækkað úr um 1,3 milljörðum punda í lok desember en eru engu að síður enn yfir milljarði. Þar af eru 577,6 milljónir punda í eldri skuldum, 111,4 milljónir vegna lánalínu félagsins og síðan skuldbindingar vegna leikmannakaupa.
Enski boltinn Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira